Besta deild kvenna er komin á fleygiferð en fyrstu tvær umferðirnar eru núna að baki.
Það hefur vakið athygli að tveir landsliðsmarkverðir hafa setið á bekknum í fyrstu tveimur leikjum tímabilsins.
Aldís Guðlaugsdóttir hefur verið á bekknum hjá FH í leikjum gegn Tindastóli og Þór/KA. Herdís Halla Guðbjartsdóttir hefur byrjað leikina en hún kom frá Breiðabliki fyrir tímabilið. Herdís Halla er afar efnilegur markvörður og er mikil samkeppni þarna á milli.
Aldís var einn besti markvörður Bestu deildarinnar í fyrra en Herdís Halla var fengin yfir í FH þegar Aldís fékk höfuðhögg.
Aldís hefur verið að berjast við Auði Sveinbjörnsdóttur Scheving um sæti í landsliðshópnum að undanförnu, og hafa þær báðar farið í nokkur verkefni með landsliðinu. Auður hefur byrjað tímabilið á bekknum hjá Stjörnunni en þar er hún í samkeppni við Erin McLeod, fyrrum landsliðsmarkvörð Kanada.
Erin er 41 árs gömul á meðan Auður verður 21 árs á þessu ári. Auður gekk í raðir Stjörnunnar fyrir síðustu leiktíð og spilaði þá 15 leiki í deild og bikar.
Það verður fróðlegt að sjá hversu mikið Aldís og Auður munu spila á tímabilinu og hvort þær verði áfram í baráttunni um landsliðið ef þær spila ekki. Aldís fer í háskóla í Bandaríkjunum síðar á þessu ári.
Athugasemdir