Í BEINNI
Uppfæra
-
LL
2 Víkingur R.2 Fram
-
LL
4 ÍA4 Keflavík
-
LL
8 KR3 Breiðablik
-
LL
5 KA1 ÍBV
-
LL
1 FH2 Þór
-
LL
6 Stjarnan0 Valur
Besta karla - Neðri hluti
Greifavöllurinn
24.10.2026 - 14:00
Aðstæður: Á KA vellinum er logn, smá snjómugga annað slagið, hitinn við frostmark
Dómari: Pétur Guðmundsson
Greifavöllurinn
24.10.2026 - 14:00
Aðstæður: Á KA vellinum er logn, smá snjómugga annað slagið, hitinn við frostmark
Dómari: Pétur Guðmundsson

KA
5
1
ÍBV

Jakob Snær Árnason
'3
1-0
1-1
Heiðmar Þór Magnússon
'17
Mikael Breki Þórðarson
'38
2-1
Hallgrímur Mar Steingrímsson
'45
3-1
Hallgrímur Mar Steingrímsson
'57
4-1
Adam Ægir Pálsson
'70
5-1
Áhorfendur: 745 áhorfendur
Maður leiksins: Hallgrímur Mar
Byrjunarlið:
13. Steinþór Már Auðunsson (m) 36
2. Birgir Baldvinsson 25
('8)
('8)
6. André Rømer 33
7. Adam Ægir Pálsson 28
('74)
('74)
8. Jeppe Pedersen 25
('70)
('70)
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson 36
21. Mikael Breki Þórðarson 19
('70)
('70)
23. Markús Máni Pétursson 20
28. Hans Viktor Guðmundsson (f) 30
29. Jakob Snær Árnason 29
30. Guðjón Ernir Hrafnkelsson 25
- Meðalaldur 28 ár
Varamenn:
1. Ívar Arnbro Þórhallsson (m) 20
3. Kári Gautason 22
('46)
('46)
14. Danijel Dejan Djuric 23
('74)
('74)
20. Diego Montiel 31
22. Hrannar Björn Steingrímsson 34
('70)
('70)
25. Bjarki Fannar Helgason 21
32. Sigurður Nói Jóhannsson 16
44. Valdimar Logi Sævarsson 20
('70)
('70)
91. Snorri Kristinsson 17
('8)
('46)
- Meðalaldur 23 ár
('8)
('46)
Liðsstjórn:
Hallgrímur Jónasson (Þ) aldur 40
Eiður Smári Guðjohnsen (Þ) aldur 48
Egill Daði Angantýsson (AÞ) aldur 43
Petar Ivancic (Liðsstj.)
Nicklas Cleemann Rulle (MÞ) aldur 27
Halldór Hermann Jónsson (Sjúkraþj.) aldur 42
Gul spjöld:
Rauð spjöld:Byrjunarlið:
33. Ari i Haraldstovu Petersen (m) 23
('78)
('78)
2. Sigurður Arnar Magnússon 27
4. Mattias Edeland 27
17. Emil Gautason 16
('62)
('62)
22. Eiður Atli Rúnarsson 24
('85)
('85)
23. Arnór Ingi Kristinsson 25
25. Alex Freyr Hilmarsson (f) 33
27. Róbert Elís Hlynsson 19
('46)
('46)
28. Heiðmar Þór Magnússon 18
('62)
('62)
30. Vicente Valor 28
67. Omar Sowe 25
- Meðalaldur 24 ár
Varamenn:
1. Ivan Vidrih (m) 21
('78)
('78)
3. Andri Snær Óskarsson 14
5. Sturla Sagatun-Kristjánsson 20
7. Sesar Örn Harðarson 20
('62)
('62)
10. Viggó Valgeirsson 20
('46)
('46)
14. Ísak Máni Óðinsson 14
16. Sigurður Valur Sigursveinsson 18
('85)
('85)
42. Pisco 30
80. Halldór Jón Sigurður Þórðarson 30
('62)
- Meðalaldur 21 ár
('62)
Liðsstjórn:
Aleksandar Linta (Þ) aldur 51
Jakob Fannar Möller (Liðsstj.) aldur 22
Óskar Elías Zoega Óskarsson (AÞ) aldur 30
Filipe Andre Alexandre Machado (MÞ)
Branisalv Bajic (AÞ)
Elías J Friðriksson (Sjúkraþj.) aldur 59
Gul spjöld:
Vicente Valor ('10)
Rauð spjöld:Leik lokið!
Öruggur sigur en samt fall
KA pakkar ÍBV saman en þarf samt að horfast í augu við Lengjudeildarlið næsta sumar.
88. mín
Skot
Sigurður Arnar fær boltann úti í teig KA vinstra megin og reynir að snúa hann inn að marki en beint á steinþór
85. mín
Inn:Sigurður Valur Sigursveinsson (ÍBV)
Út:Eiður Atli Rúnarsson (ÍBV)
ÍBV skipting
82. mín
Skot á mark ÍBV
Hrannar kemst upp að vítateig með boltann og á skot framhjá marki ÍBV
80. mín
Hörð hríð
ÍBV gerði ítrekaðar tilraunir til að skora en varnarmenn KA voru vandanum vaxnir og komust fyrir skotin og hreinsuðu að lokum.
78. mín
Inn:Ivan Vidrih (ÍBV)
Út:Ari i Haraldstovu Petersen (ÍBV)
Markmannsskipti hjá ÍBV
Þetta sér maður ekki oft en það er hæpið að kenna Ara um stöðuna
75. mín
Sláin
Guðjón með boltann úti vinstra megin og á skot í slá. Þetta hefði mátt enda í netinu. Guðjón búinn að vera góður í dag.
72. mín
Aukaspyrna KA
Hallgrímur stillir upp utan við teiginn vinstra megin og reynir skot en beint á Ara.
70. mín
MARK!
MARK!Adam Ægir Pálsson (KA)
5 - 1
KA að valta yfir gestina. Adam fær boltann inn í teig og snýr af sér varnarmann og setur boltann örugglega í netið.
70. mín
Inn:Hrannar Björn Steingrímsson (KA)
Út:Mikael Breki Þórðarson (KA)
Tvöföld skipting hjá KA
65. mín
66% búið
Þegar einungis 1/3 er eftir af Bestu deildinni er staðan óbreytt nema KA er að sigla nokkuð öruggum sigri í höfn gegn föllnum eyjamönnum. Þeir eru samt sem áður niðri.
63. mín
Aukaspyrna ÍBV
ÍBV á aukaspyrnu rétt utan teigs fyrir miðju. Omar gerir sig líklegan til að taka hana. Alex Freyr tók hana hins vegar og Steinþór átti ekki í erfiðleikum með að verja.
62. mín
Skot ÍBV
Omar er með boltann fyrir utan teig og leggur hann út á Eið Atla sem á skot vel yfir markið
62. mín
Inn:Halldór Jón Sigurður Þórðarson (ÍBV)
Út:Heiðmar Þór Magnússon (ÍBV)
Tvöföld skipting hjá gestunum
62. mín
Inn:Sesar Örn Harðarson (ÍBV)
Út:Emil Gautason (ÍBV)
Tvöföld skipting hjá gestunum
60. mín
Horn
Hallgrímur rennir boltanum inn í teig á Guðjón en ÍBV kemst fyrir og gefur horn sem Hallgrímur tekur. ÍBV hreinsar frá markinu
57. mín
MARK!
MARK!Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)
4 - 1
Guðjón fær boltann upp vinstri kantinn og kemst upp að markteig. Hann kemur boltanum á Jakob sem leggur hann eða missir hann til Hallgríms sem leggur boltann snyrtilega í fjærhornið.
54. mín
Skot ÍBV
Viggó kemst upp að teignum núna og á skot en eins og síðast fer það í varnarmann og til Steinþórs.
53. mín
Skot
Eiður Atli kemst upp að teig KA og reynir skot en í varnarmann og Steinþór grípur örugglega
46. mín
Inn:Kári Gautason (KA)
Út:Snorri Kristinsson (KA)
Skipting í hálfleik
KA skiptir varamanninum Snorra út fyrir Kára Gauta.
45. mín
Hálfleikur
3 - 1 en dugar það
KA yfir en Þór líka þannig að KA er niðri eins og er. Allt getur gerst og gerir það víst í seinni hálfleik.
45. mín
MARK!
MARK!Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)
3 - 1
Adam sendir upp á Jakob hægra megin sem leggur boltann út í teiginn þar sem Hallgrímur Mar kemur og leggur boltann í markið.
45. mín
Pressa
KA heldur ÍBV inni í sínum vítateig og á hverja fyrirgjöfina á fætur annarri en ekkert kemur út úr því.
43. mín
Barátta
Eftir markið hefur baráttan harðnað aðeins. KA ætlar ekki að hleypa ÍBV aftur inn í leikinn
38. mín
MARK!
MARK!Mikael Breki Þórðarson (KA)
2 - 1
Mikael Breki fær boltann inn fyrir og er ansi hreint tæpur á rangstöðunni. Held að hann hafi verið rangstæður en markið stendur. Við nánari athugun í "VAR" var hann réttstæður.
33. mín
Leikið sér að eldinum
ÍBV spilar boltanum þröngt inni í eigin teig og missa hann til KA en fyrirgjöfin endar hjá Ara
30. mín
1/3
Þriðjungur liðinn af leikjum dagsins og eins og staðan er núna þá er KA niðri
29. mín
Horn
Emil fær þversendingu yfir á vinstri kant og kemst upp að endamörkum og vinnur horn.
25. mín
Skot
Mikael Breki vinnur boltann kemur honum á Adam sem sendir strax á Grímsa sem á skot beint á Ara.
23. mín
Varið í horn
Eiður tæklar að mér sýndist Guðjón sem var kominn inn í teig og boltinn í horn sem ekkert verður úr.
22. mín
Langskot og verðlaun
Omar fær boltann við miðju rekur hann aðeins áfram og á svo skot sem er langt framhjá. Annað hvort bjartsýni eða leti. Bjartsýnisverðlaun Bröste
21. mín
Aukaspyrna
KA fær aukaspyrnu úti hægra megin. Hallgrímur er fljótur að taka og rennir boltanum inn á Guðjón sem missir hann aðeins of langt frá sér og bjargað í innkast.
19. mín
Allt jafnt eða ekki
Þór og ÍBV jafna á sömu mínútu nánast. Allt eins og í byrjun nema á meðan ég skrifa þetta skora Þórsarar aftur.
17. mín
MARK!
MARK!Heiðmar Þór Magnússon (ÍBV)
Fyrirgjöf - horn - 1 - 1
Arnór Ingi brýst út úr pressunni og kemst upp hægra megin. Kemur boltanum fyrir en skallað í horn. Hornið tekið á fjær þar sem boltinn kemur aftur fyrir markið og Heiðmar skallar inn.
12. mín
Horn
KA fær aftur horn frá vinstri sem Hallgrímur tekur. Hanns nýr boltanum á fjær en þar er skallað frá á Snorra sem á skot/fyrirgjöf beint á Ara.
11. mín
hornið stutt
Hornið tekið stutt og Hallgrímur fær hann aftur og setur boltann fyrir en skallað frá
10. mín
Aukaspyrna
KA fær aukaspyrnu rétt utan teigs sem Hallgrímur tekur í vegginn og aftur fyrir. Horn
8. mín
Inn:Snorri Kristinsson (KA)
Út:Birgir Baldvinsson (KA)
Skipting hjá heimamönnum
Birgir meiðist og þarf að fara út af.
3. mín
MARK!
MARK!Jakob Snær Árnason (KA)
1 - 0
Adam Ægir vinnur boltann við miðlínu og fær að rekja hann upp að vítateig þar sem varnarmenn mættu honum. Hann komst í gott færi en vildi komast lengra. Missti þá boltann aðeins frá sér til Guðjóns sem sendi hann fyrir markið á Jakob sem stangaði boltann í markið.
1. mín
Byrjað
Pétur Guðmunds flautar leikinn á og KA byrjar með boltann og spilar til vesturs.
Fyrir leik
Allt að verða klárt
Liðin ganga inn á völlinn og síðustu 90 mínútur Bestu deildarinnar eru um það bil að hefjast.
Fyrir leik
Ég tel að Þór verði að vinna því KA vinna sinn leik, ég er þó á því að þarna se bæði -1 KA á 1.86 og yfir 3 mörk á 1.72 “split stake” sé besta leiðin því ég sé þau ekki bæði tapast út frá því ef Eyjamenn komast yfir breytist leikmyndin rosalega.
— Kristalkúlan (@kristalkulan) October 24, 2026
Fyrir leik
Breytingar á liðum
KA menn gera enga breytingu frá tapinu gegn Val. Það á að láta sömu menn taka ábyrgð á "klúðrinu" og fá að sýna að þeir geta betur.
ÍBV gerir aftur á móti tvær breytingar á sínu liði eftir sigur á FH í Eyjum.
Bjarki Gunn og Felix Örn fara út og úr hóp. Í þeirra stað koma Eiður Atli og Róbert Elís koma inn.
ÍBV gerir aftur á móti tvær breytingar á sínu liði eftir sigur á FH í Eyjum.
Bjarki Gunn og Felix Örn fara út og úr hóp. Í þeirra stað koma Eiður Atli og Róbert Elís koma inn.
Fyrir leik
Þjálfararnir
Það er mikið undir fyrir þjálfarana. Það er mikið talað um að Hallgrímur muni víkja eftir leiktíðina og spekúlasjónir um að Eiður verði ef til vill arftaki hans. Það skiptir örugglega máli fyrir Eið hver staða KA verður eftir leiki dagsins.
Að sama skapi er verið að velta framtíð Sigga í Þór fyrir sér. Siggi Höskulds hefur náð nokkuð góðum árangri með ungt lið Þórs og komið þeim upp á lappirnar í síðustu leikjum þegar allt hefur verið undir. Það er það sama í Þorpinu, framtíð hans veltur á stöðu Þórs eftir daginn.
Það er endalaust hægt að segja ef og hefði en leikirnir í dag eru bara mikilvægir báðum liðum vegna leikja sem fóru illa fyrr í sumar. Þar misstu bæði lið mikilvæg stig sem hefðu komið þeim úr þessum aðstæðum sem þau enda í. Þeir leikir voru ekkert "mikilvægir" þá en þegar horft er í baksýnisspegil þess liðs sem fellur þá poppa þeir eflaust upp.
Að sama skapi er verið að velta framtíð Sigga í Þór fyrir sér. Siggi Höskulds hefur náð nokkuð góðum árangri með ungt lið Þórs og komið þeim upp á lappirnar í síðustu leikjum þegar allt hefur verið undir. Það er það sama í Þorpinu, framtíð hans veltur á stöðu Þórs eftir daginn.
Það er endalaust hægt að segja ef og hefði en leikirnir í dag eru bara mikilvægir báðum liðum vegna leikja sem fóru illa fyrr í sumar. Þar misstu bæði lið mikilvæg stig sem hefðu komið þeim úr þessum aðstæðum sem þau enda í. Þeir leikir voru ekkert "mikilvægir" þá en þegar horft er í baksýnisspegil þess liðs sem fellur þá poppa þeir eflaust upp.
Fyrir leik
Áhorfendur
Nú þegar 45 mínútur eru í leik eru stuðningsmenn KA strax byrjaðir að koma sér fyrir í stúkunni. Auk þess eru einhverjir inni að hita upp.
Fyrir leik
Besta deildin v.s. Lengjudeildin
Þó svo að það séu fleiri leikir í deild þeirra bestu þá er ekki þar með sagt að liðin í Bestu fái fleiri alvöruleiki yfir sumarið en þau liði í Lengjudeild sem komast í umspil og langt í bikar. KA spilar 29 leiki í deild og bikar, Þór 28 leiki og t.d. Fylkir er með 30 alvöruleiki í sumar.
Það koma hins vegar fleiri á Bestudeildarleiki en Lengjudeild og þar munar um að það eru almennt betri leikmenn í Bestu deildinni. Það aftur á móti kallar á aukinn kostnað við liðið. Færri lið taka áhættu með unga uppalda í Bestu og því þarf stöðugt að vera vakandi fyrir því að styrkja Bestu deildar liðin utan frá.
Þannig að fjárhagslegur ávinningur á að vera í Bestu deildinni er e.t.v. aðallega fólginn í því að þar eru fleiri leiðir inn í Evrópukeppnir. Það má því gefa sér að ávinningur af sjónvarpi og auknum auglýsinga- og aðgöngumiðatekjum fari að mestu í hærri launakostnað og dýrari umgjörð. (Tala náttúrulega bara með rassgatinu :-) )
Það koma hins vegar fleiri á Bestudeildarleiki en Lengjudeild og þar munar um að það eru almennt betri leikmenn í Bestu deildinni. Það aftur á móti kallar á aukinn kostnað við liðið. Færri lið taka áhættu með unga uppalda í Bestu og því þarf stöðugt að vera vakandi fyrir því að styrkja Bestu deildar liðin utan frá.
Þannig að fjárhagslegur ávinningur á að vera í Bestu deildinni er e.t.v. aðallega fólginn í því að þar eru fleiri leiðir inn í Evrópukeppnir. Það má því gefa sér að ávinningur af sjónvarpi og auknum auglýsinga- og aðgöngumiðatekjum fari að mestu í hærri launakostnað og dýrari umgjörð. (Tala náttúrulega bara með rassgatinu :-) )
Fyrir leik
Andstæðingarnir í dag
ÍBV hefur ekkert til að spila upp á. Þeir eru og verða neðstir en stoltið hjá Eyjamönnum er talsvert og þeir munu ekki koma hingað norður eins og lömb til slátrunar.
FH hefur eins og Eyjamenn ekkert að spila upp á en markmið FH voru að vera í efri kantinum og því er þar líka smá stolt sem þarf að sýna og láta fólk vita að þeir eru á réttri leið.
Það er því nokkuð ljóst að hvorki Þór né KA fá auðvelda leiki í dag þó liðin hafi að engu að keppa. Bæði lið hafa ríka hefð fyrir árangri og láta stigin ekkert frá sér á silfurfati.
FH hefur eins og Eyjamenn ekkert að spila upp á en markmið FH voru að vera í efri kantinum og því er þar líka smá stolt sem þarf að sýna og láta fólk vita að þeir eru á réttri leið.
Það er því nokkuð ljóst að hvorki Þór né KA fá auðvelda leiki í dag þó liðin hafi að engu að keppa. Bæði lið hafa ríka hefð fyrir árangri og láta stigin ekkert frá sér á silfurfati.
Fyrir leik
Verðmæti leiksins
Það eru mun meiri peningar í því fyrir lið að spila í Bestu deildinni frekar en í Lengjudeildinni og því eru gjaldkerar félaganna á nálum í dag. Hvort þarf að skera niður eða bæta í fyrir næsta sumar?
Fyrir leik
Gríðarlega mikilvægur leikur á KA - vellinum
KA tekur á móti ÍBV í dag klukkan 14 og það er allt undir hjá Akureyringunum á Brekkunni.
Til að einfalda stöðuna þá verður KA að gera betur en Þór á móti FH til að halda sæti sínu í deildinni. Á móti kemur að Þór þarf að gera a.m.k. jafnvel og KA til að þeir haldi sætinu.
Til að einfalda stöðuna þá verður KA að gera betur en Þór á móti FH til að halda sæti sínu í deildinni. Á móti kemur að Þór þarf að gera a.m.k. jafnvel og KA til að þeir haldi sætinu.
Fyrir leik
Viðtöl í aðdraganda leiksins
Fyrir leik
Upphitunarfréttir
Fyrir leik
Umferðin verður gerð upp í sérstökum lokaþætti Innkastsins sem verður í beinni á X977 klukkan 18:00. Þátturinn kemur síðan inn á hlaðvarpsveitur í kjölfarið.
Besta karla - Efri hluti
14:00 KR-Breiðablik (Meistaravellir)
14:00 ÍA-Keflavík (Akraneshöllin)
16:15 Víkingur R.-Fram (Víkingsvöllur)
Besta karla - Neðri hluti
14:00 Stjarnan-Valur (Samsungvöllurinn)
14:00 FH-Þór (Kaplakrikavöllur)
14:00 KA-ÍBV (Greifavöllurinn)
Innkastið í beinni á X977 klukkan 18

Umferðin verður gerð upp í sérstökum lokaþætti Innkastsins sem verður í beinni á X977 klukkan 18:00. Þátturinn kemur síðan inn á hlaðvarpsveitur í kjölfarið.
Besta karla - Efri hluti
14:00 KR-Breiðablik (Meistaravellir)
14:00 ÍA-Keflavík (Akraneshöllin)
16:15 Víkingur R.-Fram (Víkingsvöllur)
Besta karla - Neðri hluti
14:00 Stjarnan-Valur (Samsungvöllurinn)
14:00 FH-Þór (Kaplakrikavöllur)
14:00 KA-ÍBV (Greifavöllurinn)








