17:05 - 17.07.12
Stórsigur hjá U19 í fyrsta leik í Svíþjóð
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Oliver Sigurjónsson.
Strákarnir í U19 voru í eldlínunni í dag þegar þeir mættu Rúmenum á Svíþjóðarmótinu en þetta er fyrsti leikur liðsins á mótinu. Um æfingamót er að ræða.
Ísland var 2-1 yfir í háfleik, Elías Már Ómarsson (Keflavík) kom Íslandi yfir á 11. mínútu en Rúmenar jöfnuðu metin á 20. mínútu. Oliver Sigurjónsson, leikmaður AGF, kom svo Íslandi aftur yfir á 28. mínútu. Nokkuð fjörugur og jafn fyrri hálfleikur en íslenska liðið átti fleiri færi og m.a. stangarskot.

Ísland bætti tveimur mörkum við í seinni hálfleik. Kristján Flóki Finnbogason (FH) skoraði á 68. mínútu og Þróttarinn Aron Bjarnason bætti fjórða markinu við, í sínum fyrsta landsleik, á 80. mínútu. Góður leikur hjá strákunum og sannfærandi sigur.

Næsti leikur Íslands á þessu æfingamóti er gegn heimamönnum í Svíþjóð á fimmtudaginn og svo verður leikið gegn Noregi á laugardag.

Byrjunarlið Íslands í dag:

Markvörður: Fannar Hafsteinsson

Hægri bakvörður: Adam Örn Arnarsson

Vinstri bakvörður: Ósvald Jarl Traustason

Miðverðir: Orri Sigurður Ómarsson og Aron Heiðdal Rúnarsson

Tengiliðir: Emil Ásmundsson, Oliver Sigurjónsson og Kristján Flóki Finnbogason

Hægri kantur: Daði Bergsson

Vinstri kantur: Páll Olgeir Þorsteinsson

Framherji: Elías Már Ómarsson

DEILDU FRÉTTINNI
Slapp