Bayern hefur áhuga á Bruno - Man Utd ætlar að bjóða í Branthwaite - Frank og McKenna orðaðir við stjórastarfið á Old Trafford
   mán 29. apríl 2024 14:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Branthwaite líklega ódýrari ef hann er keyptur fyrir 30. júní
Jarrad Branthwaite.
Jarrad Branthwaite.
Mynd: Getty Images
Manchester United gæti fengið miðvörðinn Jarrad Branthwaite á útsöluverði frá Everton í sumar ef hann er keyptur fyrir ákveðinn tíma.

Branthwaite, sem er 21 árs gamall, hefur átt virkilega flott tímabil með Everton í ensku úrvalsdeildinni.

Branthwaite er á óskalista Man Utd fyrir sumarið, en Everton vill helst ekki missa hann. Félagið gæti þó þurft að selja hann út af fjárhagsvandræðum sínum.

Everton hefur tapað stigum á tímabilinu vegna fjárhagsvandræða og er félagið í hættu á að tapa fleiri stigum á næsta tímabili ef það lagar ekki stöðuna, og það fljótt.

Everton þarf að laga bækur sínar fyrir 30. júní næstkomandi til að tapa ekki stigum á næsta tímabili og það gæti verið freistandi fyrir félagið að selja Branthwaite á útsöluverði fyrir þann dag.

Það er 80 milljón punda verðmiði á Branthwaite en samkvæmt The Sun er sá verðmiði lægri ef hann er keyptur fyrir 30. júní.
Athugasemdir
banner