Í BEINNI
Uppfæra
-
LL
2 Víkingur R.2 Fram
-
LL
4 ÍA4 Keflavík
-
LL
8 KR3 Breiðablik
-
LL
5 KA1 ÍBV
-
LL
1 FH2 Þór
-
LL
6 Stjarnan0 Valur
Besta karla - Efri hluti
ELKEM völlurinn
20.09.2026 - 16:00
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
ELKEM völlurinn
20.09.2026 - 16:00
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson

ÍA
4
1
Breiðablik

Gísli Eyjólfsson
'29
1-0
Viktor Jónsson
'43
2-0
Viktor Jónsson
'52
3-0
Markús Páll Ellertsson
'69
4-0
4-1
Birkir Þorsteinsson
'91
Maður leiksins: Gísli Eyjólfsson (ÍA)
Byrjunarlið:
1. Árni Marinó Einarsson (m) 24
5. Baldvin Þór Berndsen 22
7. Haukur Andri Haraldsson 21
('65)
('65)
9. Viktor Jónsson 32
('83)
('83)
10. Steinar Þorsteinsson 28
('83)
('83)
11. Gísli Eyjólfsson 32
13. Erik Tobias Sandberg 26
17. Gísli Laxdal Unnarsson 25
('65)
('65)
21. Böðvar Böðvarsson 31
25. Markús Páll Ellertsson 20
87. Styrmir Jóhann Ellertsson 18
('53)
- Meðalaldur 25 ár
('53)
Varamenn:
3. Johannes Vall 34
8. Guðmundur Þórarinsson 34
('53)
('53)
16. Rúnar Már S Sigurjónsson 36
18. Rafael Máni Þrastarson 19
('83)
('83)
20. Ísak Máni Guðjónsson 21
22. Ómar Björn Stefánsson 22
('83)
('83)
31. Isak Theodor Eidem 17
35. Aron Kristinn Zumbergs 16
('65)
('65)
44. Guðmar Gauti Sævarsson 18
('65)
- Meðalaldur 24 ár
('65)
Liðsstjórn:
Lárus Orri Sigurðsson (Þ) aldur 53
Aron Ýmir Pétursson (AÞ) aldur 36
Salvar Georgsson (Forráðam.) aldur 39
Mario Majic (Sjúkraþj.)
Emil Ásmundsson (Styrktarþj.) aldur 31
Teitur Pétursson (Liðsstj.) aldur 33
Dino Hodzic (MÞ) aldur 30
Gul spjöld:
Rauð spjöld:Byrjunarlið:
1. Anton Ari Einarsson (m) 32
4. Ásgeir Helgi Orrason 21
9. Óli Valur Ómarsson 23
13. Anton Logi Lúðvíksson 23
('87)
('87)
14. Hlynur Freyr Karlsson 22
('46)
('46)
16. Dagur Örn Fjeldsted 21
('65)
('65)
18. Davíð Ingvarsson 27
19. Kristinn Jónsson 36
('65)
('65)
21. Viktor Örn Margeirsson 32
29. Gabríel Snær Hallsson 19
('46)
('46)
99. Þorleifur Úlfarsson 25
- Meðalaldur 26 ár
Varamenn:
12. Gylfi Berg Snæhólm (m) 18
7. Höskuldur Gunnlaugsson 32
('46)
('46)
8. Viktor Karl Einarsson 29
('46)
('46)
11. Aron Bjarnason 31
22. Jónatan Guðni Arnarsson 19
('65)
('65)
24. Bjartur Orri Jónsson 16
('87)
('87)
32. Kristinn Narfi Björgvinsson 18
45. Þór Andersen Willumsson 17
77. Birkir Þorsteinsson 17
('65)
- Meðalaldur 22 ár
('65)
Liðsstjórn:
Jón Guðni Fjóluson (Þ) aldur 37
Ólafur Ingi Skúlason (Þ) aldur 43
Brynjar Dagur Sighvatsson (Liðsstj.) aldur 23
Dagur Elís Gíslason (Liðsstj.) aldur 23
Haraldur Björnsson (MÞ) aldur 37
Helgi Jónas Guðfinnsson (Styrktarþj.) aldur 50
Emil Pálsson (AÞ) aldur 33
Særún Jónsdóttir (Sjúkraþj.) aldur 45
Gul spjöld:
Óli Valur Ómarsson ('49)
Rauð spjöld:Leik lokið!
Bara ein mínúta í uppbót og Skagamenn vinna þennan leik. Öruggur sigur hjá þeim, skýrsla og viðtöl væntanleg seinna í kvöld.
91. mín
MARK!
MARK!Birkir Þorsteinsson (Breiðablik)
Stoðsending: Þorleifur Úlfarsson
Stoðsending: Þorleifur Úlfarsson
Smá sárabót
Blikarnir sækja hratt og koma með fyrirgjöfina frá hægri. Þá er Birkir í fullt af plássi á fjær og stangar boltan inn.
84. mín
Kemur inn á með krafti
Ómar Björn fer strax í það að hlaupa upp kantinn, koma sér inn á teiginn og tekur skotið. Það fór hins vegar beint í Anton.
78. mín
Mátti reyna!
Skagamenn koma boltanum upp hægri kantinn og svo kemur fyrirgjöfin. Viktor ákveður þá að henda bara í hjólhestinn, hann nær skotinu en það fer yfir.
71. mín
Góð tilraun!
Jónatan Guðni með skemmtilegan sprett frá vinstri kantinum og yfir á miðjan völlinn. Hann tekur svo skotið, en bara aðeins of hátt.
69. mín
MARK!
MARK!Markús Páll Ellertsson (ÍA)
Stoðsending: Gísli Eyjólfsson
Stoðsending: Gísli Eyjólfsson
Enginn í vörn
Gísli tekur boltann niður með bringunni og leggur boltann á Markús þannig. Markús röltir síðan bara frekar rólega í átt að marki, sér að það er enginn að fara í hann þannig hann bara skýtur fyrir utan teig og hittir hann niður í hornið.
64. mín
Þarna átti Haukur að skjóta
Skagamenn sækja hratt og eru tveir komnir í gegn og bara markmaðurinn til varnar. Haukur er þá í algjöru dauðafæri en bíður eftir Viktoti svo hann geti lagt á hann. Skotið frá Viktori er svo ekki nógu gott.
62. mín
Gísli Laxdal með fastan bolta fyrir, Steinar er að koma á fullum hraða inn í teiginn og hann nær til boltans en ekki nægilega vel þannig hann 'slæsar' hann aftur fyrir.
60. mín
Flott spil hjá Blikum
Blikarnir að spila ágætlega saman í kringum teig Skagamanna. Viktor Karl tekur svo skotið en í varnarmann og svo afturfyrir.
58. mín
Gísli Laxdal í fínni stöðu en hittir boltann mjög illa þannig skotið hans langt framhjá.
57. mín
Flottir taktar
Steinar Þorsteins með danstakta fyrir utan teig, býr sér þannig til smá pláss og tekur svo fast skot á markið en Anton með mjög góða vörslu.
54. mín
Góð varsla!
Blikarnir sækja hratt og Höskuldur leggur boltann á Davíð sem er að bruna upp vinstri kantinn. Davíð fer svo inn á teig og reynir skotið, en Árni með góða vörslu til að stöðva þetta.
52. mín
MARK!
MARK!Viktor Jónsson (ÍA)
Stoðsending: Böðvar Böðvarsson
Stoðsending: Böðvar Böðvarsson
Aftur skilja þeir besta skallamanninn eftir frían
Skagamenn með aukaspyrnu við vinstri hlið teigsins. Böðvar lyftir boltanum inn í teiginn á fjær og það er bara enginn að dekka Viktor. Hann stekkur upp og stangar hann í netið.
46. mín
Inn:Viktor Karl Einarsson (Breiðablik)
Út:Hlynur Freyr Karlsson (Breiðablik)
Tvöföld í hálfleik hjá Ólafi Inga
45. mín
Hálfleikur
Skagamenn með tveggja marka forystu í hálfleik en það skilaði sér út af góðri pressu. Heilt yfir mjög rólegur leikur en Skagamenn náðu í þessi tvö færi og nýttu það vel.
45. mín
Skagamenn í færi
+1
Skagamenn með aukaspyrnu sem þeir lyfta inn í teiginn. Viktor er þá mættur á fjær en hittir ekki boltann nógu vel þannig að skotið verður laust og Anton grípur.
Skagamenn með aukaspyrnu sem þeir lyfta inn í teiginn. Viktor er þá mættur á fjær en hittir ekki boltann nógu vel þannig að skotið verður laust og Anton grípur.
43. mín
MARK!
MARK!Viktor Jónsson (ÍA)
Stoðsending: Haukur Andri Haraldsson
Stoðsending: Haukur Andri Haraldsson
Skagamenn tvöfalda forystuna!
Góð pressa hjá Skagamönnum aftur og þeir vinna boltann ofarlega á vellinum. Haukur kemur þá með fyrirgjöfina inn í teiginn, og Blikarnir skilja Viktor eftir í of miklu plássi. Hann er þá í sinni uppáhaldsstöðu og stangar boltann í netið.
40. mín
Aftur orðið rólegt
Þetta mark náði ekki alveg að setja spennuna í leikinn sem maður vonaðist eftir.
33. mín
Árni heppinn þarna
Blikar með langan bolta fram og Árni Marinó tekur alvöru skógarhlaup út úr markinu til að hreinsa boltann. Hann rétt nær smá snertingu og Dagur Örn nær að beygja sig frá fætinum á honum. Munaði litlu að hann hefði bara sparkað beint í Dag.
29. mín
MARK!
MARK!Gísli Eyjólfsson (ÍA)
Klúður í öftustu línu
Viktor Örn fulll rólegur með boltann og gefur hreinlega bara á Gísla sem er að koma í pressuna. Gísli er þá bara einn gegn markmanni, og hann röltir bara framhjá Antoni og skorar svo í opið markið.
Það einmitt líka gegn sínum gömlu félögum.
Það einmitt líka gegn sínum gömlu félögum.
27. mín
Markús með tvö skot
Flott þríhyrningaspil milli Markús og Gísla fyrir ÍA og Markús tekur svo fast skot en í varnarmann. Skagamenn halda samt boltanum, spila saman í kringum teiginn og koma honum aftur á Markús sem tekur þá skotið yfir markið.
21. mín
Dauðafæri!
Flott spil hjá Blikunum og þeir koma boltanum á Þorleif úti vinstra megin. Hann gefur boltann fastan fyrir á Anton Loga sem er alveg ódekkaður við vítapunktinn. Skotið hans hins vegar ekki nógu nákvæmt og það fer framhjá.
17. mín
Blikar í færi
Dagur Örn kemur með fyrirgjöfina frá hægri beint á kollinn á Þorleifi. Honum tekst bara ekki að beina skallanum niður, þannig þessi fer yfir.
15. mín
Gangur leiksins
Það er frekar rólegt yfir þessum leik hér í byrjun. Svona eins og við mátti búast, ekkert undir í þessum leik fyrir bæði lið.
7. mín
Dagur Örn keyrir á Böðvar, tekur svo eina snögga hreyfingu til hliðar áður en hann tekur skotið. Það fór hins vegar lengst yfir.
5. mín
Gabríel Snær með flottan snúning fyrir utan teig. Opnar svo líkamann og er kominn í frábært skotfæri. Þá ná Skagamenn hins vegar á síðustu stundu að pota boltann frá honum.
3. mín
Fyrsta færið
Gísli Eyjólfs með frábæran sprett upp miðjan völlinn, leggur svo boltann á Viktor þegar þeir komast að teignum. Viktor reynir skotið en í það fer í varnarmann og afturfyrir.
Fyrir leik
Dómarabreyting
Jóhann Ingi verður á hliðarlínunni, hann hefur eitthvað meiðs í upphitun. Gunnar Freyr Róbertsson verður þá með flautuna í þessum leik.
Fyrir leik
Ekkert undir á skaganum, fínasta veður og menn eru væntanlega mættir til að spila fótbolta og skora mörk, Yfir 3,5 mörk á Epic er 1.78
— Kristalkúlan (@kristalkulan) September 20, 2026
Fyrir leik
Tvær Blikabreytingar
Ólafur Ingi Skúlason þjálfari Breiðabliks gerir tvær breytingar á sínu liði. Ívar Örn Árnason er ekki með í dag, og Jónatan Guðni Arnarson fær sér sæti á bekknum. Dagur Örn Fjeldsted og Viktor Örn Margeirsson koma inn fyrir þá.

Fyrir leik
Ein breyting hjá ÍA
Lárus Orri Sigurðsson þjálari ÍA gerir eina breytingu á sínu liði. Steinar Þorsteinsson kemur inn í liðið á meðan Jón Gísli Eyland Gíslason tekur út leikbann.

Fyrir leik
Rosalegur gærdagur
Það var rosalegur gærdagur í Bestu deildinni þar sem Víkingur innsiglaði meistaratitilinn á Meistaravöllum og KA fór illa með Þór. Fjallað var um leikina í Innkastinu og þá er einnig hægt að sjá það helsta úr þeim hér að neðan.
Fyrir leik
Dómarinn
Jóhann Ingi Jónsson verður með flautuna í dag en honum til aðstoðar verða Guðmundur Ingi Bjarnason og Kristofer Bergmann. Gunnar Freyr Róbertsson verður fjórði dómari og eftirlitsmaður Þórður Georg Lárusson.

Fyrir leik
Spáin
Hinrik Harðarson, leikmaður Egersund í Noregi, spáir í leikina sem framundan eru.
ÍA 2 - 2 Breiðablik
Mínir menn upp á Skaga hljóta ætla að klára mótið með sæmd, vera faglegir. Blikarnir komnir með þann stóra og allir ligeglad.
ÍA 2 - 2 Breiðablik
Mínir menn upp á Skaga hljóta ætla að klára mótið með sæmd, vera faglegir. Blikarnir komnir með þann stóra og allir ligeglad.
Fyrir leik
Þýðingalítill leikur
ÍA er í 5. sæti deildarinnar með 30 stig og Breiðablik einu sæti ofar með 33 stig. Það eru hins vegar alveg 12 stig upp í þriðja sætið og því ekki hægt að ná því. Aðeins efstu þrjú sætin gefa liði þátttökurétt í Evrópukeppni á næsta ári og því lítið fyrir þessi tvö lið að spila fyrir. Þau munu eitthvað berjast um að vera liðið sem fær fjórða sætið, en það er aðallega upp á stoltið.

Fyrir leik
Besta deildin heilsar!
Komið þið sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik ÍA og Breiðablik í 24. umferð Bestu deildar karla.
Leikurinn hefst klukkan 16:00 og verður spilaður á Elkem vellinum.
sunnudagur 20. september
Besta karla - Efri hluti
16:00 Keflavík-Fram (HS Orku völlurinn)
16:00 ÍA-Breiðablik (ELKEM völlurinn)
Besta karla - Neðri hluti
16:00 ÍBV-Valur (Hásteinsvöllur)
16:00 FH-Stjarnan (Kaplakrikavöllur)
Leikurinn hefst klukkan 16:00 og verður spilaður á Elkem vellinum.

sunnudagur 20. september
Besta karla - Efri hluti
16:00 Keflavík-Fram (HS Orku völlurinn)
16:00 ÍA-Breiðablik (ELKEM völlurinn)
Besta karla - Neðri hluti
16:00 ÍBV-Valur (Hásteinsvöllur)
16:00 FH-Stjarnan (Kaplakrikavöllur)


