21:00 - 20.02.12
Bellamy spilar til minningar um Gary Speed
Craig Bellamy spilar sinn 68. og kannski síðasta landsleik þegar Wales mætir Kosta Ríka í vináttuleik. Um er að ræða minningarleik fyrir Gary Speed sem tók eigið líf í nóvember.

Chris Coleman, nýr landsliðsþjálfari Wales, vill að Bellamy haldi áfram að spila fyrir landsliðið en sóknarmaðurinn hefur þegar gefið út að leikurinn gæti veið sinn síðasti í landsliðsbúningnum.
Sam Ricketts, leikmaður Bolton, snýr aftur í landsliðshópinn eftir erfið meiðsli og þá er Robert Earnshaw í hópnum þrátt fyrir að fá lítið að spila með Cardiff City.

Bellamy lék ekki með Liverpool í 6-1 sigrinum gegn Brighton í gær en verður klár í slaginn gegn sínu gamla félagi, Cardiff, í úrslitaleik enska deildabikarsins næstu helgi. Danski miðvörðurinn Daniel Agger verður líka með í þeim leik.

DEILDU FRÉTTINNI
Slapp