22:21 - 13.03.26
Championship: Wrexham styrkir stöðu sína í umspilsbaráttunni
Mynd: Wrexham
Wrexham 2 - 0 Swansea
1-0 Nathan Broadhead ('25 )
2-0 Liam Cullen ('88 , sjálfsmark)
Sögufræga lið Wrexham er að gera frábæra hluti í Championship deildinni og lagði Swansea að velli í velskum slag í eina leik kvöldsins.

Nathan Broadhead skoraði snoturt mark til að ná forystunni fyrir heimamenn í Wrexham á 25. mínútu. Hann skoraði eftir gullfallega stoðsendingu frá Callum Doyle, sem er öflugur miðjumaður uppalinn hjá Manchester City og með 26 leiki að baki fyrir unglingalandslið Englands.

Bæði lið fengu færi í jöfnum leik en Svanirnir nýttu ekki tækifærin sín.

Heimamenn innsigluðu sigurinn eftir jafnan og spennandi leik með marki á 88. mínútu þegar Liam Cullen var óheppinn að skora sjálfsmark.

Doyle vann skallaeinvígi eftir aukaspyrnu en skallinn hans var á leið framhjá markinu. Boltinn hafði viðkomu í Cullen og skaust þaðan í netið til að innsigla 2-0 sigur.

Wrexham er í síðasta umspilssætinu með 60 stig eftir 37 umferðir, sex stigum fyrir ofan Southampton sem á leik til góða.

Swansea er átta stigum á eftir Wrexham.
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Middlesbrough 12 7 4 1 27 17 +10 25
1 Coventry 46 28 11 7 97 45 +52 95
2 Swansea 12 7 2 3 16 13 +3 23
2 Ipswich Town 46 23 15 8 80 47 +33 84
3 West Ham 12 6 4 2 32 15 +17 22
4 Wolves 12 6 3 3 20 16 +4 21
5 West Brom 12 6 3 3 16 13 +3 21
6 Southampton 12 7 3 2 24 12 +12 20
6 Hull City 46 21 10 15 70 66 +4 73
7 Birmingham 12 5 5 2 20 12 +8 20
8 QPR 12 5 5 2 20 12 +8 20
9 Stoke City 12 6 2 4 18 16 +2 20
10 Blackburn 12 5 3 4 19 16 +3 18
11 Portsmouth 12 5 3 4 16 15 +1 18
12 Sheffield Utd 12 4 4 4 16 15 +1 16
13 Millwall 12 4 3 5 19 20 -1 15
14 Bristol City 12 4 3 5 12 15 -3 15
15 Lincoln City 12 4 3 5 13 20 -7 15
16 Cardiff City 12 3 5 4 19 17 +2 14
17 Wrexham 12 3 5 4 15 18 -3 14
18 Bolton 12 4 2 6 16 23 -7 14
19 Charlton Athletic 12 3 5 4 11 18 -7 14
20 Norwich 12 4 0 8 20 22 -2 12
21 Watford 12 3 2 7 10 20 -10 11
22 Burnley 12 1 5 6 17 25 -8 8
22 Oxford United 46 11 14 21 45 59 -14 47
23 Leicester 46 12 16 18 58 68 -10 46
23 Derby County 12 1 4 7 10 21 -11 7
24 Sheff Wed 46 2 12 32 29 89 -60 0
24 Preston NE 12 1 2 9 10 25 -15 5

DEILDU FRÉTTINNI
Slapp