Bayern hefur áhuga á Bruno - Man Utd ætlar að bjóða í Branthwaite - Frank og McKenna orðaðir við stjórastarfið á Old Trafford
   mán 29. apríl 2024 18:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Eyþór Daði framlengir við ÍBV
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eyþór Daði Kjartansson hefur skrifað undir nýjan samning við ÍBV út tímabilið sem framundan er.


Þessi 23 ára gamli leikmaður hefur verið að spila í háskólaboltanum í Bandaríkjunum fyrir Coastal Carolina University en hann kom við sögu í fimm leikjum fyrir ÍBV í bestu deildinni síðasta sumar og skoraði eitt mark.

Þá spilaði hann fjóra leiki fyrir KFS í 3. deild og skoraði eitt mark.

Hann er uppalinn í Eyjum og hefur leikið 26 leiki á sínum ferli fyrir félagið „og verða þeir eflaust fleiri í sumar en knattspyrnuráðið fagnar komu Eyþórs og mun hann hefja æfingar með liðinu í dag," segir í tilkynningu frá félaginu.


Athugasemdir
banner
banner
banner