Í BEINNI
Uppfæra
-
LL
2 Víkingur R.2 Fram
-
LL
4 ÍA4 Keflavík
-
LL
8 KR3 Breiðablik
-
LL
5 KA1 ÍBV
-
LL
1 FH2 Þór
-
LL
6 Stjarnan0 Valur
Besta karla - Efri hluti
Meistaravellir
13.09.2026 - 14:00
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Meistaravellir
13.09.2026 - 14:00
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason

KR
5
1
ÍA

Galdur Guðmundsson
'7
1-0
Sigurður Breki Kárason
'14
2-0
Galdur Guðmundsson
'21
3-0
3-1
Markús Páll Ellertsson
'69
Eiður Gauti Sæbjörnsson
'71
4-1
Luke Rae
'83
5-1
Áhorfendur: 707
Maður leiksins: Sigurður Breki Kárason (KR)
Byrjunarlið:
1. Arnar Freyr Ólafsson (m) 33
4. Michael Akoto 29
7. Finnur Tómas Pálmason 25
9. Eiður Gauti Sæbjörnsson 27
('84)
('84)
11. Aron Sigurðarson (f) 33
17. Luke Rae 25
('84)
('84)
21. Gabríel Hrannar Eyjólfsson 27
23. Arnór Ingvi Traustason 33
30. Sigurður Breki Kárason 16
45. Galdur Guðmundsson 20
('72)
('72)
77. Orri Hrafn Kjartansson 24
('60)
- Meðalaldur 27 ár
('60)
Varamenn:
12. Halldór Snær Georgsson (m) 22
31. Sigurpáll Sören Ingólfsson (m) 23
18. Jón Ernir Ragnarsson 19
22. Ástbjörn Þórðarson 27
('72)
('72)
24. Fannar Heimisson 15
('84)
('84)
25. Matthías Björgvin Kjartansson 17
('84)
('84)
28. Hjalti Sigurðsson 26
29. Aron Þórður Albertsson 30
('60)
('60)
95. Sölvi Snær Ásgeirsson 18
- Meðalaldur 22 ár
Liðsstjórn:
Óskar Hrafn Þorvaldsson (Þ) aldur 52
Hilmar Árni Halldórsson (AÞ) aldur 34
Hrannar Bogi Jónsson (AÞ) aldur 33
Magnus Börheim (Sjúkraþj.) aldur 32
Björn Valdimarsson (Forráðam.) aldur 31
Lúðvík Júlíus Jónsson (Liðsstj.) aldur 72
Guðjón Örn Ingólfsson (Styrktarþj.) aldur 43
Jamie Paul Brassington (MÞ) aldur 35
Gul spjöld:
Arnór Ingvi Traustason ('23)
Aron Þórður Albertsson ('88)
Rauð spjöld:Byrjunarlið:
1. Árni Marinó Einarsson (m) 24
5. Baldvin Þór Berndsen 22
7. Haukur Andri Haraldsson 21
('82)
('82)
9. Viktor Jónsson 32
11. Gísli Eyjólfsson 32
('66)
('66)
13. Erik Tobias Sandberg 26
17. Gísli Laxdal Unnarsson 25
21. Böðvar Böðvarsson 31
('66)
('66)
25. Markús Páll Ellertsson 20
('75)
('75)
66. Jón Gísli Eyland Gíslason 24
87. Styrmir Jóhann Ellertsson 18
('66)
- Meðalaldur 25 ár
('66)
Varamenn:
3. Johannes Vall 34
('66)
('66)
8. Guðmundur Þórarinsson 34
('82)
('82)
10. Steinar Þorsteinsson 28
('66)
('66)
16. Rúnar Már S Sigurjónsson 36
('66)
('66)
18. Rafael Máni Þrastarson 19
22. Ómar Björn Stefánsson 22
26. Matthías Daði Gunnarsson 20
31. Isak Theodor Eidem 17
44. Guðmar Gauti Sævarsson 18
('75)
- Meðalaldur 25 ár
('75)
Liðsstjórn:
Lárus Orri Sigurðsson (Þ) aldur 53
Aron Ýmir Pétursson (AÞ) aldur 36
Salvar Georgsson (Forráðam.) aldur 39
Mario Majic (Sjúkraþj.)
Emil Ásmundsson (Styrktarþj.) aldur 31
Teitur Pétursson (Liðsstj.) aldur 33
Dino Hodzic (MÞ) aldur 30
Gul spjöld:
Styrmir Jóhann Ellertsson ('39)
Jón Gísli Eyland Gíslason ('85)
Rauð spjöld:Leik lokið!
Fannar Heimisson hleður í skot sem fer í varnarmenn og í sömu andrá flautar Gunnar Oddur til leiksloka. Verðskuldaður KR sigur í dag, skýrsla og viðtöl væntanleg.
89. mín
Rúnar Már tekur spyrnuna en Arnar stekkur út úr markinu og grípur boltann. Leggst svo niður með krampa og fær liðsfélaga sína til að teygja á sér.
88. mín
Gult spjald: Aron Þórður Albertsson (KR)
Gult spjald: Aron Þórður Albertsson (KR)
Tekur ansi hressilega tæklingu á Gísla Laxdal sem er að sleppa fram hjá honum.
87. mín
KR fá horn og vilja meina að þeir hafi komið boltanum yfir marklínuna en Gunnar Oddur og teymið telja Árna Marinó hafa varið á línunni.
86. mín
Aron Sig skýtur úr aukaspyrnunni en skotið beint á Árni Marinó sem kílir boltann frá.
85. mín
Gult spjald: Jón Gísli Eyland Gíslason (ÍA)
Gult spjald: Jón Gísli Eyland Gíslason (ÍA)
Tekur Fannar Heimisson ansi hressilega niður.
83. mín
MARK!
MARK! Luke Rae (KR)
Stoðsending: Ástbjörn Þórðarson
Stoðsending: Ástbjörn Þórðarson
5-1!
Ástbjörn er allt í einu sloppinn í gegn á hægri kantinum, rennir boltanum fyrir markið á Luke Rae sem mun ekki skora mikið auðveldara mark á ferlinum og þarf bara að rúlla boltanum inn.
82. mín
Skagamenn svo nálægt því að ná að refsa KR fyrir það hvað Arnar er langt út úr markinu en hann er snöggur til baka og nær að tækla og bjargar á línu.
81. mín
Jón Gísli finnur Gísla Laxdal inn á teignum sem fer í skot en það fer af varnarmanni.
80. mín
Aron Sig er með boltann inn á teignum og reynir skot en það er nokkuð laust og beint á Árna Marinó.
78. mín
Rúnar Már tekur spyrnuna á fjær þar sem Viktor Jóns skallar boltann fyrir markið en boltinn var kominn út af og KR eiga markspyrnu.
76. mín
Arnar Freyr liggur og þarf aðhlynningu. Hann stendur þó upp á endanum og ætlar að halda leik áfram.
74. mín
Akoto og Viktor eigast við inn á teginum og Skagamenn vilja víti en ekkert dæmt.
72. mín
Inn:Ástbjörn Þórðarson (KR)
Út:Galdur Guðmundsson (KR)
Engin þrenna á Galdur í dag.
71. mín
MARK!
MARK!Eiður Gauti Sæbjörnsson (KR)
Snöggir að kvitta
Aron Sig finnur Luke Rae á fjær. Hann skallar boltann fyrir markið, inn á merkteiginn, þar sem Eiður Gauti stendur aleinn, tekur boltann niður og setur hann fram hjá Árna Marinó.
69. mín
MARK!
MARK!Markús Páll Ellertsson (ÍA)
Stoðsending: Johannes Vall
Stoðsending: Johannes Vall
Þeir minnka muninn.
Skagamenn gera vel í að spila upp völlinn. Johannes Vall fær boltann úti vinstra megin og setur fullkomna fyrirgjöf á milli varnar og markmanns sem Markús Páll tekur í fyrsta og skilar í netið.
62. mín
Aron Sig kominn inn á teiginn og fer í skotið. Hefði líklega átt að finna einhvern samherja í teignum þarna en markametið kallar.
58. mín
Sigurður Breki og Galdur spila vel á milli sín og Galdur er kominn í fína stöðu inn á teignum en á þunga snertingu og Árni Marinó grípur inn í .
55. mín
Gísli Eyjólfs með lúmskt skot sem að Arnar Freyr þarf að hafa sig allan við að verja og Skagamenn fá horn. Jón Gísli tekur hornið stutt, fær hann á endnum aftur og ætlar þá að setja hann inní teiginn en boltinn fer hátt yfir markið.
52. mín
Viktor gerir vel í pressunni og endar á því að finna Gísla Laxdal. Hann gerir mjög vel og kemst fram hjá varnarmanni KR og er kominn í afbragðs færi en Arnar er snöggur út úr markinu og Gísli endar á því að setja skotið fram hjá.
51. mín
Gísli Laxdal finnur Viktor Jóns inná teignum, hann nær skotinu en Arnar ver frá honum .
50. mín
Gabríel Hrannar reynir fyrirgjöf sem er skölluð frá og VIktor Jóns skallar boltann svo aftur fyrir, KR eiga horn. Arnór Ingvi tekur spyrnuna inn á teiginn þar sem Skagamen eru í vandræðum að koma boltanum í burtu, KR ná á endanum skoti en það er laust og beint á Árna Marinó.
45. mín
Hálfleikur
KR-ingar leiða verðskuldað í hálfleik. Þeir hafa verið miklu betra liðið hér í dag þrátt fyrir að Skagamenn hafi aðeins tekið sig saman í andlitinu síðustu 15.
39. mín
Gult spjald: Styrmir Jóhann Ellertsson (ÍA)
Gult spjald: Styrmir Jóhann Ellertsson (ÍA)
Mjög klaufalegt brot á Galdri á miðjulínunni.
37. mín
Þriðja tilraun Skagamanna að skjóta af löngu færi. Nú er það Gísli Eyjólfs en hann setur boltann næstum því í hornfánann.
35. mín
Jón Gísli í góðu færi og á skot sem fer af varnarmanni og aftur fyrir, aftur fá ÍA horn en nú fer spyrnan aftur fyrir hinum megin.
34. mín
Gísli Laxdal kemur með boltann inn á teiginn þar sem Viktor tekur á móti honum en hann og Gísli Eyjólfs þvælast fyrir hvorum öðrum og KR fá markspyrnu.
32. mín
Enn fá gestirnir horn og nú fer spyrnan yfir allan pakkann og í innkast hinum megin.
31. mín
Luke Rae keyrir inn að markinu vinstra megin í teignum og lætur vaða. Árni Marinó slær boltann út í teiginn þar sem Sigurður Breki fær opin marktækifæri en skotið er yfir.
30. mín
Aftur reyna Skagamenn skot lengst utan af velli í þeirri von um að setja hann yfir Arnar Frey en aftur hitta þeir ekki markið.
28. mín
Markús Páll í dauðafæri inn á teignum, enginn í honum, en hann hittir ekki rammann. Hann hefur verið ólíkur sjálfum sér framan af þessum leik.
23. mín
Gult spjald: Arnór Ingvi Traustason (KR)
Gult spjald: Arnór Ingvi Traustason (KR)
Hrindir Gísla Eyjólfs með báðum höndum, veit ekki alveg hver pælingin var með þessu. Réttilega gult spjald.
21. mín
MARK!
MARK!Galdur Guðmundsson (KR)
Blússandi, brakandi bolti!
KR eru að sundurspila miðju gestanna hérna trekk í trekk og í þetta skiptið eru það Sigurður Breki og Eiður Gauti sem spila einnar snertingar bolta á milli sín og sá síðarnefndi finnur Orra Hrafn í gegn. Hann er kominn í gott færi, lætur vaða en Árni Marinó ver. Boltinn fer þó ekki langt frá markinu og Galdur kemur á siglingunni og skilar boltanum í netið áður en Árni nær til hans aftur.
19. mín
Arnar Freyr er að spila sem einhverskonar hægri bakvörður í uppspili KR og er oft á tíðum kominn langt að miðjulínunni úti hægra megin. Jón Gísli ætlar að nýta sér þetta og reynir skot langt úti á velli þegar Arnar er að koma sér aftur í markið en skotið er langt frá því að hitta ramann.
18. mín
Skagamenn ná að halda KR inn á teignum og halda sókninni áfram. Gísli Laxdal endar á því að fá færi en skotið hans er hátt yfir markið.
14. mín
MARK!
MARK!Sigurður Breki Kárason (KR)
Aleinn og óáreittur
Sigurður Breki fær boltann í miðjuhringnum, keyrir upp allan völlinn án þess að Skagamenn alvöru tilraun til þess að ná af honum boltanum. Hann hefur nægan tíma til að stilla miðið, kemur sér inn í d-bogann, lætur vaða og skotið er hárnákvæmt niðri vinstra megin.
13. mín
Frábært spil KR-inga endar á því að Eiður Gauti virðist vera að sleppa einn í gegn en snertingin hans er þung og beint til Árna
12. mín
Haukur Andri tekur aukaspyrnu hratt en Finnur Tómas les hann og kemst inn í sendinguna, finnur Aron Sig fyrir utan d-bogann. Hann leggur boltann fyrir sig og fer í skotið en það er fram hjá.
10. mín
Skagamenn sækja hratt og Gísli Laxdal er kominn í fína stöðu, skýtur en skotið af varnarmanni og aftur fyrir. KR skalla hornið svo aftur fyrir hinum megin og gestirnir fá annað horn sem þeir ná ekki að nýta.
9. mín
Galdur er kominn inn á teig KR og lætur bara vaða. Boltinn virðist fara af Böðvari og Árni Marinó þarf að hafa sig allan við til að blaka boltanum yfir markið. Þeir ná svo ekki að nýta hornið.
7. mín
MARK!
MARK!Galdur Guðmundsson (KR)
Stoðsending: Orri Hrafn Kjartansson
Stoðsending: Orri Hrafn Kjartansson
Slútt!!
Orri Hrafn gerir frábærlega á miðjunni, leikur á þá nokkra og keyrir af stað. Hann finnur Aron Sig, hleypur svo í næsta svæði, inn á teiginn og fær boltann aftur. Hann setur boltann fyrir markið þar sem Eiður Gauti virðist reyna hælspyrnu, hittir ekki boltann sem fer í gegnum allan teiginn, endar hjá Galdri sem þrumar boltanum upp í þaknetið.
5. mín
Mistök í uppspili KR og Skagamenn eru komnir í dauðafæri en Arnar Freyr gerir vel í makrinu og ver.
4. mín
Gísli Eyjólfs nær frábærum snúning á milli tveggja á miðjunni og keyrir af stað áður en hann finnur Markús Pál. Fyrsta snertingin svíkur hann en hann nær þó að vinna horn. Þeir ná svo ekki að nýta hornið.
3. mín
Gestirnir fá fyrsta horn leiksins. Jón Gísli tekur hornið en sendingin er ekki góð. Markús Páll nær þó til hans og þeir halda sókninni áfram, koma boltanum fyrir en KR skalla frá.
2. mín
Aftur fær Sigurður Breki færi eftir sendingu frá Luke Rae en skotið er yfir í þetta skiptið.
1. mín
Sigurður Breki svo nálægt því að koma heimamönnum yfir. Luke Rea finnur hann úti í teignum, Sigurður Breki tekur vel á móti honum og nær góðu skoti en Árni Marinó vandanum vaxinn í markinu og ver.
Fyrir leik
Ég á erfitt með að kaupa það að KR tapi 2x i röð fyrir ÍA og þetta skipti á heimavelli. KR -1 er 1.8 á Epic. Yfir 5 mörk er einnig fínt veðmál á 2.02
— Kristalkúlan (@kristalkulan) September 13, 2026
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi
Helstu fréttirnar eru þær að Arnar Freyr Ólafsson kemur inn í markið hjá KR en hann hefur verið að glíma við meiðsli í allt sumar eftir að hafa farið meiddur út af eftir tíu mínútur í fyrsta leik. Hann kom inn á í hálfleik í síðasta leik og kemur inn í byrjunarliðið í dag fyrir Halldór Snæ Georgsson sem fær sér sæti á bekknum.
Óskar gerir tvær aðrar breytingar en inn í liðið koma þeir Luke Rae og Sigurður Breki Kárason. Úr liðinu koma þeir Ástbjörn Þórðarson, sem fær sér einnig sæti á bekknum, og Hrafn Tómasson sem tekur út leikbann eftir að hafa fengið sitt fjórða gula spjald í síðasta leik.
Lárus Orri breytir ekki sigurliði og mætir til leiks með óbreytt byrjunarlið frá heimaleiknum gegn KR.
Óskar gerir tvær aðrar breytingar en inn í liðið koma þeir Luke Rae og Sigurður Breki Kárason. Úr liðinu koma þeir Ástbjörn Þórðarson, sem fær sér einnig sæti á bekknum, og Hrafn Tómasson sem tekur út leikbann eftir að hafa fengið sitt fjórða gula spjald í síðasta leik.
Lárus Orri breytir ekki sigurliði og mætir til leiks með óbreytt byrjunarlið frá heimaleiknum gegn KR.
Fyrir leik
Dómaratríóið
Gunnar Oddur Hafliðason er maðurinn á flautunni í dag og með honum eru þeir Kristján Már Ólafs og Ronnarong Wongmahadthai á sitthvorri línunni. Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson er fjórði dómari.

Fyrir leik
ÍA
Skagamenn, eins og hefur komið fram, unnu sinn lokaleik fyrir tvískiptingu gegn KR á ELKEM vellinum á Akranesi. Þeir hafa verið að rétta úr kútnum í eftir vonda byrjun á mótinu og uppskáru þar af leiðandi sæti í efri hlutanum. Þeir eru ekki með neinn rauðan punkt í síðustu fimm en þeir gerðu tvö jafntefli og unnu tvo leiki á lokasprettinum.

Fyrir leik
KR
KR-ingar enduðu mótið fyrir tvískiptingu í þriðja sæti eftir að hafa tapað, einmitt fyrir ÍA, í lokaleik sínum. Í síðustu fimm leikjum hafa þeir safnað átta stigum, eitt tap, tvö jafntefli og tvö töp og náðu ekki að saxa á forystu Víkinga þegar tækifæri gafst. Það verður áhugavert að sjá þennan leik en KR hafa spilað illa á grasi í sumar og var engin undantekning á því þegar þeir mættu ÍA á Skaganum í síðasta leik, allar líkur á að við sjáum allt aðra sviðsmynd á teppinu í Vesturbænum.



