17:30 - 10.07.15
Rúnar Kristins: Komnir af rauðu ljósi yfir á gult
Rúnar Kristinsson.
Rúnar Kristinsson, þjálfari Lilleström, er ánægður með fyrri hluta tímabils hjá liðinu. Lilleström er í 8. sæti í norsku úrvalsdeildinni með 21 stig, sex stigum frá 3. sæti deildarinnar.
„Okkur hefur gengið framar vonum og það vantar lítið upp á að við værum ofar í töflunni. Við höfum misst tvo sigurleiki niður í jafntefli í viðbótartíma og það er stutt á milli í að blanda sér í baráttuna um 3. sætið. Við höfum misst mikið af mönnum og það hefur verið mikið af meiðslum en við erum í fínni stöðu miðað við það," sagði Rúnar við Fótbolta.net í dag.
Fjárhagsstaða Lilleström hefur verið vond undanfarin ár en nú horfir til betri vegar í þeim efnum.
„Hún er orðin miklu betri. Klúbburinn hefur unnið í því í eitt og hálft ár að koma sér út úr ákveðnum skuldum. Félögin fá ákveðna einkunn hjá norska sambandinu og það eru einhver félög á rauðu ljósi núna. Lilleström er farið af því svæði. Við erum komnir yfir á gult og það styttist í að við förum á grænt."
„Klúbburinn hefur staðið sig mjög vel í að lækka allan launakostnað og útgjöld. Það kemur aðeins niður á þeim leikmönnums em við getum fengið til okkar því að við getum ekki boðið sömu laun og þá getur maður orðið undir í baráttunni um góða leikmenn."
Mínusstigið telur
Lilleström byrjaði með eitt stig í mínus í norsku úrvalsdeildinni vegna fjárhagsvandræða. Liðið væri sæti ofar í töflunni ef það hefði ekki gerst.
„Eitt stig getur skipt máli um það hvort þú fallir eða náir Evrópusæti. Þetta er ákvörðun sem knattspyrnusambandið tók og menn hér voru mjög ósáttir við það."
„Við þurfum að lifa við þetta. Við erum búnir að vinna 22 stig á tímabilinu og erum í raun einu sæti ofar í deildinni en taflan sýnir. Það vantar þetta eina stig upp á svo taflan lítur aðeins öðruívísi út."
Norska deildin ekki djók eins og margir halda
Margir velta fyrir sér styrkleikanum á Pepsi-deildinni samanborið við bestu deildirnar á Norðurlöndunum. Hvar stendur styrkleiki Pepsi-deildarinnar miðað við norsku úrvalsdeildina?
„Það er alltaf voðalega erfitt að bera svona saman. Norska deildin er mun sterkari. Ég held að það sé engin spurning þó að margir á Íslandi haldi að norska deildin sé eitthvað djók. Það miðast oft út frá árangri landsliðsins og norska landsliðið er ekki að standa sig vel núna á meðan Íslenska er að gera það," sagði Rúnar.
„Það er meiri breidd hér úti og hér æfa menn mun meira en heima. Það er meiri umgjörð hér úti þó að íslensku liðin séu að gera frábæra hluti. Íslensk félög eru að geta allt hvað þau geta til að leyfa leikmönnum að æfa og hvílast eins og atvinnumenn en það eru margir á Íslandi í vinnu með fótboltanum eða í skóla."
„Hérna er þetta atvinnumennska fram í fingurgóma. Menn mæta saman á æfingu á morgnanna, borða saman þegar æfingin er búin og síðan er oft aftur æfing eftir hádegi. Það er fullt af þjálfurum, sjúkraþjálfurum og öll aðstaða er til fyrirmyndar. Það er auðveldara að koma mönnum í betra form hér heldur en heima."