Í BEINNI
Uppfæra
-
LL
2 Víkingur R.2 Fram
-
LL
4 ÍA4 Keflavík
-
LL
8 KR3 Breiðablik
-
LL
5 KA1 ÍBV
-
LL
1 FH2 Þór
-
LL
6 Stjarnan0 Valur
Besta karla - Efri hluti
Víkingsvöllur
14.09.2026 - 19:15
Aðstæður: 11°, sól og lygnt en loftgæðin ekki frábær.
Dómari: Pétur Guðmundsson
Víkingsvöllur
14.09.2026 - 19:15
Aðstæður: 11°, sól og lygnt en loftgæðin ekki frábær.
Dómari: Pétur Guðmundsson

Víkingur R.
4
1
Keflavík

Daníel Hafsteinsson
'21
1-0
Róbert Orri Þorkelsson
'29
2-0
Stígur Diljan Þórðarson
'31
3-0
Stígur Diljan Þórðarson
'47
4-0
4-1
Muhamed Alghoul
'58
Maður leiksins: Stígur Diljan Þórðarson (Víkingur)
Byrjunarlið:
29. Aron Snær Friðriksson (m) 29
4. Oliver Ekroth (f) 34
('83)
('83)
9. Helgi Guðjónsson 27
11. Daníel Hafsteinsson 26
15. Róbert Orri Þorkelsson 24
21. Aron Elís Þrándarson 31
('61)
('61)
22. Karl Friðleifur Gunnarsson 25
('83)
('83)
25. Valdimar Þór Ingimundarson 27
30. Sveinn Margeir Hauksson 24
('61)
('61)
69. Ármann Ingi Finnbogason 22
('61)
('61)
77. Stígur Diljan Þórðarson 20
- Meðalaldur 26 ár
Varamenn:
47. Ögmundur Kristinsson (m) 37
99. Uggi Jóhann Auðunsson (m) 21
5. Sölvi Stefánsson 19
('83)
('83)
8. Viktor Örlygur Andrason 26
('61)
('61)
23. Nikolaj Hansen 33
24. Davíð Örn Atlason 32
('83)
('83)
27. Sveinn Aron Guðjohnsen 28
('61)
('61)
52. Viðar Elí Bjarnason 19
70. Hrannar Snær Magnússon 24
('61)
- Meðalaldur 27 ár
('61)
Liðsstjórn:
Sölvi Geir Ottesen (Þ) aldur 42
Aron Baldvin Þórðarson (AÞ) aldur 31
Hajrudin Cardaklija (MÞ) aldur 61
Rúnar Pálmarsson (Sjúkraþj.) aldur 45
Viktor Bjarki Arnarsson (AÞ) aldur 43
Kári Sveinsson (Styrktarþj.) aldur 33
Þórir Ingvarsson (Liðsstj.) aldur 66
Daníel Darri Arnarsson (Leikgr.) aldur 19
Gul spjöld:
Rauð spjöld:Byrjunarlið:
1. Ásgeir Orri Magnússon (m) 22
2. Elvis Bwomono 27
('70)
('70)
4. Nacho Heras 35
6. Sindri Snær Magnússon (f) 34
7. Dagur Ingi Valsson 27
('83)
('83)
10. Stefan Ljubicic 27
('70)
('70)
11. Muhamed Alghoul 30
20. Marin Brigic 26
21. Alpha Conteh 26
22. Ásgeir Páll Magnússon 26
('80)
('80)
88. Mate Simicic 21
('70)
- Meðalaldur 27 ár
('70)
Varamenn:
12. Helgi Bergmann Hermannsson (m) 24
3. Axel Ingi Jóhannesson 22
('70)
('70)
14. Marin Mudrazija 31
('70)
('70)
15. Arnór Atli Aðalbjörnsson 17
18. Ernir Bjarnason 29
('70)
('70)
25. Frans Elvarsson 36
28. Viktor Árni Traustason 19
('83)
('83)
42. Baldur Logi Brynjarsson 18
47. Egill Valur Karlsson 17
('80)
- Meðalaldur 24 ár
('80)
Liðsstjórn:
Haraldur Freyr Guðmundsson (Þ) aldur 44
Guðmundur Árni Þórðarson (Forráðam.) aldur 40
Karlo Bacinger (Sjúkraþj.)
Jónas Guðni Sævarsson (Leikgr.) aldur 42
Ómar Jóhannsson (MÞ) aldur 45
Hólmar Örn Rúnarsson (AÞ) aldur 44
Gul spjöld:
Rauð spjöld:Leik lokið!
Pétur Guðmundsson flautar til leiksloka. Öruggur 4-1 Víkinga staðreynd og deildin farin að líta ágætlega út fyrir Víkinga, með 9 stiga forystu á toppnum. Viðtöl og skýrsla koma inn seinna í kvöld, ég þakka fyrir mig.
83. mín
Inn:Sölvi Stefánsson (Víkingur R.)
Út:Oliver Ekroth (Víkingur R.)
Fyrsti leikur Sölva í Bestu deildinni.
82. mín
Marin með hörkuskot í þverslánna af stuttu færi. Hefði getað minnkað muninn enn frekar.
76. mín
Helgi hálf eigingjarn þarna. Með boltann inn í teig með tvo Víkinga í kringum sig til þess að gefa á en hann lætur vaða, beint á Ásgeir sem ver vel. Stígur ósáttur að fá ekki boltann til þess að fullkomna þrennuna.
74. mín
Gestirnir sparka í hvorn annan þegar þeir reyndu að hreinsa frá en hornspyrna heimamanna er afraksturinn.
72. mín
Daníel tapar boltanum á stórhættulegum stað og Sindri stelur honum. Aron veður út úr markinu og gerir frábærlega, truflar Sindra og hægir á sókninni sem rennur út í sandinn.
69. mín
Víkingar vinna hornspyrnu. Spyrnan föst á fjærsvæðið ætluð Karli Friðleifi en gestirnir skalla frá.
64. mín
Áfram tengja Stígur og Valdimar.
Stígur gerir vel við teiginn, kemur boltanum svo á Valdimar sem ætlar að vippa boltanum inn fyrir á Stíg sem er í rangstöðu og aukaspyrna dæmd.
Stígur gerir vel við teiginn, kemur boltanum svo á Valdimar sem ætlar að vippa boltanum inn fyrir á Stíg sem er í rangstöðu og aukaspyrna dæmd.
61. mín
Inn:Viktor Örlygur Andrason (Víkingur R.)
Út:Aron Elís Þrándarson (Víkingur R.)
Þreföld breyting
61. mín
Inn:Hrannar Snær Magnússon (Víkingur R.)
Út:Ármann Ingi Finnbogason (Víkingur R.)
61. mín
Inn:Sveinn Aron Guðjohnsen (Víkingur R.)
Út:Sveinn Margeir Hauksson (Víkingur R.)
Fyrsti leikur Sveins Arons í Víkingstreyjunni.
58. mín
MARK!
MARK!Muhamed Alghoul (Keflavík)
Klóra í bakkann
Víkingar í basli í uppspilinu. Oliver Ekroth kemur með stutta, erfiða sendingu á Aron sem á slaka sendingu sem Muhamed Alghoul kemst inn í. Skotið hnitmiðað í fjærhornið, stöngin inn.
55. mín
Víkingar fá horn. Helgi Guðjóns með sendinguna inn á nærsvæðið en Keflavík kemur boltanum frá og keyra fram en skyndisóknin nær engu flugi.
47. mín
MARK!
MARK!Stígur Diljan Þórðarson (Víkingur R.)
Stoðsending: Valdimar Þór Ingimundarson
Stoðsending: Valdimar Þór Ingimundarson
ÞEIR ERU EKKI HÆTTIR
Boltinn berst til baka á Valdimar sem keyrir að vítateigshorninu og kemur svo með hnitmiðaða fyrirgjöf beint á Stíg sem klárar fram hjá Ásgeiri í markinu. Örugg afgreiðsla.
Aftur er það Stígur x Valdimar.
Aftur er það Stígur x Valdimar.
45. mín
Hálfleikur
52. leikurinn í sumar og 74. liðið
45. mín
Hálfleikur
Engu bætt við og Pétur flautar til hálfleiks. Víkingar fara með 3-0 forystu inn til búningsherbergja og mörkin hefðu getað orðið fleiri. Keflavík hefur ekki séð til sólar í þessum fyrri hálfleik.
Tökum okkur korter.
Tökum okkur korter.
42. mín
Hóta fjórða markinu
Víkingar gera mjög vel í uppspilinu og byrja skothríð í átt að marki. Stígur skýtur svo á endanum framhjá og markspyrna niðurstaðan.
35. mín
Loftgæðin í fréttamannaboxinu eru ekki alveg eins og maður vill hafa þau. Úti eru þau þó skárri.
31. mín
MARK!
MARK!Stígur Diljan Þórðarson (Víkingur R.)
Stoðsending: Valdimar Þór Ingimundarson
Stoðsending: Valdimar Þór Ingimundarson
HVAÐ ER Í GANGI?
Var enn að skrifa um mark Róberts Orra þegar Víkingar skora þriðja markið.
Valdimar Þór fær boltanum á kantinum og kemst inn í teiginn. Á svo skotið sem var á leiðinni inn en Stígur Diljan nær snertingu á boltann og stelur markinu. Heppinn að vera ekki í rangstöðu og hann vissi það. Slapp fyrir horn.
Víkingar komnir í þriggja marka forystu eftir rétt rúman hálftíma.
Valdimar Þór fær boltanum á kantinum og kemst inn í teiginn. Á svo skotið sem var á leiðinni inn en Stígur Diljan nær snertingu á boltann og stelur markinu. Heppinn að vera ekki í rangstöðu og hann vissi það. Slapp fyrir horn.
Víkingar komnir í þriggja marka forystu eftir rétt rúman hálftíma.
29. mín
MARK!
MARK!Róbert Orri Þorkelsson (Víkingur R.)
Stoðsending: Helgi Guðjónsson
Stoðsending: Helgi Guðjónsson
SLÁIN, SLÁIN INN
Víkingar með útfærslu af æfingasvæðinu í hornspyrnu. Taka það stutt og koma svo boltanum á Róbert inn í teignum sem hamrar boltanum í slánna, niður á grasið, og svo upp aftur í slánna áður hann syngur í netinu.
Róbert Orri opnar markareikning sinn í Bestu deildinni með bombu en hann hefur verið í miklu meiðslaveseni.
Róbert Orri opnar markareikning sinn í Bestu deildinni með bombu en hann hefur verið í miklu meiðslaveseni.
27. mín
Helgi með fyrirgjöf úr aukaspyrnu. Keflvíkingar ná haus í boltann og boltinn í innkast sem Víkingar eiga.
25. mín
Daníel reynir skotið frá miðjuhringnum eftir misheppnaða sendingu Keflvíking en boltinn alltaf á leiðinni yfir.
21. mín
MARK!
MARK!Daníel Hafsteinsson (Víkingur R.)
Stoðsending: Sveinn Margeir Hauksson
Stoðsending: Sveinn Margeir Hauksson
MAAARKKKKK
Víkingar í enn einni sókninni. Daníel Hafsteins gefur hann á Svein sem klárar þríhyrninginn með hælsendingu á Daníel. Hann klárar svo snyrtilega í fjærhornið. Þarna tengdu gömlu KA mennirnir frábærlega saman.
Víkingar komnir yfir, sanngjarnt.
Víkingar komnir yfir, sanngjarnt.
19. mín
Keflavík fær aukaspyrnu nálægt hornfánanum. Oliver Ekroth skallar frá. Sindri Snær reynir svo skot en skotið víðsfjarri markinu.
14. mín
Víkingar fá annað horn eftir fyrra hornið. Þar rís Aron Elís manna hæst og skallar að marki en Keflvíkingar verja á línu.
Það liggur mark í loftinu.
Það liggur mark í loftinu.
13. mín
HÖRKUSKOT
Daníel Hafsteinsson með skotið lengst utan af velli og Ásgeir Orri þarf að hafa sig allan við og slær boltanum yfir markið.
Algjör negla.
Algjör negla.
11. mín
Víkingar hafa verið miklu sterkari aðilinn þessar fyrstu 10 mínútur en Keflvíkingar hafa fengið sínar stöður, sérstaklega í skyndisóknum.
10. mín
FÆRI
Daníel Hafsteinsson með frábæra fyrirgjöf á kollinn á Róbert Orra sem á skallann hátt yfir markið. Þarna var tækifæri.
8. mín
Frábær sending yfir á Valdimar sem gefur hann í fyrsta inn á teiginn þar sem Ármann tekur við honum. Móttakan svíkur hann sem nær ekki nema máttlausu skoti á markið.
6. mín
Stefan Ljubicic sækir hratt en nær ekki að leika á Oliver Ekroth og Aron Snær hirðir knöttinn.
4. mín
Karl Friðleifur fær mikið pláss og keyrir upp völlinn. Rennir svo boltanum á Valdimar sem kemur með ónákvæma fyrirgjöf yfir allan pakkann.
Fyrir leik
Loftgæðin ekki upp á 10
Vegna elds í toppstöðinni í Elliðaárdal er örlítill reykur yfir svæðinu og loftgæðin hafa verið betri. En við látum það ekki stoppa okkur hér.
Fyrir leik
Það var ekki sama orka í Keflvíkingum án þeirra besta manns gegn Val, Breka Baxter. Þeir mæta pollrolegir inn í efra playoffið með engar væntingar. Víkingur -1,5 er veðmál sem á ekki að tapast að mínu mati. 1.73 á Epic.
— Kristalkúlan (@kristalkulan) September 14, 2026
Fyrir leik
Byrjunarliðin klár - Gylfi ekki í hóp
Meiðsli Gylfa Þórs Sigurðssonar hafa líklega verið alvarlegri en Sölvi gerði ráð fyrir en hann er ekki í hóp í dag. Í stað hans kemur Sveinn Margeir Hauksson.
Haraldur Freyr gerir tvær breytingar á byrjunarliði sínu frá leiknum gegn Val. Elvis Bwomono og Mate Simicic koma inn í byrjunarliðið í stað Axels Inga Jóhannessonar og Eiðs Orra Ragnarssonar.
Haraldur Freyr gerir tvær breytingar á byrjunarliði sínu frá leiknum gegn Val. Elvis Bwomono og Mate Simicic koma inn í byrjunarliðið í stað Axels Inga Jóhannessonar og Eiðs Orra Ragnarssonar.
Fyrir leik
Gylfi ætti að vera klár
Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Víkings, fór meiddur af velli í hálfleik gegn Fram en Sölvi segir að einungis hafi verið um stífleika að ræða.
"Hann stífnaði í vöðva, engin meiðsli þannig séð."
"Hann stífnaði í vöðva, engin meiðsli þannig séð."
Fyrir leik
Spámaðurinn
Brynjar Bergsson leikmaður Selfossar spáir í leiki umferðarinnar. Hann spáir þægilegum 2-0 Víkingssigri í kvöld þar sem Hrannar Snær Magnússon skorar tvennu.
"Baxterinn farinn frá Keflavík og mér finnst lítið til þessa liðs koma þegar Baxterinn er farinn. Hrannar skorar bæði mörkin, en hann þróaði leik sinn á Selfossi."
"Baxterinn farinn frá Keflavík og mér finnst lítið til þessa liðs koma þegar Baxterinn er farinn. Hrannar skorar bæði mörkin, en hann þróaði leik sinn á Selfossi."
Fyrir leik
10 mismunandi markaskorarar
Víkingar hafa unnið báða leikina gegn Keflavík í sumar. 3-1 útisigur í 5. umferðinni og svo 5-1 heimasigur í 16. umferðinni. Leikirnir hafa verið stútfullir af mörkum svo ég býst við skemmtilegum leik í kvöld!
Samanlagt hafa leikirnir farið 8-2 fyrir Víkingi en í leikjunum tveimur hafa verið 10 mismunandi markaskorarar.
Sjáðu allt það helsta úr leikjunum.
Samanlagt hafa leikirnir farið 8-2 fyrir Víkingi en í leikjunum tveimur hafa verið 10 mismunandi markaskorarar.
Sjáðu allt það helsta úr leikjunum.
Fyrir leik
Keflavík
Það er yfir höfuð magnað afrek að Keflavík endi í efri hlutanum í Bestu deildinni, lið sem endaði í neðsta umspilssæti Lengjudeildarinnar á síðustu leiktíð á markatölu.
Keflvíkingar enduðu í 6. sæti deildarinnar fyrir skiptingu með 28 stig, eins og Stjarnan sem var með verri markatölu og enduðu í neðri hlutanum. Í síðustu fimm hafa Keflvíkingar unnið tvo og tapað þremur, en núna þegar efri hlutinn er tryggður, eru þeir ekki að spila upp á neitt annað en sæti í deildinni og svo auðvitað heiðurinn. Með sigri í kvöld komast Keflvíkingar upp í fjórða sætið en Breiðablik á þó leik inni.
Keflvíkingar enduðu í 6. sæti deildarinnar fyrir skiptingu með 28 stig, eins og Stjarnan sem var með verri markatölu og enduðu í neðri hlutanum. Í síðustu fimm hafa Keflvíkingar unnið tvo og tapað þremur, en núna þegar efri hlutinn er tryggður, eru þeir ekki að spila upp á neitt annað en sæti í deildinni og svo auðvitað heiðurinn. Með sigri í kvöld komast Keflvíkingar upp í fjórða sætið en Breiðablik á þó leik inni.

Fyrir leik
Víkingur
Það hefur hægst á stigasöfnun Víkinga undanfarnar vikur. Í síðustu sex hafa Víkingar unnið tvo og gert fjögur jafntefli. Evrópuleikirnir eiga líklega einhvern þátt í því. Í síðustu tveimur umferðum fyrir skiptingu skildu Víkingar jafnir við Fram og KR sem eiga enn raunhæfan möguleika á titlinum.
Þrátt fyrir höktið í Íslandsmeisturunum eru Víkingar í góðri stöðu á toppnum með 53 stig. Víkingar eru með 6 stiga forystu og leik inni á KR, og með 8 stiga forystu á Fram í þriðja sæti.
Þrátt fyrir höktið í Íslandsmeisturunum eru Víkingar í góðri stöðu á toppnum með 53 stig. Víkingar eru með 6 stiga forystu og leik inni á KR, og með 8 stiga forystu á Fram í þriðja sæti.

Fyrir leik
Dómarateymið
Pétur Guðmundsson verður með flautuna í kvöld. Birkir Sigurðarson og Eysteinn Hrafnkelsson verða með flöggin á meðan Arnar Þór Stefánsson verður á milli varamannabekkjanna. Dómaraeftirlitsmaður leiksins verður Jón Magnús Guðjónsson.

Fyrir leik
1. umferð eftir skiptingu
Leikurinn er hluti af fyrstu umferð Bestu deildarinnar eftir skiptingu. Umferðin hófst í gær með fjórum leikjum og henni lýkur á morgun með leik Fram og Breiðabliks í efri hlutanum.
Umferðin:
Í gær
Stjarnan 2-0 ÍBV
FH 3-0 KA
Valur 4-1 Þór
KR 5-1 ÍA
Í dag
Víkingur - Keflavík (19:15)
Á morgun
Fram - Breiðablik (19:15)

Í gær
Stjarnan 2-0 ÍBV
FH 3-0 KA
Valur 4-1 Þór
KR 5-1 ÍA
Í dag
Víkingur - Keflavík (19:15)
Á morgun
Fram - Breiðablik (19:15)











