Man Utd hefur áhuga á Yoro - Osimhen í forgangi hjá Chelsea - Napoli, Juve og Atletico hafa áhuga á Greenwood
   þri 30. apríl 2024 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lewandowski: Ekki í umræðunni að yfirgefa Barcelona
Mynd: EPA

Robert Lewandowski framherji Barcelona er ekki að hugsa um að yfirgefa félagið í sumar en hann er orðinn 35 ára.


Pólski landsliðsmaðurinn hefur verið fastamaður í liðinu á þessari leiktíð og skorað 16 mörk í 34 leikjum í deildinni. Hann skoraði þrennu þegar liðið lagði Valencia í gær.

Lewandowski á tvö ár eftir af samningi sínum við spænska félagið.

„Að yfirgefa Barcelona er ekki í umræðunni. Mér líður vel líkamlega. Eins og staðan er í dag verð ég hérna næstu tvö árin. Þegar ég verð ekki í toppstandi lengur fer ég að hugsa mig um," sagði Lewandowski.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner