Ross Barkley sá til þess að Chelsea fékk stig þegar Manchester United kom í heimsókn á Stamford Bridge í gær.
Chelsea komst yfir í leiknum með marki frá Rudiger en tvö mörk frá Martial sáu til þess að gestirnir náðu 1-2 forystu en Barkley skoraði svo jöfnunarmark Chelsea á síðstu mínútu uppbótartíma.
Barkley segir það hafa verið vonbrigði að vinna ekki leikinn.
„Ég er fullur sjálfstrausts þessa stundina, markmiðið í dag (í gær) var að vinna leikinn svo þessi úrslit eru ákveðin vonbrigði."
„Stjórinn sagði mér að hjálpa liðinu að vinna leikinn og reyna að ná góðum úrslitum, við fengum á okkur mörk sem við áttum að koma í veg fyrir en komum til baka," sagði Barkley.
95:27 - Ross Barkley's goal was the latest Man Utd have conceded in the Premier League since October 2009, when David Ngog also scored against them at 95:27 for Liverpool. Drama. #CHEMUN pic.twitter.com/pxrpCAuvVz
-- OptaJoe (@OptaJoe) October 20, 2018
Athugasemdir