sun 21. október 2018 12:10
Arnar Helgi Magnússon
Pique: Getum ekki látið fjarveru Messi hafa áhrif á okkur
Mynd: Getty Images
Gerard Pique leikmaður Barcelona segir það augljóst að liðið sé ekki það sama án Lionel Messi handleggsbrotnaði í leiknum gegn Sevilla í gærkvöldi.

Messi er verður frá í að minnsta kosti þrjár vikur sem þýðir það að hann missir af stórleiknum gegn Real Madrid næstu helgi.

„Við vitum öll að Barcelona er sterkari með Messi innanborðs. Við megum hinsvegar ekki láta hans fjarveru hafa áhrif á okkur," sagði Gerard Pique liðsfélagi Messi eftir leikinn í gærkvöldi.

„Þetta er stórt skarð að fylla en við erum með marga leikmenn í hópnum sem munu þurfa að stíga upp núna."

Messi hefur farið vel af stað á leiktíðinni en hann er búin að skora tólf mörk í öllum keppnum, þar af sjö þeirra í spænsku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner