Í BEINNI
Uppfæra
-
LL
2 Víkingur R.2 Fram
-
LL
4 ÍA4 Keflavík
-
LL
8 KR3 Breiðablik
-
LL
5 KA1 ÍBV
-
LL
1 FH2 Þór
-
LL
6 Stjarnan0 Valur
Besta karla - Efri hluti
Meistaravellir
19.09.2026 - 14:00
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Meistaravellir
19.09.2026 - 14:00
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson

KR
1
2
Víkingur R.

Galdur Guðmundsson
'10
1-0
1-1
Helgi Guðjónsson
'34
, víti
1-2
Stígur Diljan Þórðarson
'71
Daníel Hafsteinsson
'89
Sveinn Margeir Hauksson
'90
Aron Baldvin Þórðarson
'90
Hajrudin Cardaklija
'90
Hrafn Tómasson
'90
Maður leiksins: Gylfi Þór Sigurðsson
Byrjunarlið:
1. Arnar Freyr Ólafsson (m) 33
4. Michael Akoto 29
('81)
('81)
11. Aron Sigurðarson (f) 33
17. Luke Rae 25
21. Gabríel Hrannar Eyjólfsson 27
23. Arnór Ingvi Traustason 33
26. Hrafn Tómasson 23
28. Hjalti Sigurðsson 26
30. Sigurður Breki Kárason 16
('60)
('60)
45. Galdur Guðmundsson 20
77. Orri Hrafn Kjartansson 24
- Meðalaldur 26 ár
Varamenn:
12. Halldór Snær Georgsson (m) 22
31. Sigurpáll Sören Ingólfsson (m) 23
7. Finnur Tómas Pálmason 25
9. Eiður Gauti Sæbjörnsson 27
('60)
('60)
22. Ástbjörn Þórðarson 27
('81)
('81)
24. Fannar Heimisson 15
25. Matthías Björgvin Kjartansson 17
29. Aron Þórður Albertsson 30
95. Sölvi Snær Ásgeirsson 18
- Meðalaldur 23 ár
Liðsstjórn:
Óskar Hrafn Þorvaldsson (Þ) aldur 52
Hilmar Árni Halldórsson (AÞ) aldur 34
Hrannar Bogi Jónsson (AÞ) aldur 33
Magnus Börheim (Sjúkraþj.) aldur 32
Björn Valdimarsson (Forráðam.) aldur 31
Lúðvík Júlíus Jónsson (Liðsstj.) aldur 72
Guðjón Örn Ingólfsson (Styrktarþj.) aldur 43
Jamie Paul Brassington (MÞ) aldur 35
Gul spjöld:
Arnar Freyr Ólafsson ('33)
Orri Hrafn Kjartansson ('50)
Hrafn Tómasson ('63)
Luke Rae ('73)
Ástbjörn Þórðarson ('82)
Rauð spjöld:
Hrafn Tómasson ('90)
Byrjunarlið:
29. Aron Snær Friðriksson (m) 29
4. Oliver Ekroth (f) 34
9. Helgi Guðjónsson 27
10. Gylfi Þór Sigurðsson 37
11. Daníel Hafsteinsson 26
15. Róbert Orri Þorkelsson 24
21. Aron Elís Þrándarson 31
('61)
('61)
22. Karl Friðleifur Gunnarsson 25
('74)
('74)
25. Valdimar Þór Ingimundarson 27
69. Ármann Ingi Finnbogason 22
('61)
('61)
77. Stígur Diljan Þórðarson 20
('86)
- Meðalaldur 27 ár
('86)
Varamenn:
47. Ögmundur Kristinsson (m) 37
5. Sölvi Stefánsson 19
8. Viktor Örlygur Andrason 26
('86)
('86)
23. Nikolaj Hansen 33
24. Davíð Örn Atlason 32
('74)
('74)
27. Sveinn Aron Guðjohnsen 28
30. Sveinn Margeir Hauksson 24
('61)
('61)
52. Viðar Elí Bjarnason 19
66. Óskar Borgþórsson 23
70. Hrannar Snær Magnússon 24
('61)
- Meðalaldur 27 ár
('61)
Liðsstjórn:
Sölvi Geir Ottesen (Þ) aldur 42
Aron Baldvin Þórðarson (AÞ) aldur 31
Hajrudin Cardaklija (MÞ) aldur 61
Rúnar Pálmarsson (Sjúkraþj.) aldur 45
Viktor Bjarki Arnarsson (AÞ) aldur 43
Kári Sveinsson (Styrktarþj.) aldur 33
Þórir Ingvarsson (Liðsstj.) aldur 66
Gul spjöld:
Daníel Hafsteinsson ('25)
Hrannar Snær Magnússon ('80)
Rauð spjöld:
Daníel Hafsteinsson ('89)
Sveinn Margeir Hauksson ('90)
Aron Baldvin Þórðarson ('90)
Hajrudin Cardaklija ('90)
Leik lokið!
+10
VÍKINGUR ER ÍSLANDSMEISTARI ÁRIÐ 2026.
Til hamingju Víkingar nær og fjær.
Til hamingju Víkingar nær og fjær.
90. mín
Rautt spjald: Hrafn Tómasson (KR)
Rautt spjald: Hrafn Tómasson (KR)
+9
HVAÐ ER AÐ GERAST HÉRNA??? Hrafn brýtur pirringslega af sér og fær seinna gula.
90. mín
Rautt spjald: Hajrudin Cardaklija (Víkingur R.)
Rautt spjald: Hajrudin Cardaklija (Víkingur R.)
+6
HANN SPARKAR BOLTA INN Á VÖLLINN.
90. mín
Rautt spjald: Aron Baldvin Þórðarson (Víkingur R.)
Rautt spjald: Aron Baldvin Þórðarson (Víkingur R.)
+4
Mótmæli eftir rauða spjaldið sem Sveinn fékk.
90. mín
Rautt spjald: Sveinn Margeir Hauksson (Víkingur R.)
Rautt spjald: Sveinn Margeir Hauksson (Víkingur R.)
+3
SVEINN MARGEIR FÆR BEINT RAUTT OG VÍKINGAR TRYLLAST. Hann er allt of seinn og tekur Orra Hrafn niður. Þetta er virkilega strangur dómur og ég skil gremju Víkinga.
90. mín
+1
Arnar Freyr með skelfilega sendingu sem Valdimar kemst í. Hann nær snertingunni framhjá Arnari en Valdimar missir boltann aðeins of langt frá sér.
89. mín
Rautt spjald: Daníel Hafsteinsson (Víkingur R.)
Rautt spjald: Daníel Hafsteinsson (Víkingur R.)
DANÍEL FÆR SITT SEINNA GULA!
KR-ingar eru að spila út frá marki. Hrafn Tómasson sendir boltann frá sér og Daníel keyrir í bakið á honum.
87. mín
DAUÐAFÆRI!
Hjalti rennur og Valdimar hirðir af honum boltann. Hann sker síðan boltann út á Viktor Örlyg en skotið hans fer framhjá. Þarna verður Viktor að klára leikinn.
86. mín
Inn:Viktor Örlygur Andrason (Víkingur R.)
Út:Stígur Diljan Þórðarson (Víkingur R.)
84. mín
Víkingar eru fjórir á þrjá. Boltinn endar hjá Hrannari sem reynir skot en það fer í varnarmann og Arnar Freyr handsamar boltann. Illa farið með góða stöðu.
82. mín
Víkingar fá aukaspyrnu rétt fyrir utan teig. Sniðug spyrna, boltinn fer á Róbert Orra en skotið er laust.
80. mín
Gult spjald: Hrannar Snær Magnússon (Víkingur R.)
Gult spjald: Hrannar Snær Magnússon (Víkingur R.)
Hrannar kemst framhjá Gabríel og fellur við. Sigurður dæmir dýfu og gult spjald niðurstaðan.
79. mín
ÞVÍLÍK VARSLA!
Daníel Hafsteins fær boltann fyrir utan teig. Han reynir að stýra boltanum í fjærhornið en Arnar ver meistaralega.
77. mín
Daníel sker boltann á Gylfa. Hann lætur vaða rétt fyrir utan teig en skotið fer rétt yfir fjærhornið.
73. mín
Gult spjald: Luke Rae (KR)
Gult spjald: Luke Rae (KR)
Tekur Helga niður og Víkingar fá aukaspyrnu á fínum stað.
71. mín
MARK!
MARK!Stígur Diljan Þórðarson (Víkingur R.)
VÍKINGAR ERU KOMNIR YFIR!
Akoto tapar boltanum og Stígur Diljan er fyrstur á boltann. Hann tekur eina snertingu og er kominn einn í gegn, hann klárar síðan vel framhjá Arnari í markinu.
70. mín
KR-ingar eru fáir til baka eftir sókn. Hrannar Snær er með mikinn tíma og pláss. Hann keyrir inn á teiginn og reynir að plata Akoto en hann verst vel.
67. mín
Galdur æðir upp vinstri kantinn og Stígur nær ekki að stoppa hann. Hann sker síðan boltann út á Eið Gauta en fyrsta snertingin svíkur hann.
65. mín
STÓRHÆTTA!
Hrannar Snær fær boltann úti hægra megin. Hann reynir að lyfta boltanum yfir Arnar Frey og boltinn smellur í sláni. KR-ingar bægja hættunni frá í kjölfarið.
63. mín
Gult spjald: Hrafn Tómasson (KR)
Gult spjald: Hrafn Tómasson (KR)
Hrafn Tómasson með groddaralega tæklingu á Daníel Hafsteins sem liggur eftir sárþjáður. Bekkur Víkings ósáttur með tæklinguna.
61. mín
Inn:Hrannar Snær Magnússon (Víkingur R.)
Út:Ármann Ingi Finnbogason (Víkingur R.)
61. mín
KR-ingar í miklum vandræðum með að hreinsa frá eftir langt innkast. Boltinn dettur fyrir Gylfa en skot hans fer langt yfir markið.
60. mín
Inn:Eiður Gauti Sæbjörnsson (KR)
Út:Sigurður Breki Kárason (KR)
Óskar gerir sína fyrstu breytingu.
59. mín
Víkingar fá horn. Boltinn kemur inn á teiginn en það er skallað frá. Boltinn hrekkur síðan til Gylfa, hann nær föstu skoti en það fer beint á Arnar Frey í markinu.
57. mín
KR spila frábærlega saman á miðjunni. Hjalti fær boltann og kemur honum á Luke Rae sem kemur með hættulega fyrirgjöf en enginn KR-ingur kemst í boltann.
54. mín
Galdur vinnur horn. Arnór Ingvi kemur með boltann inn á teiginn en það er skallað frá.
51. mín
Arnór Ingvi með magnaða móttöku og flikkar boltanum yfir Helga. Arnór tekur síðan skotið sem fer í varnarmann og í horn. Ekkert verður úr horninu.
49. mín
Aron Sig fær boltann við rétt fyrir framan miðju. Hann keyrir inn á teig Víkinga og er við það að hlaða í skot en Oliver Ekroth verst vel.
45. mín
Hálfleikur
+1
Fjörugur fyrri hálfleikur að baki. Bæði lið hafa skapað fín færi og sanngjörn niðurstaða í hálfleik.
44. mín
Daníel Hafsteins kemur með fyrirgjöf frá hægri. Boltinn ratar á Aron Elís en Gabríel Hrannar nær að trufla hann og Arnar grípur boltann.
41. mín
Stígur kemst inn á völlinn og vinnur aukaspyrnu á fínum stað. Gylfi skýtur en boltinn fer framhjá markinu.
39. mín
Akoto kemur með hræðilega sendingu inn á miðjuna og Daníel Hafsteins lætur vaða en Arnar er fljótur til baka og handsamar boltann.
38. mín
Hjalti kemst upp að endamörkum og vinnur horn. Spyrnan er slök og Helgi hreinsar frá. Í kjölfarið tapar Luke Rae boltanum og Ármann Ingi tekur skotið en hittir boltann illa og Arnar Freyr nær að bruna aftur í markið.
36. mín
Galdur fer á milli tveggja manna og fellur við. Sigurður Hjörtur dæmir dýfu á Galdur, hárréttur dómur að mínu mati.
34. mín
Mark úr víti!
Mark úr víti!Helgi Guðjónsson (Víkingur R.)
ALLT JAFNT Á NÝJAN LEIK!
Frábært víti. Skýtur í hægra hornið og sendir Arnar Frey í rangt horn.
32. mín
VÍKINGUR FÆR VÍTI!
Boltinn kemur í gegn á Karl Friðleif. Aron Snær rýkur út úr markinu en hann er of seinn og tekur Karl niður.
29. mín
Hrafn finnur Orra Hrafn á miðjunni, fyrsta snertingin hans er úr efstu hillu. Hann keyrir síðan í átt að marki Víkinga og tekur skot sem Aron Snær ver nokkuð þægilega í markinu.
28. mín
Luke Rae kemur með skemmtilega sendingu í gegn á Arnór Ingva en flaggið fer á loft.
25. mín
Gult spjald: Daníel Hafsteinsson (Víkingur R.)
Gult spjald: Daníel Hafsteinsson (Víkingur R.)
Daníel Hafsteins er sá fyrsti sem fer í svörtu bókina.
24. mín
Gabríel Hrannar fær boltann úti vinstra megin. Hann reynir að finna Luke Rae en Aron Snær er fyrri til og handsamar boltann.
21. mín
Karl Friðleifur kemur með baneitraða fyrirgjöf frá hægri en Valdimar nær ekki nógu kraftmikilli snertingu á boltann og markspyrna niðurstaðan.
20. mín
Orri Hrafn og Gabríel reyna þríhyrning en Oliver Ekroth nær að tækla boltann í horn. Þeir taka hana stutt og síðan kemur fyrirgjöf sem endar í hornspyrnu.
18. mín
Stígur Diljan kemur með fyrirgjöf sem Arnar nær ekki að handsama í fyrstu tilraun en nær því að lokum.
16. mín
Ármann Ingi skiptir boltanum yfir á Stíg Diljan en Hjalti stoppar hann og vinnur innkast fyrir KR.
13. mín
Galdur gerir vel og vinnur fyrstu hornspyrnu leiksins. Þeir taka hana stutt og Aron kemur með hættulega fyrirgjöf sem er ætluð Sigurði Breka en hún endar í markspyrnu.
10. mín
MARK!
MARK!Galdur Guðmundsson (KR)
ÞVÍLÍKT MARK!
Karl Friðleifur tapar boltanum og Víkingar vilja aukaspyrnu. Galdur keyrir að marki Víkings, platar Oliver Ekroth upp úr skónum, fer á hægri fótinn og leggur boltann í nærhornið.
7. mín
SKALLI Í STÖNG!
Karl Friðleifur kemur með frábæra fyrirgjöf frá hægri. Aron Elís nær góðum flugskalla sem smellur í stönginni og KR bægja hættunni frá.
6. mín
Sigurður Breki fær boltann rétt fyrir utan vítateig. Hann fer á hægri fótinn en er stoppaður áður en hann nær að hleypa af.
2. mín
Galdur Guðmundsson kemur með fyrirgjöf frá vinstri. Boltinn á viðkomu í varnarmann og er við það að hrökkva til Luke Rae en Helgi kemst fyrir.
1. mín
Það er strax hægt að sjá hvað Arnar Freyr spilar ofarlega. Aron Elís brýtur á honum.
Fyrir leik
30 mínútur í leik
Bæði lið hita vel upp á Meistaravöllum. Vallaraðstæður eru góðar, logn en smá kuldi í lofti. Það fer verulega að styttast í þessa veislu.
Fyrir leik
KR-ingar mæta svona frekar kærulausir í þennan leik vitandi að vonin að verða Íslandsmeistari er mjög veik, ég tel það henta þeim, þeir spila leik sem hentar Róbert Orra afar illa. KR yfir 2 mörk á Epic er 2.05.
— Kristalkúlan (@kristalkulan) September 19, 2026
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn!
Óskar Hrafn, þjálfari KR, gerir eina breytingu á sínu liði eftir stórsigurinn gegn Skagamönnum. Eiður Gauti, sem skoraði í þeim leik, fær sér sæti á bekknum en Hrafn Tómasson kemur inn í liðið.
Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, gerir einnig eina breytingu á liði sínu eftir 4-1 sigur á Keflavík. Sveinn Margeir Hauksson fær sér sæti á bekknum en Gylfi Þór Sigurðsson kemur inn í liðið.
Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, gerir einnig eina breytingu á liði sínu eftir 4-1 sigur á Keflavík. Sveinn Margeir Hauksson fær sér sæti á bekknum en Gylfi Þór Sigurðsson kemur inn í liðið.
Fyrir leik
Hinrik spáir því að Víkingar fagni titlinum í dag
KR 1 - 2 Víkingur
„Víkingar klára dæmið og fagna í Vesturbænum, Ármann Ingi skorar seinna mark Víkings og á síðan 69 inni eftir leik. Ekki jafn mikil ára í marki KR eftir að Halldór Snær var settur á bekkinn."
„Víkingar klára dæmið og fagna í Vesturbænum, Ármann Ingi skorar seinna mark Víkings og á síðan 69 inni eftir leik. Ekki jafn mikil ára í marki KR eftir að Halldór Snær var settur á bekkinn."
Fyrir leik
Óskar Hrafn tók spjallið um Arnar Frey
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, fór yfir það hvers vegna Arnar Freyr, markmaður KR, spilar svona ofarlega í leikjum.
Fyrir leik
Frábærar fréttir fyrir Víkinga
Daníel Hafsteinsson, leikmaður Víkings, hefur framlengt samning sinn við ríkjandi Íslandsmeistarana. Hann skrifar undir til 2030.
Fyrir leik
Virkilega fallegt framtak KR
Fyrir leik
Fróðlegar tölur fyrir áhugasama
Fyrir leik
Orri Hrafn fór meðal annars yfir tímabilið og félagaskiptin frá Val í KR
„Ég er mjög ánægður með tímabilið hjá liðinu, hópnum í heild og sömuleiðis með mitt framlag til liðsins. Ég er mjög sáttur við mitt hlutverk og tel mig hafa náð að nýta mína styrkleika til að efla liðið." Viðtalið í heild sinni er hér fyrir neðan
Fyrir leik
Áhugaverðar tölur
Í 5-1 sigrinum á ÍA var KR í fyrsta sinn á tímabilinu minna með boltann en andstæðingurinn, 46,68 prósent gegn 53,32. Það er talsverð breyting fyrir lið sem hefur alla leiktíðina viljað stjórna leikjum sínum með boltann.
Fyrir leik
Það var heyrt í Óskari fyrir leik
„Ef að svo ólíklega vill til að einhver leikmaður í KR liðinu finnur ekki hjá sér þörfina til að leggja sig 100% fram - við það að spila við Víkingi á laugardegi - þá treysti ég að hann geti notað sér myndina af leikmönnum Víkings að fagna Íslandsmeistaratitil á okkar heimavelli, geti sótt einhvern aukakraft í þá mynd í huga sér." Allt viðtalið er hér fyrir neðan.
Fyrir leik
Sölvi varar við dagdraumum
Sölvi Geir ræddi við fótbolta.net fyrir leik.„Eftir síðustu umferð eru allir meðvitaðir um þetta. Eins og í öllum leikjum snýst þetta um að taka réttar ákvarðanir þegar augnablikin gefast. Við þurfum að passa okkur að þvinga ekki neitt, en ef markmaðurinn er kominn á miðjuna þá auðvitað kíkjum við hvort það sé möguleiki á því að skjóta. Það er samt engin einbeiting á það, gerist bara í leiknum hvort þeir finna fyrir því að þeir eigi að skjóta. Þetta eru ákvarðanatökur sem menn verða að taka innan leiksins," segir Sölvi Geir. Þetta er aðeins brot úr viðtalinu en það er hægt að sjá viðtalið í heild sinni hér fyrir neðan.
Fyrir leik
Það var rætt við Ármann Inga fyrir leik
„Leikurinn leggst bara vel í mig. Við þurfum bara að spila okkar leik og leggja allt í þetta," segir Ármann Ingi Finnbogason, leikmaður Víkings, fyrir stórleikinn.
Fyrir leik
Sölvi er bjartsýnn á að Gylfi verði klár í slaginn
„Gylfi æfði í gær og við þurfum að sjá til hvernig hann kemur út úr æfingu dagsins í dag. Hann náði fínustu æfingu í gær, við þurfum að meta hann dag frá degi," segir Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, um Gylfa Þór Sigurðsson.
Fyrir leik
Fyrri viðureignir liðanna
KR og Víkingur hafa mæst tvisvar í Bestu deildinni á tímabilinu. Fyrri leikurinn fór fram á Víkingsvelli í júní þar sem Víkingar höfðu betur, 2-0.
Liðin mættust svo aftur á Meistaravöllum í byrjun september og þar skildu þau jöfn, 1-1, í dramatískum leik þar sem bæði mörkin komu í uppbótartíma.
Víkingur er því enn taplaus gegn KR í deildinni á tímabilinu, með einn sigur og eitt jafntefli úr tveimur viðureignum.
Liðin mættust svo aftur á Meistaravöllum í byrjun september og þar skildu þau jöfn, 1-1, í dramatískum leik þar sem bæði mörkin komu í uppbótartíma.
Víkingur er því enn taplaus gegn KR í deildinni á tímabilinu, með einn sigur og eitt jafntefli úr tveimur viðureignum.
Fyrir leik
Víkingur
Víkingar hafa átt virkilega sterkt tímabil hingað til og eru með 9 stiga forskot á toppi deildarinnar. Þeir hafa misst marga lykilmenn í slæm meiðsli en það virðist ekki vera að hrjá þá. Ríkjandi Íslandsmeistarar geta unnið titilinn með sigri í dag.

Fyrir leik
KR
KR-ingar hafa átt gott tímabil hingað til en hafa verið skrefinu á eftir Víkingum nánast allt tímabil. Núna eru Víkingar samt með 9 stiga forskot og geta landað titlinum á Meistaravöllum í dag með sigri. KR-ingar unnu stórsigur á ÍA í fyrsta leik eftir skiptingu. Lokatölur voru 5-1 fyrir Vesturbæjarstórveldið.

Fyrir leik
Sigurður Hjörtur dæmir leikinn
Sigurður Hjörtur Þrastarson er aðaldómari. Honum til aðstoðar eru Gylfi Már Sigurðsson og Eðvarð Þór Eðvarsson.
Arnar Ingi Ingvarsson er fjórði dómari og Gylfi Þór Orrason er eftirlitsmaður.
Arnar Ingi Ingvarsson er fjórði dómari og Gylfi Þór Orrason er eftirlitsmaður.






















