15:59 - 15.12.24
Árni Vill með þrennu og fékk að eiga boltann
Mynd: Heimasíða Al Taraji
Árni Vill með boltann eftir leikinn í gær
Árni Vilhjálmsson skoraði þrennu og var hetja Al-Taraji er liðið vann 3-2 sigur á Al-Qotah í sádi-arabísku C-deildinni í gær.
Blikinn var á mála hjá ítalska félaginu Novara á síðasta leiktíð en yfirgaf félagið í sumar og flutti með kærustu sinni, Söru Björk Gunnarsdóttur, til Sádi-Arabíu.

Hann gekk í raðir Al-Taraji í október og skoraði fyrstu þrennuna með liðinu í gær.

Árni, sem er þrítugur sóknarmaður, er kominn með sex mörk síðan hann samdi við félagið.

Al Taraji er í 10. sæti í A-riðli C-deildarinnar með 19 stig eftir sextán leiki.


DEILDU FRÉTTINNI
Slapp