12:15 - 23.04.21
Saint-Maximin og Wilson klárir í leikinn gegn Liverpool
Liverpool og Newcastle mætast í hádegisleiknum í ensku úrvalsdeildinni á morgun. Newcastle er án taps í síðustu þremur leikjum og hefur komið sér fjær fallsvæðinu.

Steve Bruce sat fyrir svörum á fréttamannafundi í dag og tilkynnti þar að sóknarleikmennirnir Callum Wilson og Allan Saint-Maximin séu báðir klárir í slaginn.
„Saint-Maximin er fínn, sem betur fer. Hann hefur getað æft alla vikuna. Hann fékk högg á ökklann, það er eitthvað sem hann er vanur og því er erfitt að breyta. Hann verður klár á morgun," segir Bruce.

„Fabian Schar hefur getað æft í vikunni og hefur lagt mikið á sig en leikurinn á morgun kemur væntanlega of snemma fyrir hann. Það er þó gott að fá hann aftur."

Á fundinum tjáði Bruce sig einnig um lánsmanninn Joe Willock frá Arsenal. Hann skoraði gegn West Ham í síðustu viku og Bruce vonast til að njóta þjónustu hans áfram á næsta tímabili.

„Það yrði frábært að halda honum. Við munum reyna að ná samkomulagi við Arsenal. Hann er nútímalegur leikmaður, ungur íþróttamaður í góðu formi. Hann er bara 21 árs og á bjarta framtíð," sagði Bruce.

Þá var Bruce spurður út í sóknarmanninn Joelinton. Hann segir að Joelinton eigi sér framtíð hjá Newcastle en hann þurfi þó að fara að skila fleiri mörkum.

Leikur Liverpool og Newcastle verður 11:30 á morgun.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 10 9 0 1 15 5 +10 27
2 Brighton 10 7 1 2 26 7 +19 22
3 Man City 10 7 0 3 21 13 +8 21
4 Liverpool 10 5 3 2 14 10 +4 18
5 Chelsea 10 5 1 4 19 16 +3 16
6 Everton 10 4 4 2 12 10 +2 16
7 Bournemouth 10 4 3 3 16 14 +2 15
8 Brentford 10 3 5 2 16 11 +5 14
9 Leeds 10 3 5 2 10 8 +2 14
10 Aston Villa 10 3 4 3 14 17 -3 13
11 Tottenham 10 3 3 4 10 11 -1 12
12 Newcastle 10 3 3 4 13 16 -3 12
13 Hull City 10 2 5 3 11 11 0 11
14 Ipswich Town 10 3 2 5 15 20 -5 11
15 Fulham 10 2 4 4 10 12 -2 10
16 Nott. Forest 10 2 3 5 9 13 -4 9
17 Coventry 10 3 0 7 10 19 -9 9
18 Man Utd 10 1 5 4 14 19 -5 8
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
19 Sunderland 10 2 2 6 8 17 -9 8
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
20 Crystal Palace 10 2 1 7 10 24 -14 7

DEILDU FRÉTTINNI
Slapp