Robinho leikmaður Real Madrid hefur sagt við forráðamenn félagsins að hann vilji fara frá félaginu.
Robinho hefur verið sterklega orðaður við Chelsea í sumar en hann á að hafa sagt Predrag Mijatovic yfirmanni íþróttamála hjá Real Madrid að hann vilji fara til Chelsea.
,,Ég hef áhuga á því að fara frá Real Madrid," sagði Robinho við Marca.
Talið er að Real Madrid vilji fá í kringum 40 milljónir evra fyrir þennan 24 ára gamla sókarmann.