Aston Villa horfir til Sunderland - Real Madrid ætlar að fá Konate - Anderson ekki til sölu
Muhamed Alghoul: Sýndum afhverju við eigum skilið að ná þessu markmiði okkar
Frans Elvarsson: Gaman að loksins vinna á þessum velli
Nacho Heras: Hugsaði jafnvel að ég ætti bara að gefast upp
Haraldur Freyr: Fann bara að orkan í okkur var frábær
Sindri Kristinn fullur þakklætis: „Ég er svo hamingjusamur að hafa náð þessu með félaginu mínu"
Hemmi Hreiðars: Held að fólk átti sig ekki á því
Dóri Árna: Svekkelsi að fá ekki betri stöður með útileikmann í markinu
Viktor Jóns: Með breytingum fara menn upp á tærnar
Björn Daníel líklega að hætta: Held það sé best að hætta á þessum nótum
Framtíð Heimis í óvissu: Ólíklegt að ég haldi áfram
Lárus Orri: Gripið inn í leikinn með skrítnum dómgæslum
Óskar Hrafn: Hlutir fara stundum öðruvísi en maður ætlar sér
Nablinn: Ekki til neitt sem heitir lokaður leikur þegar þú ert með Hemma sem þjáflara
Jón Kristinn: Þessir Spánverjar eru gull
Fjórði dómarinn ósammála dómaranum - „Hann bara þorði ekki að dæma“
Ingó Sig: Minnti mig á Ronaldinho gegn Englandi 2002
Skoraði rosalegt mark beint úr aukaspyrnu - „Ég var heppinn“
Tók bikar í kveðjuleiknum - „Fullkominn endir“
„Ég held að ég verði ekki næsti aðstoðarþjálfari hjá Steina"
Donni: Fram er bara betra lið en FHL, á erfitt með að sjá að þær geri eitthvað á móti þeim
banner
   mið 28. maí 2025 22:24
Brynjar Óli Ágústsson
Anna Þóra svekkt: Galinn dómur
Kvenaboltinn Lengjudeildin
Anna Þóra Hannesdóttir, fyrirliði ÍA
Anna Þóra Hannesdóttir, fyrirliði ÍA
Mynd: ÍA

Virkilega, virkilega leiðinlegt að hafa tapað þessu,'' segir Anna Þóra Hannesdóttir, fyrirliði ÍA, eftir 2-1 tap gegn Gróttu í 5. umferð Lengjudeildarinnar.


Lestu um leikinn: Grótta 2 -  1 ÍA

„Við áttum góðan fyrri hálfleik, en í seinni hálfleiknum þá slökknar á okkur. Við byrjuðum ekki nógu sterkt í byrjun seinni hálfleiks þannig við misstum þetta og þær tóku yfirhöndina.''

Grótta fékk víti í blálokin og var spurt Önnu hvað henni fannst um dóminn.

„Galinn. Einhver að segja að þetta hafi ekki verið rangstaða, sumir segja að þetta hafi verið rangstaða. Ég sá bara enga af okkur fyrir innan. Markmaðurinn okkar ver boltann en hann fer inn, þannig mjög svekkjandi.'' 

ÍA situr í næst neðsta sæti í deildinni, með 4 stig eftir 5 leiki.

„Við erum búnar að standa okkur vel en mér finnst við bara helvíti óheppnar. Við þurfum bara að bæta í og ekki gefast upp.''

Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.


Athugasemdir
banner
banner