Besta karla - Neðri hluti
PEPSI völlurinn
24.10.2026 - 14:00
Aðstæður: 2 gráður en það er sunny
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
FH
1
2
Þór
Adolf Daði Birgisson '7 1-0
1-1 Þorri Ingólfsson '17
1-2 Þorri Ingólfsson '19
Oliver Stefánsson '94
Liðsuppstilling Liðsuppstilling
Áhorfendur: 867
Maður leiksins: Þorri Ingólfsson
Byrjunarlið:
1. Jökull Andrésson (m) 25
2. Birkir Valur Jónsson 27 ('62)
5. Oliver Stefánsson 24
7. Kjartan Kári Halldórsson 23
9. Kristján Flóki Finnbogason 31 ('62)
14. Adolf Daði Birgisson 22 ('62)
17. Jóhannes Kristinn Bjarnason 21
22. Ísak Óli Ólafsson (f) 26
32. Gils Gíslason 18 ('74)
37. Baldur Kári Helgason 21
40. Róbert Hugi Sævarsson 16 ('72)
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
24. Daði Freyr Arnarsson (m) 28
6. Grétar Snær Gunnarsson 29
11. Guðmundur Andri Tryggvason 26 ('62)
36. Aron Gunnar Matus 16
38. Arngrímur Bjartur Guðmundsson 21 ('62)
39. Benjamín Bæring Þórsson 18 ('72)
41. Ásgeir Steinn Steinarsson 18 ('62)
42. Víkingur Hrafn Þórhallsson 14
90. Arnór Borg Guðjohnsen 26 ('74)
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Jóhannes Karl Guðjónsson (Þ) aldur 46
Arnar Sigþórsson (Leikgr.) aldur 25
Benjamin Gordon Mackenzie (Styrktarþj.) aldur 33
Númi Már Atlason (Sjúkraþj.) aldur 28
Kjartan Sturluson (MÞ) aldur 50
Guðmundur Jón Viggósson (Liðsstj.) aldur 49
Árni Freyr Guðnason (AÞ) aldur 40

Gul spjöld:
Oliver Stefánsson ('63)
Ísak Óli Ólafsson ('84)

Rauð spjöld:
Oliver Stefánsson ('94)
Byrjunarlið:
1. Aron Birkir Stefánsson (m) (f) 27
2. Ásbjörn Líndal Arnarsson 18
6. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson 27
8. Einar Freyr Halldórsson 18 ('92)
15. Kristófer Kristjánsson 22 ('62)
16. Bjarni Guðjón Brynjólfsson 22
18. Sverrir Páll Ingason 17 ('80)
22. Ágúst Eðvald Hlynsson 26
23. Kevin Vazquez Comesaña 33
25. Christian Greko Jakobsen 33
31. Þorri Ingólfsson 17 ('74)
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
28. Franko Lalic (m) 35
3. Birgir Ómar Hlynsson 25 ('62)
5. Yann Emmanuel Affi 30
7. Atli Sigurjónsson 35 ('92)
9. Victor Bertomeu 34
17. Fannar Daði Malmquist Gíslason 29 ('74)
27. Haraldur Ágúst Brynjarsson 19
30. Peter Ingi Helgason 18
37. Sigfús Fannar Gunnarsson 24 ('80)
- Meðalaldur 28 ár

Liðsstjórn:
Sigurður Heiðar Höskuldsson (Þ) aldur 41
Halldór Mar Einarsson (Liðsstj.) aldur 28
Stefán Ingi Jóhannsson (Sjúkraþj.) aldur 32
Eiður Benedikt Eiríksson (AÞ) aldur 34
Arnar Geir Halldórsson (Forráðam.) aldur 34
Elín Rós Jónasdóttir (Sjúkraþj.) aldur 36

Gul spjöld:
Sverrir Páll Ingason ('71)
Kevin Vazquez Comesaña ('94)

Rauð spjöld:

Leik lokið!
Váááááa, þetta er búið. Þór heldur sér uppi og KA er fallið. Senur, ótrúlegt. Takk fyrir mig, skýrsla og viðtöl á leiðinni. Stuðningsmenn komnir inn á völlinn.
94. mín Gult spjald: Kevin Vazquez Comesaña (Þór )
Fyrir kvart.
94. mín Rautt spjald: Oliver Stefánsson (FH)
Seinan gula spjaldið.
92. mín
Inn:Atli Sigurjónsson (Þór ) Út:Einar Freyr Halldórsson (Þór )
91. mín
Þór fær horn en þeir taka það ekki og verja boltann við hornið.
90. mín
+4 í uppbótartíma.
89. mín
Dauðafæri
Einar tekur boltann af Jóa Bjarna, kemst framhjá einum og skýtur beint á Jökul, þetta á að vera 3-1.
86. mín
Dauðafæri
Sgifús keyrir upp hægri kantinn og sendir fram fyrir markið á Jakobsen sem tekur mjög máttlaust skot sem Jökull ver.
84. mín Gult spjald: Ísak Óli Ólafsson (FH)
Ásbjörn með háan bolta fram á Sigfús og Ísak knúsar hann niður.
83. mín
Ágúst kemst í gott færi fyrir utan teiginn, skotið er í varnarman og Jökull grípur,
80. mín
Inn:Sigfús Fannar Gunnarsson (Þór ) Út:Sverrir Páll Ingason (Þór )
80. mín
Sigfús er loksins komin á.
79. mín
Hvað er að gerast
Siggi Höskulds er brjálaður veit ekki af hverju og það þarf að ýta honum og segja honum að setjast niður. Sverrir Páll var farin út af fyrir Sigfús en það var ekki búið að gera skiptinguna, ég tók ekki eftir þessum. Þetta er smá trúða show.
76. mín
Þorri tekin niður í teignum
Þorri er tekin niður í teignum. Stuðningsmenn Þórs eru brjálaðir og eru byrjaðir að kasta glösum og flöskum inn á völlinn, hvað er að gerast. Aron markmaður og fyrirliði lætur stuðningsmenn sína heyra það.
75. mín
Dauðafæri
Þór í 3v3. Þorri með boltann og sendir á Einar sem er á fjær. Einar neglir beint á Jökul í markinu.
75. mín
KA 5-1 ÍBV
Adam Ægir með markið.
74. mín
Inn:Fannar Daði Malmquist Gíslason (Þór ) Út:Þorri Ingólfsson (Þór )
Dauðafæri
Sigfús keyrir upp hægri kantinn og sendir fram fyrir markið á Fannar sem
74. mín
Inn:Arnór Borg Guðjohnsen (FH) Út:Gils Gíslason (FH)
72. mín
Inn:Benjamín Bæring Þórsson (FH) Út:Róbert Hugi Sævarsson (FH)
71. mín
Kjartan með hættulega aukaspyrnu, beint á Arngrím sem skallar yfir.
71. mín Gult spjald: Sverrir Páll Ingason (Þór )
70. mín
Hætta
Þór fær horn, boltinn er skallaður burt en hann dettur á Ágúst sem tekur skotið en Jökull grípur boltann.
69. mín
Ásgeir Steinn reynir að vippa yfir vörn Þórs á Gils en Ásbjörn nær að skalla boltanum á Aron í markinu sem tekur boltann upp.
68. mín
Dauðafæri en rangstaða
Einar með svaka bolta úr aukaspyrnu inn í teig á Ásbjörn sem skallar boltann niður á Bjarna sem skýtur en Jökull ver. Áður en FH kemur boltanum burt flaggar dómarinn.
66. mín
Nálægt
Þorri fær boltann og skýtur rétt framhjá markinu, þrennan er að banka.
63. mín Gult spjald: Oliver Stefánsson (FH)
62. mín
Inn:Birgir Ómar Hlynsson (Þór ) Út:Kristófer Kristjánsson (Þór )
62. mín
Inn:Guðmundur Andri Tryggvason (FH) Út:Kristján Flóki Finnbogason (FH)
62. mín
Inn:Ásgeir Steinn Steinarsson (FH) Út:Adolf Daði Birgisson (FH)
62. mín
Inn:Arngrímur Bjartur Guðmundsson (FH) Út:Birkir Valur Jónsson (FH)
62. mín
Hættuleg aukaspyrna fyrir Þór. Einar kemur með góða sendingu inn í teig, Óliver nær að skalla boltann en í áttina að markinu, boltinn dettur á Bjarna sem missir hann í markspyrnu.
60. mín
KA 4-1 ÍBV
Hallgrímur Mar skorar fjórða mark KA.
59. mín
Kristófer fær boltann fyrir utan teiginn og lætur vaða, skotið fer framhjá markinu.
57. mín
Sláin
Kjartan tekur horn og sendir hátt beint á Ísak sem skallar í slána og út í markspyrnu.
56. mín
FH vill víti
FH vill hendi inn í vítateig Þórs en Helgi segir nei. Gils keyrir inn í teiginn og vippar boltanum í höndina hjá Vazquez
55. mín
Jakobsen fær boltann í hausinn, Helgi Mikael skipar Jakobsen að fara út af og fá aðhlynningu.
53. mín
Langt innkast inn í teig Þórs. Boltinn er skallaður burt en hann dettur á Jóa sem neglir boltanum yfir markið, líklega datt boltinn á eitthvern bíl.
50. mín
Ásbjörn með glataða sendingu til baka á Aron og Þór fær horn á sig. Þór nær að skalla boltann burt.
48. mín
Horn
Kjartan Kári tekur horn fyrir Þór, sending inn í teig á Ísak Óla sem skallar yfir markið.
47. mín
Þór í sókn, en þeir ná ekki skot tækifærinu og enda á því að missa boltann frá sér í markspyrnu.
46. mín
Áhorfendatölur
867 manns.
46. mín
Seinni hálfleikur
FH byrjar.
45. mín
Hálfleikur
Tölfræði fyrri hálfleiks
Mynd: Fótbolti.net

45. mín
Helgi Þór Gunnarsson er með myndavélina
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

45. mín
Hálfleikur
Vá, litla stemmingin. Leikurinn er búinn að vera frekar jafn hingað til, bæði lið eru líkleg til þess að skora. Það kom stórt atvik á 32. mínútu þar sem Þór átti að fá víti, ég enn skil ekki af hverju dómarinn dæmdi ekki víti.

KA er að vinna gegn ÍBV 3-1. Það skiptir engu máli þar sem Þór þarf að vinna leikinn sinn til þess að halda sér uppi.
45. mín
Hættaa
Kjartan Kári keyrir inn í teiginn, missir boltann frá sér en boltinn dettur á Jóa Bjarna sem sendir á Kristján Flóka sem skýtur yfir markið.
45. mín
+2 í uppbótartíma.
44. mín
Nálæggttt
Hár bolti í áttina að teig FH, Óliver skallar en boltinn dettur á Jakobsen sem vippar yfir Jökul. Rétt framhjá markinu.
42. mín
2-1 fyrir KA
Mikael Breki Þórðarson búinn að skora, staðan er 2-1. En KA er samt að falla þar sem Þór er að vinna.
41. mín
Þór í sókn en Ágúst dettur niður áður en hann nær skotinu.
40. mín
Kristján Flók brýtur á Vazquez sem liggur niðri í smá stund, Kristján reynir að sparka í boltann sem er hjá Vazquez þegar hann er niðri. Ég hef séð gult gefið fyrir þetta brot.
38. mín
Hætta
Gils fær boltann inn í teiginn og kemst í gott færi nálægt markinu, Gils neglir yfir markið.
34. mín
Kjartan Kári með sendingu inn í teig á Kristján Flóka en Vazquez blokkar sendinguna.
32. mín
Þór vill víti
Þorri keyrir upp hægri kantinn og kemst inn í teig þangað til að hann dettur niður. Baldur Kári tekur hann niður en Helgi Mikael segir nei. Stuðningsmenn Þórs og Siggi eru brjálaðir. Þetta er víti að mínu mati.

Eftir að hafa skoðað brotið í útsendingu, þá get ég sagt að þetta er pjúra víti. Helgi Mikael á að sjá þetta. Baldur stígur á Þorra.
30. mín
Aron Birkir er sestur niður, markmaður og fyrirliði Þórs.

Hann heldur áfram að spila og tekur markspyrnuna.
30. mín
FH í sókn. Adolf Daði sendir á Kristján Flóka sem tekur skotið sem fer rétt framhjá markinu.
29. mín
Þór í skyndisókn, Þorri með háa sendingu inn í teig sem Jökull grípur.
28. mín
Lítið að gerast akkúrat núna, leikurinn er rólegur. FH eru að halda í boltann og eru að reyna að spila sig í gegn.
25. mín
Stuðningsmenn Þórs að henda eitthverjum hlutum inn á völlinn, vallarþulurinn er að skamma þá. Ótrúleg stemming hjá Þór í dag.
24. mín
Aukaspyrna fyrir Þór, boltinn dettur niður í teignum og á Ágúst sem skýtur yfir markið.
23. mín
Það er allt að gerast, eftir að FH tók yfir leikinn þá er Þórsarar mættir til leiks og eru byrjaðir að taka yfir. Senur.
21. mín
ÍBV að jafna
Heiðmar Þór Magnússon að skora, það er 1-1. KA eru að falla, Þór er að halda sér uppi.
19. mín MARK!
Þorri Ingólfsson (Þór )
Stoðsending: Bjarni Guðjón Brynjólfsson
Jahérna hér, hvað er að gerast.

Bjarni Guðjón fær boltann fyrir utan teiginn og lætur vaða beint í stöngina. Boltinn fer í stöngina og út í teiginn á Þorra sem skorar, líklegasta auðveldasta mark sem hann getur skorað á sínum ferli.
17. mín MARK!
Þorri Ingólfsson (Þór )
FH fær horn, það kemur ekkert úr því, en allt í einu eru tveir Þórs leikmenn sloppnir í gegn þegar Aron neglir boltanum fram. Ágúst er sloppin í gegn en Óliver nær honum og blokkar svo skotið. Boltinn fer svo á Þorra sem skýtur beint á Jökul sem nær ekki að verja hann, Jökull átti að verja þetta.
15. mín
Stönginnnnn
FH eru með öll völd inn á vellinum. Kristján Flóki fær boltann á vinstri kantinum, sendir inn í teig á Adolf sem sendir á Jóa Bjarna sem skýtur í stöngina. Hársbreidd frá því að skora annað mark leiksins. Boltinn fer á Gils sem neglir í hliðarnetið.
14. mín
Óliver Stefáns með langt innkast inn í teig Þórs, smá ping pong inn í teignum en Þór kemur boltanum burt.
12. mín
Gils fær boltann á hægri kantinum og ætlar að keyra á vörn Þórs en hann missir boltann frá sér.
10. mín
Hætta
Þór með hættulega aukaspyrnu sem Einar tekur. Góð sending inn í teig á Gyrði sem skallar framhjá.
8. mín
Þórsarar hafa fjölmennt
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

7. mín MARK!
Adolf Daði Birgisson (FH)
Stoðsending: Gils Gíslason
Hár bolti upp hægri kantinn frá Birki Val á Gils sem keyrir á vörn Þórs. Gils kemur með fyrirgjöf fram fyrir markið og Adolf hleypur inn í teiginn og neglir honum inn.

Þór er að falla, þar sem KA er komið yfir 1-0.
7. mín
Hætta
Kjartan Kári fær boltann inn í teignum og skýtur rétt framhjá markinu, hefði verið fallegt.
6. mín
KA er komið yfir
Jakob Snær var að skora, 1-0 fyrir KA. Þór er að fara niður.
5. mín
Sláinnn
Þór í skyndisókn, Jökull hleypur út úr markinu og Ágúst Eðvald vippar yfir hann og boltinn fer í slána og skoppar út í teiginn þangað til að Jökull tekur boltann upp.
5. mín
Hætta
Kjartan Kári tekur aukaspyrnuna, sendingin eða skotið er beint á markið og Aron þarf að lemja boltann burt.
4. mín
FH fær aukaspyrnu við hornfánan Þórs megin á vellinum, smá stimpingar þar sem nokkrir leikmenn fara niður en Gils er tekinn niður.
2. mín
,,Velkomnir í Þorpið" syngja stuðningsmenn Þórs.
1. mín
Þórsar strax komnir í sókn, en þeir ná ekki að skot tækifæri. FH nær boltanum til baka.
1. mín
Leikur hafinn
Þórsarar byrja. Alvöru stemming á vellinum.

Hver mun falla, er það KA eða Þór? Sjáum til eftir 90 mín!
Fyrir leik
Stemming á vellinum
Þórsarar eru að fjölmenna og eru háværir fyrir leikinn. Mætti halda að þetta sé heimaleikur fyrir þá. Allt undir í dag og er ekkert annað hægt en að mæta með læti. Það eru nokkrir FHingar í stúkunni.
Fyrir leik
Kristalkúlan hefur talað

Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin
Þorri Ingólfs fær traustið áfram eftir að hafa spilað vel gegn Stjörnunni.

Fyrir leik
Leikurinn færður
Leikurinn í dag átti að vera í Kaplakrika, en hann hefur verið færður á Pepsi Völlinn, heimavöll Þróttara.

Fyrir leik
Innkastið í beinni á X977 klukkan 18
Mynd: Fótbolti.net

Umferðin verður gerð upp í sérstökum lokaþætti Innkastsins sem verður í beinni á X977 klukkan 18:00. Þátturinn kemur síðan inn á hlaðvarpsveitur í kjölfarið.

Besta karla - Efri hluti
14:00 KR-Breiðablik (Meistaravellir)
14:00 ÍA-Keflavík (Akraneshöllin)
16:15 Víkingur R.-Fram (Víkingsvöllur)

Besta karla - Neðri hluti
14:00 Stjarnan-Valur (Samsungvöllurinn)
14:00 FH-Þór (Kaplakrikavöllur)
14:00 KA-ÍBV (Greifavöllurinn)
Fyrir leik
Þriðja liðið
Helgi Mikael Jónasson er með flautuna. Ragnar Þór Bender og Jovan Subic verða með flöggin. Jóhann Ingi Jónsson er með skiltið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Allt undir hjá Þór
Þór þarf sigur í dag til að tryggja sér sæti í deild þeirra bestu og senda erkifjendurna í KA niður í Lengjudeildina. Ef Þór nær ekki að sigra þurfa þeir að treysta á að Linti og félagar hans í ÍBV geri þeim greiða og vinni fyrir norðan.

Þór situr í 10. sæti með 27 stig og KA er í 11. sæti með 26 stig. Þessi botnbaráttuslagur er tæpur en Þór getur líklega ekki treyst á markatölu þar sem þeir eru með verstu markatöluna í sumar eða -31. En við höfum öll séð það ótrúlega, en ég trúi því nú ekki að Siggi ætli að tapa svona stórt í dag.

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Fyrir leik
Heimaliðið FH
Eftir 26 leiki þá er FH í 9. sætinu með 30 stig, 7 sigrar, 9 jafntefli og 10 töp. FH getur ekki fallið né unnið forsetabikarinn, þessi leikur skiptir kannski engu máli en ég trúi því að heimamenn vilji enda tímabilið sterkt. Þetta er fyrsta tímabilið hjá þjálfaranum Jóa Kalla sem tók yfir liðið síðasta vetur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Kjartan Kári hefur átt frábært tímabil með FH og verið einn af lykilmönnum liðsins. Hann hefur skorað 8 mörk og lagt upp 11 til viðbótar. Má segja að hann sé afar mikilvægur fyrir heimamenn. Það voru sögur um það að Víkingur vildi fá hann í sumar en hann ákvað að vera áfram í Hafnafirðinum. Kjartan hefur spilað 3 leiki í neðri hlutanum og skorað 3 mörk.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Kaplakriki heilsar
Heil og sæl kæru lesendur, verið velkomin á þessa lýsingu milli FH og Þór. Þetta er síðasta umferðin í Bestu Deild karla og eru allir leikirnir spilaðir á sama tíma. Fotbolti.net er á öllum leikjunum eins og alltaf.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.


Umferðin í dag
14:00 KR-Breiðablik
14:00 ÍA-Keflavík
14:00 Stjarnan-Valur
14:00 FH-Þór
14:00 KA-ÍBV
16:15 Víkingur R.-Fram