16:00 - 17.12.21
Shaina Ashouri Í FH (Staðfest)
Shaina Faiena Ashouri lék sex leiki og skoraði eitt mark fyrir Þór/KA á síðasta tímabili. Shaina er 25 ára sóknarmaður sem kom til Þór/KA um mitt tímabil.
Hún er gengin í raðir FH sem spilar í Lengjudeildinni og semur út komandi tímabil.
Shaina fylgir í fótspor Colleen Kennedy sem einnig er komin í FH frá Þór/KA.