Man Utd vill fá Watkins - Helmingslíkur á að Ten Hag verði áfram - PSG hefur áhuga á Mateta
   mán 29. apríl 2024 20:23
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ancelotti svarar Bernardo Silva: Við erum ekki skrítið lið
Mynd: EPA

Carlo Ancelotti stjóri Real Madrid hefur svarað Bernardo Silva sem sagði að lið Real Madrid væri skrítið.


„Stundum virðist vera sem þú sért með stjórn á leiknum allt í einu komast þeir í tvær skyndisóknir og skora tvö mörk því leikmennirnir þeirra eru mjög góðir. Þeir eru svo hraðir og sterkir í skyndisóknum að það er ekki auðvelt að stjórna þeim," sagði Silva.

„Við erum ekki skrítið lið. Við erum lið sem sýnir söguna okkar í keppninni. Ég þarf ekki að svara Bernardo Silva. Hann er frábær, risa leikmaður og í fyrra komust þeir í úrslit og nú er komið að okkur," sagði Ancelotti.

Real Madrid lagði Manchester City í átta liða úrslitunum eftir sigur í vítaspyrnukeppni á Etihad vellinum. Real Madrid mætir Bayern í undanúrslitum en fyrri leikurinn fer fram annað kvöld á Allianz Arena í Munchen.


Athugasemdir
banner
banner