13:00 - 18.11.12
Nicklas Bendtnar opnar dyrnar fyrir Tottenham
Danski framherjinn Nicklas Bendtner segist ekki geta útilokað að ganga til liðs við Tottenham ef hann verður seldur frá Arsenal næsta sumar.
Bendtner er þessa stundina á láni hjá Juventus og hefur honum ekki gengið vel að festa sig í sess hjá ítölsku meisturunum.Nokkuð ljóst er að Bendtner verði seldur næsta sumar og viðurkennir hann að hann vilji búa áfram í London og því vill hann ekki útiloka félagaskipti til erkifjendanna í Tottenham.
,,Sagan er full af leikmönnum sem hafa verið að fara á milli tveggja erkifjenda og ég get ekki útilokað félög út af því hvar ég hef verið í fortíðinni," sagði Bendtner.
,,Það er kannski ekki besta hugmyndin, en ef verkefnið mætir metnaði mínu þá mun ég hafa áhuga. Mér líður enn mjög vel í London. Það er frábær borg sem ég ann vel."
,,Ég á mikið af vinum í London og það er mikið af flottum félögum þar sem svo ég vill ekki útiloka endurkomu þangað."