Í BEINNI
Uppfæra
-
LL
2 Víkingur R.2 Fram
-
LL
4 ÍA4 Keflavík
-
LL
8 KR3 Breiðablik
-
LL
5 KA1 ÍBV
-
LL
1 FH2 Þór
-
LL
6 Stjarnan0 Valur
Besta karla - Efri hluti
HS Orku völlurinn
20.09.2026 - 16:00
Aðstæður: Nánast logn í Keflavík 10 fingur upp til Guðs
Dómari: Elías Ingi Árnason
HS Orku völlurinn
20.09.2026 - 16:00
Aðstæður: Nánast logn í Keflavík 10 fingur upp til Guðs
Dómari: Elías Ingi Árnason

Keflavík
2
2
Fram

Stefan Ljubicic
'48
1-0
1-1
Freyr Sigurðsson
'52
1-2
Freyr Sigurðsson
'59
Elvis Bwomono
'66
2-2
Áhorfendur: 390
Maður leiksins: Viktor Freyr Sigurðsson
Byrjunarlið:
1. Ásgeir Orri Magnússon (m) 22
2. Elvis Bwomono 27
('71)
('71)
6. Sindri Snær Magnússon (f) 34
('81)
('81)
7. Dagur Ingi Valsson 27
10. Stefan Ljubicic 27
20. Marin Brigic 26
21. Alpha Conteh 26
23. Eiður Orri Ragnarsson 22
25. Frans Elvarsson 36
('63)
('63)
47. Egill Valur Karlsson 17
('71)
('71)
88. Mate Simicic 21
- Meðalaldur 26 ár
Varamenn:
30. Rafal Stefán Daníelsson (m) 24
3. Axel Ingi Jóhannesson 22
('71)
('71)
4. Nacho Heras 35
14. Marin Mudrazija 31
('63)
('63)
18. Ernir Bjarnason 29
('81)
('81)
22. Ásgeir Páll Magnússon 26
('71)
('71)
26. Viktor Nóel Sveinsson 14
28. Hafþór Davíðsson 15
- Meðalaldur 25 ár
Liðsstjórn:
Haraldur Freyr Guðmundsson (Þ) aldur 44
Karlo Bacinger (Sjúkraþj.)
Jónas Guðni Sævarsson (Leikgr.) aldur 42
Ómar Jóhannsson (MÞ) aldur 45
Óskar Rúnarsson (Leikgr.) aldur 36
Hólmar Örn Rúnarsson (AÞ) aldur 44
Gul spjöld:
Frans Elvarsson ('41)
Marin Mudrazija ('80)
Mate Simicic ('91)
Rauð spjöld:Byrjunarlið:
22. Viktor Freyr Sigurðsson (m) 26
3. Þorri Stefán Þorbjörnsson 20
('81)
('81)
5. Kyle McLagan 31
('63)
('63)
8. Haraldur Einar Ásgrímsson 26
9. Róbert Hauksson 25
10. Fred Saraiva 30
('81)
('81)
18. Ægir Jarl Jónasson 28
19. Kennie Chopart (f) 36
25. Freyr Sigurðsson 20
26. Sigurjón Rúnarsson 26
29. Vuk Oskar Dimitrijevic 25
('71)
- Meðalaldur 27 ár
('71)
Varamenn:
1. Sigurjón Daði Harðarson (m) 25
7. Kristófer Konráðsson 28
('71)
('71)
12. Simon Tibbling 32
14. Bjarni Páll Linnet Runólfsson 30
15. Jakob Byström 21
('81)
('81)
16. Israel Garcia 28
('81)
('81)
21. Óliver Elís Hlynsson 22
23. Már Ægisson 26
('63)
('63)
24. Nói Birgisson 17
38. Guðmundur Ágúst Héðinsson 17
- Meðalaldur 25 ár
Liðsstjórn:
Rúnar Kristinsson (Þ) aldur 57
Sævar Halldórsson (Leikgr.) aldur 23
Guðmundur Gígjar Sigurbjörnsson (Styrktarþj.) aldur 23
Kristján Finnbogi Finnbogason (MÞ) aldur 55
Magnús Þorsteinsson (Liðsstj.) aldur 65
Einar Haraldsson (Sjúkraþj.) aldur 41
Helgi Sigurðsson (AÞ) aldur 52
Gul spjöld:
Kyle McLagan ('44)
Sigurjón Rúnarsson ('57)
Rauð spjöld:Leik lokið!
Jafntefli niðurstaðan hér í Keflavík. Tækifæri á að koma sér í annað sætið fer þar með forgörðum. VIðtöl og skýrsla væntanleg.
92. mín
Eiður Orri vinnur boltann við teig Fram og Keflavík 2 á 2. Hann velur að fara strax í skotið og setur boltann himinhátt yfir markið.
92. mín
Kristófer Konráðs með skot úr teignum eftir snögga sókn. Boltinn beint á Ásgeir í markinu,
85. mín
Frábær samleikur hjá Axel og Eið sendir þann síðarnefnda í dauðafæri á markteigshorni. Viktor með sterka hendi og ver gríðarlega vel í horn.
Alvöru varsla frá Viktori
Frábær samleikur hjá Axel og Eið sendir þann síðarnefnda í dauðafæri á markteigshorni. Viktor með sterka hendi og ver gríðarlega vel í horn.
84. mín
Ásgeir Páll með langan sprett upp völlinn og kemur sér inn á teig Fram. Lætur vaða en setur boltann framhjá markinu.
Skyndisókn Keflavík
Ásgeir Páll með langan sprett upp völlinn og kemur sér inn á teig Fram. Lætur vaða en setur boltann framhjá markinu.
80. mín
Gult spjald: Marin Mudrazija (Keflavík)
Gult spjald: Marin Mudrazija (Keflavík)
Brýtur á Fred á vítateigslínunni og uppsker gult spjald fyrir
77. mín
Fred með lúmskt skot frá vinstra vítateigshorni, boltinn stefnir niður í hornið fjær en Ásgeir ver í horn.
68. mín
Bera boltann vel upp hægra megin, Már með fyrirgjöfina sem Vuk mætir á endan á en skóflar boltanum yfir frá markteig.
Gestirnir í dauðafæri!
Bera boltann vel upp hægra megin, Már með fyrirgjöfina sem Vuk mætir á endan á en skóflar boltanum yfir frá markteig.
66. mín
MARK!
Frábær fyrirgjöf frá vinstri frá Agli ratar beint á ennið á Elvis sem á glæsilegan skalla í hornið óverjandi fyrir Viktor í marki Fram
MARK!Elvis Bwomono (Keflavík)
Stoðsending: Egill Valur Karlsson
Stoðsending: Egill Valur Karlsson
Elvis er í húsinu!
Frábær fyrirgjöf frá vinstri frá Agli ratar beint á ennið á Elvis sem á glæsilegan skalla í hornið óverjandi fyrir Viktor í marki Fram
62. mín
Kennie í dauðafæri!
Vuk með frábær tilþrif er hann leikur inn á teiginn frá vinstri. Skilur varnarmenn eftir í rykinu og nær góðu skoti sem Ásgeir ver vel. Boltinn beint fyrir fætur Kennie sem er með opið mark fyrir framan sig en setur boltann yfir.
59. mín
MARK!
Boltinn hrekkur fyrir fætur Freys í teignum eftir misheppnaða hreinsun frá marki Keflvíkinga. Honum verða á engin mistök og skilar boltanum í netið með hnitmiðuðu skoti úr miðjum teignum.
MARK!Freyr Sigurðsson (Fram)
Mark!
Boltinn hrekkur fyrir fætur Freys í teignum eftir misheppnaða hreinsun frá marki Keflvíkinga. Honum verða á engin mistök og skilar boltanum í netið með hnitmiðuðu skoti úr miðjum teignum.
57. mín
Gult spjald: Sigurjón Rúnarsson (Fram)
Gult spjald: Sigurjón Rúnarsson (Fram)
Lendir fyrir aftan Stefan sem skýlir boltanum vel. Sigurjón teikar hann og uppsker gult spjald fyrir.
Aukaspyrna á hættulegum stað.
Aukaspyrna á hættulegum stað.
52. mín
MARK!
Róbert Hauksson sleppur í gegn og kemst framhjá Ásgeiri en fellur í kjölfarið og missir boltann. Boltinn er að rúlla í átt að marki þegar Keflvíkingur hreinsar í samherja og boltinn aftur í átt að marki þar sem annar Keflvíkingur mætir og setur boltann í Frey og yfir línuna. Stórfurðuleg atburðarrás og allt jafnt á ný!
MARK!Freyr Sigurðsson (Fram)
Sprellimark!
Róbert Hauksson sleppur í gegn og kemst framhjá Ásgeiri en fellur í kjölfarið og missir boltann. Boltinn er að rúlla í átt að marki þegar Keflvíkingur hreinsar í samherja og boltinn aftur í átt að marki þar sem annar Keflvíkingur mætir og setur boltann í Frey og yfir línuna. Stórfurðuleg atburðarrás og allt jafnt á ný!
48. mín
MARK!
Keflvíkingar byrja þennan síðari hálfleik af krafti. Sindri Snær með boltann úti til vinstri lyftir honum inn á miðjan teiginn þar sem Stefan er einfaldlega sterkastur og skallar boltann í netið af markteigslínu eða svo.
Viktor í boltanum en það dugir ekki til.
MARK!Stefan Ljubicic (Keflavík)
Stoðsending: Sindri Snær Magnússon
Stoðsending: Sindri Snær Magnússon
MARK!
Keflvíkingar byrja þennan síðari hálfleik af krafti. Sindri Snær með boltann úti til vinstri lyftir honum inn á miðjan teiginn þar sem Stefan er einfaldlega sterkastur og skallar boltann í netið af markteigslínu eða svo.
Viktor í boltanum en það dugir ekki til.
46. mín
Gestirnir hefja hér leik í síðari hálfleik. Engar breytingar að sjá á liðunum.
Síðari halfleikur hafinn
Gestirnir hefja hér leik í síðari hálfleik. Engar breytingar að sjá á liðunum.
45. mín
Hálfleikur
Hálfleikur hér í Keflavík og staðan markalaus. Gestirnir átt fleiri tækifæri heilt yfir en þó ekki þannig að kalla megi stöðuna ósanngjarna.
41. mín
Gult spjald: Frans Elvarsson (Keflavík)
Gult spjald: Frans Elvarsson (Keflavík)
Líklegast fyrir atvikið áðan sem Elías hefur þá séð.
41. mín
Ljótt samstuð
Egill Valur lendir í hörkuárekstri við Kyle í kapphlaupi um boltann og steinliggur
Kyle að ég held dæmdur brotlegur.
Kyle að ég held dæmdur brotlegur.
39. mín
Frans er stálheppinn!
Í baráttu við Kennie um boltann alveg á miðlínu við hliðarlínu og sparkar vel frá sér. Elías sér ekki neitt á veifar leikinn áfram.
36. mín
Þorri Stefán með skot fyrir Fram, heimamenn komast fyrir og hornspyrna niðurstaðan.
36. mín
Tilþirf
Frans Elvarsson með tilþrif leiksins til þessa, fellur um sjálfan sig á vellinum í kapphlaupi um boltann en bjargar sér með stórfenglegum kollhnís. Íþróttakennarinn alveg með þetta.
32. mín
Freyr með hörkusprett upp völlinn fyrir Fram. Kemur sér inn á teiginn og nær skoti/sendingu sem Keflvíkingar rétt komast fyrir.
26. mín
Færi
Kennie brýst upp hægri megin og kemur boltanum fyrir markið, Marin Brigic fyrstur á boltann og setur hann afturfyrir hárfínt framhjá eigin marki.
25. mín
Leikurinn verið sveiflukenndur. Færin koma í bunkum en leikurinn dettur nokkuð niður þess á milli
18. mín
Kennie!
Kennie í fínu færi en hittir boltann illa og gerir Ásgeiri í marki Keflavíkur auðveldara um vik að verja boltann. Sem hann nær þó aðeins að gera með herkjum. Fram fær hornspyrnu.
18. mín
Alpha í hörkufæri í teignum eftir snögga sókn, leikur inn á teiginn frá vinstri og lætur vaða í hornið nær. Viktor ver boltann í teiginn þar sem Dagur Ingi mætir í frákastið en aftur ver Viktor.
Viktor með tvöfalda vörslu!
Alpha í hörkufæri í teignum eftir snögga sókn, leikur inn á teiginn frá vinstri og lætur vaða í hornið nær. Viktor ver boltann í teiginn þar sem Dagur Ingi mætir í frákastið en aftur ver Viktor.
10. mín
Stefan Ljub með skot úr D-boganum eftir snögga sókn Keflavíkur. Boltinn þægilegur viðfangs fyrir Viktor sem handsamar hann næsta auðveldlega.
Sótt á báða bóga
Stefan Ljub með skot úr D-boganum eftir snögga sókn Keflavíkur. Boltinn þægilegur viðfangs fyrir Viktor sem handsamar hann næsta auðveldlega.
8. mín
Brýst af harðfylgi inn á teig Fram frá vinstri og nær skoti úr mjög þröngri stöðu. Skotið fast en Viktor ver í horn.
Alpha Conteh
Brýst af harðfylgi inn á teig Fram frá vinstri og nær skoti úr mjög þröngri stöðu. Skotið fast en Viktor ver í horn.
7. mín
Brjótast upp hægri kantinn og inn á teiginn. Róbert Hauksson leggur boltann út á Fred sem nær fínu skoti sem Ásgeir setur fingur á og afturfyrir.
Góð sókn Fram
Brjótast upp hægri kantinn og inn á teiginn. Róbert Hauksson leggur boltann út á Fred sem nær fínu skoti sem Ásgeir setur fingur á og afturfyrir.
5. mín
Fred fær boltann hægra megin í teignum og reynir skotið en boltinn vel framhjá markinu.
Fyrsta skot Fram
Fred fær boltann hægra megin í teignum og reynir skotið en boltinn vel framhjá markinu.
1. mín
Fyrsta skotið eftir um 40 sekúndur. Ljubicic reynir það af töluverðu færi en setur boltann fram hjá.
Kúlan hefur gefist mörgum vel
Yfir 1,5 mörk Keflavík á 2.21 finnst mér of vel boðið gegn míglekandi vörn Framara.
— Kristalkúlan (@kristalkulan) September 20, 2026
Fyrir leik
Rosalegur gærdagur
Það var rosalegur gærdagur í Bestu deildinni þar sem Víkingur innsiglaði meistaratitilinn á Meistaravöllum og KA fór illa með Þór. Fjallað var um leikina í Innkastinu og þá er einnig hægt að sjá það helsta úr þeim hér að neðan.
Fyrir leik
Spámaðurinn
Hinrik Harðarson, leikmaður Egersund í Noregi, spáir í leikina í þessari annari umferð eftir skiptingu. Um leik Keflavíkur og Fram sagði hann.
Keflavík 1 - 3 Fram
Keflavík er komið með hausinn á lokahófið, það er ljóst. Eftir að Breki Baxter yfirgaf skútuna þá hefur botninn farið úr tertunni. Fram virðast einnig vera með hausinn við Tene. Fram taka þennan 1-3.

Dómarar
Elías Ingi Árnason er með flautuna á HS Orkuvellinum í dag. Honum til aðstoðar eru þeir Kristján Már Ólafs og hinn 17 ára gamli Þráinn Jón Elmarsson sem er sannarlega á hraðferð upp stigan hjá KSÍ.
Guðmundur Páll Friðbertsson er fjórði dómari og eftirlitsmaður KSÍ er Viðar Helgason.
Guðmundur Páll Friðbertsson er fjórði dómari og eftirlitsmaður KSÍ er Viðar Helgason.

Fyrir leik
Keflavík
Er öllum markmiðum sumarsins náð hjá Keflavík?
Nánast öllum að óvörum er Keflavík í efri hlutanum og er vel að því komið. Tap gegn Víkingum 4-1 í fyrstu umferð eftir skiptingu er kannski ekki eitthvað sem ætti að lesa um of úr ég sit þó eftir með spurningu. Að hverju hefur Keflavík að keppa?
Breyting varð á leikmannahópi liðsins í vikunni þegar Muhamed Alghoul var seldur frá félaginu til Homs Al-Fidaa í Sýrlandi. Mua líkt og hann er kallaður hefur verið öflugur fyrir Keflavík í sumar en kom sér einnig í fréttir fyrir átök við liðsfélaga á æfingu sem leiddu af sér nefbrot.
Það verður fróðlegt að sjá hvernig lið Keflavíkur mætir til leiks gegn Fram í dag. Er hungrið enn til staðar eða eru menn þegar komnir upp í vél til Tene í kollinum.

Gestirnir úr Úlfarsárdal mæta til leiks í hörkufæri til þess að endurheimta annað sæti deildarinnar af KR sem þurfti að gera sér að góðu að lúta í gras gegn Víkingum á Meistaravöllum í gær.
Þótt baráttan um titilinn sjálfan sé að baki og Víkingar orðnir meistarar munar töluvert um fyrir Fram eða KR að enda í öðru eða þriðja sæti. Liðið sem endar ofar sleppur við fyrstu umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar og mætir til leiks í aðra umferð en fær þó borgað fyrir fyrstu umferðina líkt og liðið hafi í henni leikið.
Rúnar Kristinsson hefur því varla verið að ræða skoðun sína á fyrirkomulagi Bestu deildarinnar á fundum með liðinu fyrir leik heldur bent á þá staðreynd að það skiptir máli að annað sætið verði Fram og að mun betri frammistöðu þurfi í dag en í 3-1 tapinu gegn Breiðablik á dögunum.

HS Orkuvöllurinn heilsar
Heil og sæl kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu Fótbolta.net frá leik Keflavíkur og Fram í Bestu deild karla.
Flautað verður til leiks í Keflavík klukkan 16:00
sunnudagur 20. september
Besta karla - Efri hluti
16:00 Keflavík-Fram (HS Orku völlurinn)
16:00 ÍA-Breiðablik (ELKEM völlurinn)
Besta karla - Neðri hluti
16:00 ÍBV-Valur (Hásteinsvöllur)
16:00 FH-Stjarnan (Kaplakrikavöllur)