Í BEINNI
Uppfæra
-
LL
2 Víkingur R.2 Fram
-
LL
4 ÍA4 Keflavík
-
LL
8 KR3 Breiðablik
-
LL
5 KA1 ÍBV
-
LL
1 FH2 Þór
-
LL
6 Stjarnan0 Valur
Besta karla - Efri hluti
Víkingsvöllur
11.10.2026 - 19:15
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Víkingsvöllur
11.10.2026 - 19:15
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson

Víkingur R.
2
2
ÍA

Valdimar Þór Ingimundarson
'7
1-0
Aron Elís Þrándarson
'17
2-0
2-1
Markús Páll Ellertsson
'36
2-2
Oliver Ekroth
'53
, sjálfsmark
Maður leiksins: Aron Elís Þrándarson (Víkingur)
Byrjunarlið:
29. Aron Snær Friðriksson (m) 29
4. Oliver Ekroth (f) 34
5. Sölvi Stefánsson 19
('62)
('62)
8. Viktor Örlygur Andrason 26
9. Helgi Guðjónsson 27
15. Róbert Orri Þorkelsson 24
21. Aron Elís Þrándarson 31
25. Valdimar Þór Ingimundarson 27
27. Sveinn Aron Guðjohnsen 28
('62)
('62)
69. Ármann Ingi Finnbogason 22
('71)
('71)
77. Stígur Diljan Þórðarson 20
- Meðalaldur 26 ár
Varamenn:
47. Ögmundur Kristinsson (m) 37
99. Uggi Jóhann Auðunsson (m) 21
2. Sveinn Gísli Þorkelsson 23
18. Daði Berg Jónsson 20
('71)
('71)
23. Nikolaj Hansen 33
('62)
('62)
24. Davíð Örn Atlason 32
('62)
('62)
40. Gestur Alexander Ó. Hafþórsson 16
52. Viðar Elí Bjarnason 19
53. Daníel Bjarnason 17
- Meðalaldur 24 ár
Liðsstjórn:
Sölvi Geir Ottesen (Þ) aldur 42
Matthías Vilhjálmsson (AÞ) aldur 39
Runólfur Trausti Þórhallsson (MÞ) aldur 35
Rúnar Pálmarsson (Sjúkraþj.) aldur 45
Viktor Bjarki Arnarsson (AÞ) aldur 43
Kári Sveinsson (Styrktarþj.) aldur 33
Þórir Ingvarsson (Liðsstj.) aldur 66
Daníel Darri Arnarsson (Leikgr.) aldur 19
Gul spjöld:
Oliver Ekroth ('51)
Sölvi Geir Ottesen ('81)
Nikolaj Hansen ('87)
Rauð spjöld:Byrjunarlið:
1. Árni Marinó Einarsson (m) 24
5. Baldvin Þór Berndsen 22
8. Guðmundur Þórarinsson 34
('62)
('62)
9. Viktor Jónsson 32
10. Steinar Þorsteinsson 28
('62)
('62)
11. Gísli Eyjólfsson 32
('83)
('83)
13. Erik Tobias Sandberg 26
17. Gísli Laxdal Unnarsson 25
('62)
('62)
21. Böðvar Böðvarsson 31
('75)
('75)
25. Markús Páll Ellertsson 20
87. Styrmir Jóhann Ellertsson 18
- Meðalaldur 27 ár
Varamenn:
3. Johannes Vall 34
('75)
('75)
7. Haukur Andri Haraldsson 21
('62)
('62)
16. Rúnar Már S Sigurjónsson 36
18. Rafael Máni Þrastarson 19
20. Ísak Máni Guðjónsson 21
('83)
('83)
22. Ómar Björn Stefánsson 22
27. Brynjar Óðinn Atlason 17
('62)
('62)
31. Isak Theodor Eidem 17
44. Guðmar Gauti Sævarsson 18
66. Jón Gísli Eyland Gíslason 24
('62)
- Meðalaldur 23 ár
('62)
Liðsstjórn:
Lárus Orri Sigurðsson (Þ) aldur 53
Aron Ýmir Pétursson (AÞ) aldur 36
Rúrik Salvarsson (Liðsstj.) aldur 14
Salvar Georgsson (Forráðam.) aldur 39
Mario Majic (Sjúkraþj.)
Emil Ásmundsson (Styrktarþj.) aldur 31
Dino Hodzic (MÞ) aldur 30
Gul spjöld:
Erik Tobias Sandberg ('90)
Rauð spjöld:Leik lokið!
+4
Jafntefli niðurstaðan í Víkinni.
Ég þakka fyrir samfylgdina, viðtöl og skýrsla væntanleg.
Ég þakka fyrir samfylgdina, viðtöl og skýrsla væntanleg.
90. mín
+4
Víkingur fær aukaspyrnu á fyrirgjafarstað.
Boltinn kemur inn á teiginn en það er skallað frá.
Boltinn kemur inn á teiginn en það er skallað frá.
90. mín
+1
Viktor Örlygur lætur vaða úr aukaspyrnunni en Árni Marinó fer létt með þetta skot.
90. mín
Gult spjald: Erik Tobias Sandberg (ÍA)
Gult spjald: Erik Tobias Sandberg (ÍA)
Allt of seinn í Daða Berg og Víkingur fær aukaspyrnu á góðum stað.
88. mín
Mjög lítið eftir af þessum leik. Liðin lítið að ógna um þessar mundir. Væri gaman að fá sigurmark.
78. mín
Frábært færi!
Boltinn dettur fyrir Helga Guðjóns inni á teignum en hann neglir boltanum rétt yfir markið.
75. mín
Skagamenn vinna horn.
Boltinn kemur inn á teiginn en Aron Elís skallar frá. Í kjölfarið ná Skagamenn skoti sem Aron ver í horn.
Boltinn kemur inn á teiginn en Víkingar bægja hættunni frá.
Boltinn kemur inn á teiginn en Aron Elís skallar frá. Í kjölfarið ná Skagamenn skoti sem Aron ver í horn.
Boltinn kemur inn á teiginn en Víkingar bægja hættunni frá.
69. mín
Markús Páll vinnur hornspyrnu fyrir ÍA.
Boltinn kemur inn á teiginn en Víkingar hreinsa frá.
Boltinn kemur inn á teiginn en Víkingar hreinsa frá.
65. mín
Skemmtileg varsla!
Árni með misheppnaða sendingu úr markinu sem Aron Elís kemst í. Aron kemur boltanum á Valdimar sem lætur vaða en Árni, sem nær að komast til baka í markið, ver með fætinum og afturfyrir fer boltinn.
Hornspyrnan kemur inn á teiginn en Skagamenn hreinsa frá.
Hornspyrnan kemur inn á teiginn en Skagamenn hreinsa frá.
61. mín
Úrvals færi!
Aron Snær með langan bolta úr marki Víkings. Sveinn Aron fleytir boltanum áfram í hlaupaleið Stígs.
Stígur brunar að marki ÍA, Árni Marinó rýkur út úr markinu og sér við Stígi sem reyndi að lyfta boltanum yfir hann.
Stígur brunar að marki ÍA, Árni Marinó rýkur út úr markinu og sér við Stígi sem reyndi að lyfta boltanum yfir hann.
60. mín
Skagamenn hafa byrjað seinni hálfleikinn af miklum krafti. Jöfnuðu auðvitað leikinn og eru byrjaðir að halda vel í knöttinn.
56. mín
Ármann fer inn á völlinn og reynir að skrúfa boltann í fjærhornið en boltinn yfir markið.
55. mín
ÍA fær horn.
Boltinn kemur inn á teiginn og hann dettur síðan fyrir Stíg Diljan sem þrumar boltanum framhjá nærstönginni.
Boltinn kemur inn á teiginn og hann dettur síðan fyrir Stíg Diljan sem þrumar boltanum framhjá nærstönginni.
53. mín
SJÁLFSMARK!
SJÁLFSMARK!Oliver Ekroth (Víkingur R.)
ALLT ORÐIÐ JAFNT!
Gísli Laxdal á fasta fyrirgjöf inn á teiginn úr aukaspyrnunni.
Boltinn fer í lærið á Oliver Ekroth og stýrist þaðan í netið, afar óheppilegt.
Mark er mark og allt orðið jafnt á nýjan leik!
Boltinn fer í lærið á Oliver Ekroth og stýrist þaðan í netið, afar óheppilegt.
Mark er mark og allt orðið jafnt á nýjan leik!
51. mín
Gult spjald: Oliver Ekroth (Víkingur R.)
Gult spjald: Oliver Ekroth (Víkingur R.)
Oliver Ekroth í baráttunni við Markús Pál og rífur hann niður. Skagamenn fá aukaspyrnu á fínum stað.
48. mín
Löng sókn Víkings endar með skoti frá Ármanni Inga sem fer í varnarmann og afturfyrir.
Boltinn kemur inn á teiginn en Gísli Eyjólfs skallar frá.
Boltinn kemur inn á teiginn en Gísli Eyjólfs skallar frá.
45. mín
Hálfleikur
Skemmtilegur fyrri hálfleikur að baki. Þrjú mörk komin í þennan leik og það stefnir allt í að mörkin verði fleiri.
Víkingar heilt yfir sterkari aðilinn í fyrri hálfleik. Þeir hafa nýtt föstu leikatriðin vel og Skagamenn höfðu varla náð að ógna þeirra marki áður en Markús Páll minnkaði muninn.
Ágætis fyrri hálfleikur hjá ÍA. Þeir hafa nokkrum sinnum komist upp að endamörkum en það hefur vantað herslumuninn inni á teignum. Mikilvægt fyrir þá að minnka muninn skömmu fyrir hálfleik.

43. mín
Víkingur fær horn.
Boltinn kemur inn á teiginn en Viktor Jóns skallar frá.
Í kjölfarið kemur fyrirgjöf frá Víkingum inn á teiginn og Róbert Orri nær að pota boltanum í átt að marki gestanna en Árni Marinó nær að loka á hann.

40. mín
Stígur Diljan fer inn á völlinn og lætur vaða langt fyrir utan teig. Skotið er fast og Árni Marinó í smá vandræðum með það en ver.
38. mín
Víkingur fær horn.
Hornspyrnan nær ekki framhjá fyrsta manni og Erik Tobias hreinsar frá.
Hornspyrnan nær ekki framhjá fyrsta manni og Erik Tobias hreinsar frá.
36. mín
MARK!
MARK!Markús Páll Ellertsson (ÍA)
Stoðsending: Gísli Eyjólfsson
Stoðsending: Gísli Eyjólfsson
MARKÚS MINNKAR MUNINN!
Skagamenn eiga innkast. Innkastið ratar á Viktor Jóns sem skallar boltann í svæðið fyrir Gísla Eyjólfs.
Hann lítur upp, leggur boltann út í teiginn á Markús Pál sem klárar fagmannlega framhjá Aroni Snæ í markinu
Galopinn leikur á ný!
Hann lítur upp, leggur boltann út í teiginn á Markús Pál sem klárar fagmannlega framhjá Aroni Snæ í markinu
Galopinn leikur á ný!
28. mín
Steinar vinnur horn fyrir Skagamenn.
Boltinn kemur inn á teiginn frá Guðmundi og Erik Tobias nær snertingu á boltann en Víkingar hreinsa frá.
Boltinn kemur inn á teiginn frá Guðmundi og Erik Tobias nær snertingu á boltann en Víkingar hreinsa frá.
27. mín
Víkingur fær horn.
Boltinn kemur inn á teiginn, Sveinn Aron rís manna hæst og nær skalla en Markús Páll nær að komast fyrir.
Boltinn kemur inn á teiginn, Sveinn Aron rís manna hæst og nær skalla en Markús Páll nær að komast fyrir.
26. mín
Fallegt samspil hjá Skagamönnum endar með því að Steinar kemst upp að endamörkum.
Fyrirgjöf hans er góð og ratar beint á pönnuna á Viktori en hann stangar boltann rétt yfir markið.
Fyrirgjöf hans er góð og ratar beint á pönnuna á Viktori en hann stangar boltann rétt yfir markið.
24. mín
Böðvar kemst upp að endamörkum, kemur með fína fyrirgjöf inn á teiginn og það er mikill darraðadans inni á teignum en Víkingar ná að hreinsa frá.
21. mín
Víkingar hefja skyndisókn eftir hornspyrnu ÍA.
Valdimar æðir upp völlinn, finnur Ármann Inga en skotið hans ver í varnarmann og afturfyrir.
Hornspyrnan ratar á Stíg en hann missir boltann af velli.
Valdimar æðir upp völlinn, finnur Ármann Inga en skotið hans ver í varnarmann og afturfyrir.
Hornspyrnan ratar á Stíg en hann missir boltann af velli.
17. mín
MARK!
MARK!Aron Elís Þrándarson (Víkingur R.)
VÍKINGAR TVÖFALDA!
Hornspyrnan inn á teiginn er mjög góð og Sveinn Aron nær skalla á markið.
Árni Marinó ver meistaralega út í teiginn en Aron Elís er réttur maður á réttum stað og setur boltann í netið af stuttu færi.
Víkingar komnir tveimur mörkum yfir!
Árni Marinó ver meistaralega út í teiginn en Aron Elís er réttur maður á réttum stað og setur boltann í netið af stuttu færi.
Víkingar komnir tveimur mörkum yfir!
16. mín
Víkingur fær sína fyrstu hornspyrnu.
Hættulegur bolti inn á teiginn og Róbert Orri er í baráttunni en ÍA bægja hættunni frá.
Hættulegur bolti inn á teiginn og Róbert Orri er í baráttunni en ÍA bægja hættunni frá.
15. mín
Það er mark komið í þennan leik en lítið um færi hingað til. Frekar rólegar fyrstu 15.
14. mín
Árni Marinó að leika sér að eldinum og er við það að koma sér í vesen en Valdimar brýtur á honum.
7. mín
MARK!
MARK!Valdimar Þór Ingimundarson (Víkingur R.)
VIRKILEGA KLAUFALEGT!
Guðmundur Þórarinsson með erfiða sendingu til baka.
Árni Marinó rýkur út úr markinu en misreiknar skoppið og Valdimar refsar með því að setja boltann í autt netið.
Klaufalegt mark en Víkingum gæti ekki verið meira sama!
Árni Marinó rýkur út úr markinu en misreiknar skoppið og Valdimar refsar með því að setja boltann í autt netið.
Klaufalegt mark en Víkingum gæti ekki verið meira sama!
2. mín
ÍA fær fyrsta horn leiksins.
Boltinn kemur inn á teiginn en Böðvar nær ekki að stýra skallanum á markið.
Boltinn kemur inn á teiginn en Böðvar nær ekki að stýra skallanum á markið.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn!
Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, gerir þrjár breytingar á liði sínu eftir 2-1 útisigur gegn KR. Gylfi Þór Sigurðsson, Daníel Hafsteinsson og Karl Friðleifur Gunnarsson eru allir utan hóps. Afar líklegt er að Gylfi er að vera hvíldur og Daníel tekur út leikbann. Sölvi Stefánsson, Viktor Örlygur Andrason og Sveinn Aron Guðjohnsen koma inn.
Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, gerir eina breytingu eftir 4-1 sigur gegn Breiðabliki. Haukur Andri Haraldsson fær sér sæti á bekknum og Guðmundur Þórarinsson kemur inn í hans stað.
Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, gerir eina breytingu eftir 4-1 sigur gegn Breiðabliki. Haukur Andri Haraldsson fær sér sæti á bekknum og Guðmundur Þórarinsson kemur inn í hans stað.
Fyrir leik
Liðin ekki að spila upp á neitt
Víkingur tryggði Íslandsmeistaratitilinn gegn KR fyrir landsleikjahlé og eru í rauninni ekki að spila upp á neitt.
ÍA eru með 33 stig í 5. sæti efri hlutans og ljóst er að Skagamenn hafa ekki möguleika á Evrópusæti.

ÍA eru með 33 stig í 5. sæti efri hlutans og ljóst er að Skagamenn hafa ekki möguleika á Evrópusæti.

Fyrir leik
Fjórir Víkingar í banni
Fjórir Íslandsmeistarar taka út leikbann þegar Víkingur fær ÍA í heimsókn eftir landsleikjahlé. Sveinn Margeir Hauksson og Daníel Hafsteinsson sáu rautt utan vallar og þeir Aron Baldvin Þórðarson aðstoðarþjálfari og Hajrudin Cardaklija markmannsþjálfari sáu einnig rautt undir lok leiks gegn KR.
Fyrir leik
Hrannar Snær verður ekki með
Hrannar Snær Magnússon mun ekki spila frekar með Íslandsmeisturum Víkings á tímabilinu þar sem hann er ristarbrotinn.
Þetta staðfesti Hrannar í samtali við Fótbolta.net fyrir fimm dögum.
Þetta staðfesti Hrannar í samtali við Fótbolta.net fyrir fimm dögum.
Fyrir leik
Tarik framlengdi á dögunum
Danski varnarmaðurinn Tarik Ibrahimagic hefur framlengt samning sinn við Íslandsmeistara Víkings til næstu þriggja ára.
Fyrir leik
Gylfi verður að öllum líkindum hvíldur
Gylfi Þór Sigurðsson hefur verið að spila í gegnum rifbeinsbrot en verður að öllum líkindum hvíldur í næsta leik Víkings, sem mætir ÍA á heimavelli á sunnudagskvöld.
Fyrir leik
Eru Víkingar erfiðustu stuðningsmennirnir?
Til að hita upp fyrir endurkomu deildarinnar fékk Fótbolti.net fimm álitsgjafa til að líta yfir tímabilið til þessa. Spurning dagsins snýr að erfiðustu stuðningsmönnunum.
Fyrir leik
Verður Lárus Orri áfram? - Markús páll verður líklega seldur erlendis
Hér fyrir neðan eru allir molarnir sem birtust um ÍA í risastóra slúðurpakka fótbolta.net sem kom út í vikunni.
ÍA
Lárus Orri Sigurðsson á ár eftir af samningi sínum við ÍA en slúðrað hefur verið um að hann verði mögulega ekki áfram.
Heimir Guðjónsson verður ekki áfram með Fylki og hefur hann verið orðaður við ÍA, orðrómur um að hann hafi þegar fundað með Skagamönnum.
ÍA er á eftir Tómasi Orra Róbertssyni en Víkingur hefur einnig áhuga á honum. Þá eru Skagamenn með augastað á Víkingunum tveimur, Daða Berg Jónssyni og Björgvini Brima Andréssyni.
Markús Páll Ellertsson verður mjög líklega seldur erlendis í vetur. Hann hefur verið orðaður við Silkeborg, Lyngby, Rosenborg og Thun.
Karl Ágúst Karlsson, leikmaður HK, er á óskalista ÍA og er búist við tilboði frá Skaganum í kantmanninn efnilega. Skagamenn eru jafnframt á höttunum eftir öðrum efnilegum leikmanni úr Kórnum, Bjarka Erni Brynjarssyni.
Mikael Máni Þorfinnsson er sömuleiðis leikmaður sem félagið hefur áhuga á en mikill áhugi er á Grindvíkingnum.
ÍA og Víkingur hafa bæði áhuga á Markus Nakkim sem er með lausan samning hjá Val.
Johannes Vall og Erik Tobias Sandberg eru að verða samningslausir hjá ÍA og munu yfirgefa félagið og þá er Rúnar Már Sigurjónsson að hætta. Rúnar vill starfa áfram innan fótboltans.
Birnir Breki Burknason, Breki Þór Hermannsson og Matthías Daði Gunnarsson léku allir á láni frá ÍA í sumar og gætu þeir allir yfirgefið félagið í vetur.

Víkingar skoða markmannsmálin - með augastað á Stefani Ljubicic
Hér fyrir neðan eru allir molarnir um Víking sem birtust í risastóra íslenska slúðurpakkanum í vikunni.
Víkingur R.
Víkingur er að skoða markmannsmálin og hefur augastað á Ásgeiri Orra Magnússyni, markverði Keflavíkur. Aðrir markverðir eins og Ólafur Örn Ásgeirsson (HK), Frederik Schram (Valur), Ásgeir og Lúkas Blöndal Petersson (Hoffenheim) hafa verið orðaðir við Víkina.
Ögmundur Kristinsson og Sveinn Aron Guðjohnsen eru með lausa samninga við Víking og óvíst hvort þeir verði áfram. Sveinn Aron skrifaði undir samning út árið í lok sumargluggans og líkur á að framherjinn vilji reyna aftur fyrir sér erlendis.
Tómas Orri Róbertsson er á óskalista Víkings og FH gæti fengið Jóhannes Kristinn Bjarnason á móti.
Björgvin Brimi Andrésson er í harðri samkeppni hjá Víkingi og gæti séð möguleika á stærra hlutverki annars staðar. Grótta vill halda honum og ÍA fylgist með stöðu hans.
Daði Berg Jónsson er sömuleiðis orðaður í burtu frá meisturunum. ÍA, Breiðablik og Valur eru félögin sem nefnd eru í tengslum við hann.
Stígur Diljan Þórðarson er á blaði hjá erlendum félögum og var U21 landsliðsmaðurinn orðaður við svissnesku meistarana í Thun í sumar.
Markus Nakkim (Valur) er með lausan samning og hefur hann verið orðaður við Víking og ÍA.
Víkingur er að skoða framherjamálin hjá sér og er félagið orðað við þá Hólmbert Aron Friðjónsson, Emil Atlason og Stefan Alexander Ljubicic.
Óskar Borgþórsson hefur verið orðaður við Luton á Englandi og í sumar reyndu GAIS og Konyaspor að fá hann.
Hólmar Örn Eyjólfsson er að renna út á samningi hjá Val og gæti lagt skóna á hilluna. Hann hefur verið meðal annars orðaður við Víking, Þrótt og HK.

Óskar Borgþórsson og Daníel Hafsteinsson fóru yfir tímabilið
Óskar Borgþórsson og Daníel Hafsteinsson mættu í hljóðver til Kára Snorrasonar og fóru yfir tímabilið hjá Íslandsmeisturum Víkings. Meðal umræðuefna var árangurinn í deildinni, rígurinn gegn KR og Evrópa.
Fyrir leik
Tómas orðaður við bæði lið
Tómas Orri, leikmaður FH, hefur undanfarið verið orðaður við bæði Víking og ÍA.
„Það er alltaf smá viðurkenning að maður sé að gera ágæta hluti. En svo er ég bara að fókusa FH og mér líður vel í Kaplakrika. Ég er leikmaður FH í dag og líður vel þar og það er í rauninni ekki hægt að segja neitt meira eins og staðan er í dag," sagði Tómas.

Sigurður Hjörtur er á flautunni
Sigurður Hjörtur Þrastarson er aðaldómari í dag. Honum til halds og trausts eru Kristján Már Ólafs og Þráinn Jón Elmarsson.
Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson er fjórði dómari og Oddur Helgi Guðmundsson er eftirlitsmaður KSÍ.
Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson er fjórði dómari og Oddur Helgi Guðmundsson er eftirlitsmaður KSÍ.