Í BEINNI
Uppfæra
-
LL
2 Víkingur R.2 Fram
-
LL
4 ÍA4 Keflavík
-
LL
8 KR3 Breiðablik
-
LL
5 KA1 ÍBV
-
LL
1 FH2 Þór
-
LL
6 Stjarnan0 Valur
Besta karla - Efri hluti
Lambhagavöllurinn
15.09.2026 - 19:15
Aðstæður: Grátt yfir og átta gráður
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Lambhagavöllurinn
15.09.2026 - 19:15
Aðstæður: Grátt yfir og átta gráður
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson

Fram
1
3
Breiðablik

0-1
Kennie Chopart
'30
, sjálfsmark
0-2
Gabríel Snær Hallsson
'45
Róbert Hauksson
'49
1-2
1-3
Ásgeir Helgi Orrason
'66
Áhorfendur: 762
Maður leiksins: Ásgeir Helgi Orrason (Breiðablik)
Byrjunarlið:
22. Viktor Freyr Sigurðsson (m) 26
3. Þorri Stefán Þorbjörnsson 20
('79)
('79)
5. Kyle McLagan 31
8. Haraldur Einar Ásgrímsson 26
('73)
('73)
9. Róbert Hauksson 25
12. Simon Tibbling 32
('46)
('46)
19. Kennie Chopart (f) 36
23. Már Ægisson 26
('46)
('46)
25. Freyr Sigurðsson 20
26. Sigurjón Rúnarsson 26
29. Vuk Oskar Dimitrijevic 25
('60)
- Meðalaldur 27 ár
('60)
Varamenn:
1. Sigurjón Daði Harðarson (m) 25
7. Kristófer Konráðsson 28
('46)
('46)
10. Fred Saraiva 30
('46)
('46)
14. Bjarni Páll Linnet Runólfsson 30
15. Jakob Byström 21
('60)
('60)
16. Israel Garcia 28
('73)
('73)
21. Óliver Elís Hlynsson 22
('79)
('79)
24. Nói Birgisson 17
38. Guðmundur Ágúst Héðinsson 17
- Meðalaldur 24 ár
Liðsstjórn:
Rúnar Kristinsson (Þ) aldur 57
Sævar Halldórsson (Leikgr.) aldur 23
Friðgeir Bergsteinsson (Liðsstj.) aldur 41
Guðmundur Gígjar Sigurbjörnsson (Styrktarþj.) aldur 23
Kristján Finnbogi Finnbogason (MÞ) aldur 55
Magnús Þorsteinsson (Liðsstj.) aldur 65
Einar Haraldsson (Sjúkraþj.) aldur 41
Helgi Sigurðsson (AÞ) aldur 52
Gul spjöld:
Jakob Byström ('66)
Rauð spjöld:Byrjunarlið:
1. Anton Ari Einarsson (m) 32
4. Ásgeir Helgi Orrason 21
5. Ívar Örn Árnason 30
('69)
('69)
9. Óli Valur Ómarsson 23
13. Anton Logi Lúðvíksson 23
('87)
('87)
14. Hlynur Freyr Karlsson 22
18. Davíð Ingvarsson 27
19. Kristinn Jónsson 36
22. Jónatan Guðni Arnarsson 19
('60)
('60)
29. Gabríel Snær Hallsson 19
('69)
('69)
99. Þorleifur Úlfarsson 25
- Meðalaldur 25 ár
Varamenn:
12. Gylfi Berg Snæhólm (m) 18
7. Höskuldur Gunnlaugsson 32
('69)
('69)
8. Viktor Karl Einarsson 29
('87)
('87)
10. Kristinn Steindórsson 36
11. Aron Bjarnason 31
('60)
('60)
16. Dagur Örn Fjeldsted 21
21. Viktor Örn Margeirsson 32
('69)
('69)
23. Kristófer Ingi Kristinsson 27
33. Arnar Bjarki Gunnleifsson 15
- Meðalaldur 27 ár
Liðsstjórn:
Jón Guðni Fjóluson (Þ) aldur 37
Ólafur Ingi Skúlason (Þ) aldur 43
Brynjar Dagur Sighvatsson (Liðsstj.) aldur 23
Dagur Elís Gíslason (Liðsstj.) aldur 23
Haraldur Björnsson (MÞ) aldur 37
Helgi Jónas Guðfinnsson (Styrktarþj.) aldur 50
Emil Pálsson (AÞ) aldur 33
Særún Jónsdóttir (Sjúkraþj.) aldur 45
Gul spjöld:
Rauð spjöld:Leik lokið!
Engin þynnka í Blikum!
Sigurður Hjörtur flautar til leiksloka. Nýkrýndir bikarmeistarar hirða stigin þrjú!
Viðtöl og skýrsla væntanleg.
Viðtöl og skýrsla væntanleg.
94. mín
Munaði litlu sem engu!
Kennie Chopart með stórhættulega fyrirgjöf. Róbert Hauks kastar sér á boltann en munaði einu skónúmeri að hann næði að reka stóru tána í boltann.
93. mín
Framarar banka og banka
Jakob Byström með skot úr teig Blika en Anton Ari ver örugglega.
92. mín
Kristófer Konráðs með skot af löngu færi en Anton Ari ver vel. Anton búinn að vera flottur í dag.
86. mín
Hællinn!
Róbert Hauks með hælspyrnu á lofti sem Anton Ari ver vel. Skemmtileg tilraun!
79. mín
Inn:Óliver Elís Hlynsson (Fram)
Út:Þorri Stefán Þorbjörnsson (Fram)
Framarar nýta stoppið og gera breytingu.
79. mín
Leit ekki vel út
Róbert Hauks og Anton Ari skella saman og liggja báðir eftir og fá aðhlynningu. Þetta leit ekki vel út, sýndist Anton fara verr út úr þessu.
74. mín
Skoppandi bolti í teig Blika, Róbert Hauks lætur vaða en hittir boltann illa og tilraun hans framhjá.
69. mín
Inn:Viktor Örn Margeirsson (Breiðablik)
Út:Ívar Örn Árnason (Breiðablik)
Ívar neyðist til að fara af velli
66. mín
Gult spjald: Jakob Byström (Fram)
Gult spjald: Jakob Byström (Fram)
Byström fer seint í Ívar Örn sem liggur niðri og þarfnast aðhlynningar. Blikar ósáttir með Svíann þarna.
66. mín
MARK!
MARK!Ásgeir Helgi Orrason (Breiðablik)
Blikar bæta við!
Blikar fá hornspyrnu. Boltinn fer manna á milli í teignum þar til að Ásgeir Helgi setur boltann í netið af stuttu færi.
59. mín
Framarar fá hornspyrnu. Boltinn á hættusvæðið, af varnarmanni Breiðabliks og rétt yfir markið.
59. mín
Laglegt spil Framara
Hár bolti á fjær, Kennie leggur hann út í fyrsta á Kristófer sem lætur vaða en tilraun hans í varnarmann og aftur fyrir endalínu.
53. mín
Hiti í mannskapnum
Kyle McLagan fer seint í Davíð Ingvars og réttilega flautar Sigurður Hjörtur. Úr verður minniháttar kítingur og Sigurður Hjörtur talar menn til.
49. mín
MARK!
MARK!Róbert Hauksson (Fram)
Byrja þetta af krafti!
Kristófer með hættulega fyrirgjöf sem Róbert kastar sér á og stýrir í netið af stuttu færi.
Framarar hafa komið grimmir út hér í þennan seinni hálfleik.
Framarar hafa komið grimmir út hér í þennan seinni hálfleik.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Rúnar gerir tvöfalda breytingu á liði sínu en Blikar mæta með óbreytt lið út í síðari hálfleik.
45. mín
Hálfleikur
Geta tryggt titilinn á Meistaravöllum
Fari svo að Fram vinni ekki hér í kvöld þá geta Víkingar tryggt titilinn með sigri á KR á Meistaravöllum í næstu umferð.
45. mín
Hálfleikur
Mjög svo furðulegum fyrri hálfleik lokið
Sigurður Hjörtur flautar til leikhlés og leiða Blikar með tveimur mörkum þrátt fyrir að hafa aðeins átt eina marktilraun.
Gerðist nákvæmlega ekkert þar til á 30. mínútu þegar Kennie Chopart setti boltann í eigið net. Því næst gerðist ekkert í 15 mínútur, þar til að Gabríel Snær tvöfaldaði forystu Blika.
Gerðist nákvæmlega ekkert þar til á 30. mínútu þegar Kennie Chopart setti boltann í eigið net. Því næst gerðist ekkert í 15 mínútur, þar til að Gabríel Snær tvöfaldaði forystu Blika.
45. mín
MARK!
MARK!Gabríel Snær Hallsson (Breiðablik)
Stoðsending: Davíð Ingvarsson
Stoðsending: Davíð Ingvarsson
Tvöfalda forystuna rétt fyrir hálfleik!
Davíð sker boltann út í teiginn á Gabríel sem hittir ofan á boltann og hann flýgur nokkuð furðulega í bláhornið.
Ef minnið er ekki að svíkja mig að þá er þetta fyrsta marktilraun leiksins í átt að marki andstæðinganna.
Ef minnið er ekki að svíkja mig að þá er þetta fyrsta marktilraun leiksins í átt að marki andstæðinganna.
41. mín
Haraldur Einar með tvær tilraunir að marki Blika en Anton Ari sér við honum í tvígang.
30. mín
SJÁLFSMARK!
SJÁLFSMARK!Kennie Chopart (Fram)
Fyrirliðinn setur hann í eigið net!
Fyrirgjöf frá hægri sem Kennie ætlar sér að skalla frá en hittir boltann ægilega og setur hann í eigið net.
Fyrsta marktilraun leiksins er Framara en á rangt mark.
Fyrsta marktilraun leiksins er Framara en á rangt mark.
29. mín
Nú fær Breiðablik hornspyrnu en spyrnan nær ekki yfir fyrsta varnarmann.
Nánast orðið kómískt hvað það hefur lítið gerst.
Nánast orðið kómískt hvað það hefur lítið gerst.
27. mín
Ekki eitt brot búið að eiga sér stað
Sigurður Hjörtur hefur ekki þurft að hafa mikið fyrir hlutunum það sem af er leiks, ekki frekar en undirritaður á lyklaborðinu, og á hann enn eftir að flauta sína fyrstu aukaspyrnu.
25. mín
Enn beðið eftir fyrsta skoti leiksins
Framarar með fyrirgjöf sem Ásgeir Helgi nær snertingu á og Anton Ari handsamar boltann. Heimamenn halda betur í boltann.
22. mín
Ekkert að frétta
Nú eru rúmar 22 mínútur búnar af leiknum og ég þori að fullyrða að ég hef ekki séð jafn dapra byrjun á einum fótboltaleik.
20. mín
Freyr vinnur boltann á hættulegum stað, sóknin virðist vera að renna út í sandinn þar til Kennie Chopart lætur vaða af löngu færi. Skot hans fer beint í Ívar Örn sem liggur óvígur eftir.
14. mín
Linur bolti
Sigurður Hjörtur dómari stöðvar leikinn og skiptir um bolta. Það hlýtur að orsaka þessa tíðindalitlu upphafsmínútur.
2. mín
Óli Valur kemst í álitlega stöðu en er of lengi að athafna sig og Framarar komast í boltann.
Fyrir leik
Styttist!
Valtýr Björn tók vel á móti undirrituðum við inngang fjölmiðla og hollvinagesta og bauð hann upp á strangheiðarlegan plokkfisk. Allt upp á tíu í Úlfarsárdalnum!
Fyrir leik
Leikmenn Fram með sorgarbönd
Í leiknum gegn Blikum í kvöld bera leikmenn Fram sorgarbönd til minningar um Hólmbert Friðjónsson, fyrrverandi þjálfara Fram, sem lést á dögunum, 85 ára að aldri.
Hólmbert tók við þjálfun meistaraflokks karla hjá Fram árið 1979 og stýrði liðinu í þrjú ár, til ársins 1981. Tími hans hjá félaginu var afar farsæll. Undir stjórn Hólmberts varð Fram bikarmeistari tvö ár í röð, 1979 og 1980, og liðið hafnaði í öðru sæti Íslandsmótsins bæði 1980 og 1981.

Blikar rotera vel í liðinu og mæta vel ferskir eftir Bikartitilinn, menn eins og Þorleifur skulda mörk. Framarar skora alltaf sín mörk líka en leka að vanda. Yfir 3,5 á Epic er 1.83 og ég held það vinnist nokkuð þæginlega.
— Kristalkúlan (@kristalkulan) September 15, 2026
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi - Fjórar breytingar Blika
Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, er tilneyddur til að gera eina breytingu á byrjunarliði sínu frá 2-2 jafntefli Fram gegn Víkingi í síðustu umferð.
Ægir Jarl Jónasson fékk að líta rauða spjaldið gegn Víkingi og er hann því ekki í leikmannahóp Fram í dag. Inn í hans stað kemur Már Ægisson.
Fred Saravia er áfram á bekknum en hefur verið að glíma við meiðsli og var ónotaður varamaður gegn Víkingi.
Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, gerir fjórar breytingar á byrjunarliði sínu frá úrslitaleik Mjólkurbikarsins á föstudag.
Þeir Ívar Örn, Kristinn Jónsson, Jónatan Guðni og Gabríel Snær koma allir inn í liðið.
Úr byrjunarliðinu víkja fyrirliðinn Höskuldur Gunnlaugsson, Aron Bjarnason, Kristófer Ingi og Viktor Örn.

Ægir Jarl í banni
Framarar verða án Ægis Jarls Jónassonar í kvöld en hann fékk að líta rauða spjaldið gegn Víkingi í síðustu umferð.
Fred Saravia er að koma til baka eftir meiðsli og gæti komið inn á miðjuna í hans stað í liði Fram.
Fred Saravia er að koma til baka eftir meiðsli og gæti komið inn á miðjuna í hans stað í liði Fram.

Fyrir leik
Níu dagar síðan Framarar spiluðu
Blikar fá aðeins þriggja daga hvíld á milli leikja en Framarar hafa fengið átta daga til þess að ná kröftum sínum á ný eftir 2-2 jafntefli gegn Víkingi á Víkingsvelli.
Spurning hvort að hvíldin muni hafa einhver áhrif í kvöld.

Spurning hvort að hvíldin muni hafa einhver áhrif í kvöld.

Fyrir leik
Höskuldur orðaður við Val
Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, hefur síðustu vikurnar verið orðaður við Val en Halldór Árnason, sem þjálfaði Höskuld á árunum 2020-25 hjá Breiðabliki, mun taka við Val eftir tímabilið.
Fyrir leik
Blikar unnu bikar
Breiðablik vann Aftureldingu í úrslitaleik Mjólkurbikarsins á föstudaginn síðastliðinn.
Gengi liðsins í deild fyrir þann leik hafði ekki verið upp á marga fiska og er spurning hvernig Blikar mæta til leiks hér í kvöld.

Gengi liðsins í deild fyrir þann leik hafði ekki verið upp á marga fiska og er spurning hvernig Blikar mæta til leiks hér í kvöld.

Fyrir leik
Baráttan um annað sætið
Með sigri Víkinga í gær má segja að liðið sé með níu fingur á Íslandsmeistaratitlinum.
Fram er ellefu stigum á eftir toppliðinu en getur minnkað forystu Íslandsmeistarana niður í átta stig.
Framarar eru þó í harðri baráttu við KR-inga um annað sæti deildarinnar sem veitir betra Evrópusæti. Liðið sem hafnar í öðru sæti sleppir fyrstu umferð í forkeppni Sambandsdeildarinnar.
Fram er með 45 stig en KR 47 stig.