22:45 - 10.11.04
Búið að draga í deildabikar - Man Utd mætir Arsenal
Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson
Úr leik þessara liða í síðasta mánuði.
Nú rétt í þessu var dregið í 8-liða úrslit enska deildabikarsins og það er enginn smáleikur á Old Trafford þar sem að Manchester United tekur á móti Arsenal. Í seinustu tveimur leikjum þessara liða á Old Trafford hefur verið mikill hiti og meðal annars bárust sögusagnir af matarslag eftir leik liðanna í október síðastliðnum en þá sigraði Manchester United 2-0.
Í öðrum leikjum 8-liða úrslitana fær Íslendingalið Watford lið Portsmouth í heimsókn, Tottenham tekur á móti Liverpool og Fulham mætir Eiði Smára og félögum í Chelsea.

Leikirnir í 8-liða úrslitum:

Manchester United - Arsenal
Tottenham - Liverpool
Watford - Portsmouth
Fulham - Chelsea

Leikirnir munu fara fram 30. nóvember eða 1. desember.

DEILDU FRÉTTINNI
Slapp