Besta karla - Efri hluti
Akraneshöllin
24.10.2026 - 14:00
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
ÍA
4
4
Keflavík
Markús Páll Ellertsson '11 1-0
1-1 Alpha Conteh '17
Gísli Laxdal Unnarsson '22 2-1
Styrmir Jóhann Ellertsson '38 3-1
3-2 Eiður Orri Ragnarsson '45
3-3 Alpha Conteh '48
3-4 Axel Ingi Jóhannesson '56
Gísli Eyjólfsson '74 4-4
Liðsuppstilling Liðsuppstilling
Maður leiksins: Eiður Orri
Byrjunarlið:
1. Árni Marinó Einarsson (m) 24
3. Johannes Vall 34 ('81)
5. Baldvin Þór Berndsen 22
7. Haukur Andri Haraldsson 21 ('58)
9. Viktor Jónsson 32
11. Gísli Eyjólfsson 32
16. Rúnar Már S Sigurjónsson (f) 36 ('58)
17. Gísli Laxdal Unnarsson 25 ('35)
25. Markús Páll Ellertsson 20
27. Brynjar Óðinn Atlason 17
87. Styrmir Jóhann Ellertsson 18 ('81)
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
8. Guðmundur Þórarinsson 34 ('58)
10. Steinar Þorsteinsson 28
18. Rafael Máni Þrastarson 19
20. Ísak Máni Guðjónsson 21 ('81)
21. Böðvar Böðvarsson 31 ('58)
22. Ómar Björn Stefánsson 22 ('35)
31. Isak Theodor Eidem 17
44. Guðmar Gauti Sævarsson 18
66. Jón Gísli Eyland Gíslason 24 ('81)
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Lárus Orri Sigurðsson (Þ) aldur 53
Aron Ýmir Pétursson (AÞ) aldur 36
Salvar Georgsson (Forráðam.) aldur 39
Mario Majic (Sjúkraþj.)
Emil Ásmundsson (Styrktarþj.) aldur 31
Teitur Pétursson (Liðsstj.) aldur 33
Dino Hodzic (MÞ) aldur 30

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Byrjunarlið:
1. Ásgeir Orri Magnússon (m) 22
2. Elvis Bwomono 27
3. Axel Ingi Jóhannesson 22
6. Sindri Snær Magnússon (f) 34 ('75)
7. Dagur Ingi Valsson 27 ('46)
10. Stefan Ljubicic 27 ('83)
20. Marin Brigic 26
21. Alpha Conteh 26
23. Eiður Orri Ragnarsson 22
42. Baldur Logi Brynjarsson 18 ('75)
47. Egill Valur Karlsson 17 ('69)
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
30. Rafal Stefán Daníelsson (m) 24
4. Nacho Heras 35
15. Arnór Atli Aðalbjörnsson 17 ('83)
22. Ásgeir Páll Magnússon 26 ('69)
25. Frans Elvarsson 36 ('46)
26. Rúnar Leó Hólmarsson 18
28. Viktor Árni Traustason 19 ('75)
77. Mihajlo Rajakovac 18
88. Mate Simicic 21 ('75)
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Haraldur Freyr Guðmundsson (Þ) aldur 44
Guðmundur Árni Þórðarson (Forráðam.) aldur 40
Karlo Bacinger (Sjúkraþj.)
Jónas Guðni Sævarsson (Leikgr.) aldur 42
Ómar Jóhannsson (MÞ) aldur 45
Óskar Rúnarsson (Leikgr.) aldur 36
Hólmar Örn Rúnarsson (AÞ) aldur 44

Gul spjöld:

Rauð spjöld:

Leik lokið!
Þetta er búið. Tímabilið búið.
Ég þakka fyrir mig, viðtöl og skýrsla væntanleg!
92. mín
Stönginn!
Jón Gísli fær boltann frá Ómari birni. Jón Gísli skrúfar hann í stöngina!
90. mín
Skagamenn fá hornspyrnu!
88. mín
Keflavík fá annað horn!
86. mín
Skagamenn vilja vítaspyrnu ég sá ekki almennilega hvað gerist!
83. mín
Inn:Arnór Atli Aðalbjörnsson (Keflavík) Út:Stefan Ljubicic (Keflavík)
Kveðjuleikur Ljubicic?
81. mín
Inn:Ísak Máni Guðjónsson (ÍA) Út:Johannes Vall (ÍA)
Johannes Vall er einnig að kveðja Skagan og fær heiðursskiptingu!
81. mín
Inn:Jón Gísli Eyland Gíslason (ÍA) Út:Styrmir Jóhann Ellertsson (ÍA)
80. mín
Þetta var varsla!
Stefan Ljubicic í góðri stöðu og á gott skot sem Árni ver virkilega vel í horn!
75. mín
Inn:Mate Simicic (Keflavík) Út:Sindri Snær Magnússon (Keflavík)
75. mín
Inn:Viktor Árni Traustason (Keflavík) Út:Baldur Logi Brynjarsson (Keflavík)
74. mín MARK!
Gísli Eyjólfsson (ÍA)
Stoðsending: Markús Páll Ellertsson
Alvöru markaveisla!
Markús gerir virkilega vel að koma boltanum á Gísla sem er einn gegn Ásgeiri, Gísli virtist í fyrstu vera að fara klikka á þessu en kemur boltanum framhjá Ásgeiri og í netið!
72. mín
Dauðafæri!
Eiður Orri er sloppinn einn gegn Árna, en Árni með virkilega góða vörslu!
69. mín
Inn:Ásgeir Páll Magnússon (Keflavík) Út:Egill Valur Karlsson (Keflavík)
67. mín
Lítið hefur verið að frétta síðustu 10 mín ca
58. mín
Inn:Böðvar Böðvarsson (ÍA) Út:Rúnar Már S Sigurjónsson (ÍA)
Gæsahúð!
Rúnar Már fær hér heiðursskiptingu og allir standa upp og klappa!
King Rúnar Már.
Takk fyrir allt!
58. mín
Inn:Guðmundur Þórarinsson (ÍA) Út:Haukur Andri Haraldsson (ÍA)
56. mín MARK!
Axel Ingi Jóhannesson (Keflavík)
Stoðsending: Eiður Orri Ragnarsson
Keflavík eru komnir yfir!
Eiður Orri tekur hornspyrnuna stutt á Alpah Conteh sem kemur honum aftur á Eið sem kemur með góðan bolta inná teig og Axel ingi með geggjaðan skalla sem Árni ræður enganveginn við!
54. mín
Stefan Ljubicic með sprett upp vinstri vænginn, og endar á því að bomba á vegginn og liggur eftir
52. mín
Wow hvað þetta er orðið þreytt!
Þetta er í þriðja eða fjórða skiptið sem boltinn endar uppí rjáfrum.
Smá Leingjubikars-vibe yfir þessu!
50. mín
Keflavík að byrja þetta miklu betur!
Frá upphafi seinni hálfleiks hafa Keflvíkingar verið með öll tök á vellinum. Skagamenn sofandi?
48. mín MARK!
Alpha Conteh (Keflavík)
Stoðsending: Eiður Orri Ragnarsson
Þetta var fallegt !
Alpha Conteh er að jafna fyrir Keflavík fær boltann frá Eið Orra inná teig, Alpah með alvöru skot sem endar í samskeytunum!
46. mín
Inn:Frans Elvarsson (Keflavík) Út:Dagur Ingi Valsson (Keflavík)
Keflavík gerir eina breytingu í hálfleik!
46. mín
Þetta er farið aftur af stað!
Skagamenn koma þessu af stað!
45. mín
Hálfleikur
Skemmtilegum fyrri hálfleik lokið hér.
tökum okkur 15 min!
45. mín MARK!
Eiður Orri Ragnarsson (Keflavík)
Stoðsending: Axel Ingi Jóhannesson
Keflavík að minkar muninn!
Axel Ingi með geggjaða fyrirgjöf á kollinn á Eið Orra sem á góðan skalla sem Árni ræður ekki við.
3-2!
45. mín
Tveimur mín bætt við!
45. mín
Flott varsla
Markús með góða tilraun en Ásgeir ver vel í horn.
44. mín
Eiður Orri fær ágætis kallfæri en skalli hans er yfir markið
40. mín
Skagamenn fá horn!
38. mín MARK!
Styrmir Jóhann Ellertsson (ÍA)
Hvað er Conteh að gera?
Styrmir og Conteh eru í baráttu um boltann, Conteh telur að Styrmir brjóti af sér og hættir bara og styrmir tekur boltann og er sloppinn í gegn og klárar vel.
Aldrei aukaspyrna af mínu viti!
35. mín
Inn:Ómar Björn Stefánsson (ÍA) Út:Gísli Laxdal Unnarsson (ÍA)
Gísli þarf að fara af velli meiddur enn er með mark og stoðsendingu !
33. mín
Hættulegur leikur
Alpha Conteh með flottan bolta fram á Eið Orra sem er nánast sloppinn í gegn en Árni mætir honum og rétt nær til boltans!
32. mín
Frábær sókn Skagamanna sem endar á skoti frá Markúsi í varnarmann og afturfyrir í horn.
22. mín MARK!
Gísli Laxdal Unnarsson (ÍA)
Stoðsending: Viktor Jónsson
Gísli Laxdal mark og assist!
Gísli Eyjólfs með sendingu inná teiginn á Viktor Jóns sem framlengir hann á Gísla Laxdal sem er með alvöru afgreiða og skrúfar hann í fjær!
20. mín
Sindri Snær ætlar að copya Conteh með skoti en það er laglaust beint á Árna.
17. mín MARK!
Alpha Conteh (Keflavík)
Þetta var fallegt!
Það er Alpha Conteh sem er að jafna hér fyrir Keflavík fær boltann fyrir utan teig og á geggjað skot af 25 metrum sem Árni Marínó á ekki breik í!
16. mín
Marin Brigic fær boltann inná teignum eftir fyrirgjöf en skot hans framhjá!
14. mín
Keflavík fá sínu fyrstu hornspyrnu.
11. mín MARK!
Markús Páll Ellertsson (ÍA)
Stoðsending: Gísli Laxdal Unnarsson
Skagamenn komnir yfir!
Gísli Laxdal fær boltann út við hornfánan, og á góða sendingu á Markús Pál sem tekur boltann í fyrsta niðri á nær stöngina og kemur Skagamönnum yfir!
8. mín
Leikurinn byrjar nokkuð rólega og er mikið fram og til baka!
5. mín
Johannes Vall sparkar boltanum fram en boltinn uppí þak og Keflavík fá boltann. Lágt til lofts hér.
4. mín
Johannes Vall með fína fyrirgjöf á hausinn á Viktori en skalli hans er framhjá.
1. mín
Leikur hafinn
Komið af stað!
Það eru Keflvíkingar sem byrja hér!
Fyrir leik
Efnilegastur!
Markús Páll valinn efnilegastur í Bestu deildinni og fær veittar viðurkenningu!
Fyrir leik
Liðinn ganga inn á völlinn
Lagið þetta er fyrir Tindastól hér undir fyrir fyrirliða Rúnar Má!
Fyrir leik
x
Fyrir leik
Þriðja liðið
Gunnar Freyr Róbertsson er á flautunni honum til halds og trausts eru þeir Kristofer Bergmann og Þráinn Jón Elmarsson.
Fjórði dómarinn er Elías Ingi Árnason
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Champa league Cosic spáir í þessari umferð!
ÍA 3 - 1 Keflavík
ÍA tekur þennan leik 3-1. Þetta verður frekar leiðinlegur leikur, en Haukur skorar eitt mark og Ljubicic bætir öðru við.

Fyrir leik
Markús Páll var valinn efnilegastur
Markús Páll valinn efnilegasti leikmaður tímabilsins og nokkuð ljóst að hann fari út eftir tímabil!
Fyrir leik
Keflavík með lyklana af Skaganum!
Þessi lið hafa mæst tvisvar í sumar fyrri leikurinn uppá Skaga endaði
1-3 fyrir Keflvíkinga. Seinni leikurinn fór fram suður með sjó og lauk þeim leik 5-2 fyrir heimamönnum. Markatalan er 8-3 í þessum tveimur leikjum og er óhætt að segja að Keflvíkingum líður vel gegn Skagamönnum.


Fyrir leik
Hvað verður um Lárus Orra ?
Eitt umtalaðasta málið í íslenskum fótbolta er án efa hvað verður um Lárus Orra?

Það hefur mikið verið talað um að stjórnarformenn ÍA munu reka Lárus eftir tímabilið og nafn Heimis Guðjóns þjálfara Fylkis og eins sigursælasta þjálfara Íslands með FH oftast nefnt á nafn sem nýjan þjálfara ÍA.

Ég persónulega veit ekki með þetta Lárus Orri hefur náð hörku árangri með Skaganum, og ná þeir fjórða sætinu með sigri, sem er þeirra besti árangur frá 2007 sem er galið langt síðan. Lárus Orri á skilið annað tímabil með Skaganum að mínu mati og koma liðinu ofar og lengra í bikar.

En að sjálfsögðu er Heimir einn stærsti prófíllinn sem þjálfari á þessu landi og kannski erfitt að horfa framhjá honum ?


Steinke hefur aðeins kafað í þessi málefni og heyrt í sjálfum Lárusi og Eggerti Herbertssyni Formanni ÍA



Við munum sjá hvað gerist hjá Skagamönnum eftir leikinn gegn Keflavík.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Keflvíkingar
Keflavík hafa komið öllum á óvart á tímabilinu og náðu þeir að koma sér í efri hlutan, þeim var spáð falli af flestum fjölmiðlum og meðal annars hjá okkur hjá Fótbolta.net en óhætt að segja að Keflvíkingar hafa sokkað flesta.




Keflavík hafa hinsvegar ekki unni leik í umspilinu í Bestu deildinni á þessu tímabili, einnig hafa þeir tapað fimm af síðustu sex leikjum sínum.
Heilt yfir geta strákarnir af Suðurnesjum gengið stoltir frá borði eftir þetta tímabil.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Skagamenn
Skagamenn koma á góðri siglingu inní leikinn.
ÍA hafa tapað einum leik frá því 20 Júlí og það kom gegn KR. Skagamenn geta gengið stoltið frá tímabili ef þeim tekst að landa þremur punktum gegn Keflvíkingum. ÍA geta enda í fjórða sæti með sigri og yrði það þeirra besti árangur frá sumrinu 2007.


ÍA spilaði seinast gegn Fram og lauk þeim leik með 4-2 sigri í skemmtilegum leik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Lokaumferðin BÆNG!
Það er komið að lokaumferðinni í Bestu deild karla þetta árið.
ÍA tekur á móti Keflavík í lokaumferðinni, og leikið verður inni í Akraneshöllinni vegna framkvæmda á Elkem-vellinum!
Ákvörðuninn er umdeild en henni verður ekki breytt.


Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Innkastið í beinni á X977 klukkan 18
Mynd: Fótbolti.net

Umferðin verður gerð upp í sérstökum lokaþætti Innkastsins sem verður í beinni á X977 klukkan 18:00. Þátturinn kemur síðan inn á hlaðvarpsveitur í kjölfarið.

Besta karla - Efri hluti
14:00 KR-Breiðablik (Meistaravellir)
14:00 ÍA-Keflavík (Akraneshöllin)
16:15 Víkingur R.-Fram (Víkingsvöllur)

Besta karla - Neðri hluti
14:00 Stjarnan-Valur (Samsungvöllurinn)
14:00 FH-Þór (Kaplakrikavöllur)
14:00 KA-ÍBV (Greifavöllurinn)