Besta karla - Efri hluti
HS Orku völlurinn
17.10.2026 - 12:00
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Keflavík
2
3
KR
0-1 Galdur Guðmundsson '8
0-2 Ástbjörn Þórðarson '29
Stefan Ljubicic '47 1-2
Dagur Ingi Valsson '51 2-2
2-3 Gabríel Hrannar Eyjólfsson '89
Liðsuppstilling Liðsuppstilling
Áhorfendur: 190
Maður leiksins: Galdur Guðmundsson (KR)
Byrjunarlið:
1. Ásgeir Orri Magnússon (m) 22
2. Elvis Bwomono 27 ('46)
3. Axel Ingi Jóhannesson 22
6. Sindri Snær Magnússon (f) 34
7. Dagur Ingi Valsson 27 ('68)
10. Stefan Ljubicic 27
20. Marin Brigic 26
21. Alpha Conteh 26 ('46)
22. Ásgeir Páll Magnússon 26 ('88)
28. Viktor Árni Traustason 19 ('80)
88. Mate Simicic 21
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
12. Helgi Bergmann Hermannsson (m) 24
4. Nacho Heras 35
15. Arnór Atli Aðalbjörnsson 17 ('68)
18. Ernir Bjarnason 29
23. Eiður Orri Ragnarsson 22 ('46)
25. Frans Elvarsson 36 ('46)
26. Rúnar Leó Hólmarsson 18
42. Baldur Logi Brynjarsson 18 ('80)
47. Egill Valur Karlsson 17 ('88)
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Haraldur Freyr Guðmundsson (Þ) aldur 44
Guðmundur Árni Þórðarson (Forráðam.) aldur 40
Karlo Bacinger (Sjúkraþj.)
Jónas Guðni Sævarsson (Leikgr.) aldur 42
Ómar Jóhannsson (MÞ) aldur 45
Óskar Rúnarsson (Leikgr.) aldur 36
Hólmar Örn Rúnarsson (AÞ) aldur 44

Gul spjöld:
Sindri Snær Magnússon ('87)

Rauð spjöld:
Byrjunarlið:
12. Halldór Snær Georgsson (m) 22
7. Finnur Tómas Pálmason 25
9. Eiður Gauti Sæbjörnsson 27
11. Aron Sigurðarson (f) 33
17. Luke Rae 25 ('82)
21. Gabríel Hrannar Eyjólfsson 27
22. Ástbjörn Þórðarson 27
23. Arnór Ingvi Traustason 33
26. Hrafn Tómasson 23
29. Aron Þórður Albertsson 30 ('86)
45. Galdur Guðmundsson 20 ('82)
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
1. Arnar Freyr Ólafsson (m) 33
31. Sigurpáll Sören Ingólfsson (m) 23
4. Michael Akoto 29
8. Stefán Árni Geirsson 25
24. Fannar Heimisson 15
28. Hjalti Sigurðsson 26 ('82)
30. Sigurður Breki Kárason 16 ('82)
77. Orri Hrafn Kjartansson 24 ('86)
95. Sölvi Snær Ásgeirsson 18
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Óskar Hrafn Þorvaldsson (Þ) aldur 52
Hilmar Árni Halldórsson (AÞ) aldur 34
Hrannar Bogi Jónsson (AÞ) aldur 33
Magnus Börheim (Sjúkraþj.) aldur 32
Björn Valdimarsson (Forráðam.) aldur 31
Lúðvík Júlíus Jónsson (Liðsstj.) aldur 72
Guðjón Örn Ingólfsson (Styrktarþj.) aldur 43
Jamie Paul Brassington (MÞ) aldur 35

Gul spjöld:

Rauð spjöld:

Leik lokið!
KR vinnur á grasi!
KR vinnur öflugan sigur á Keflavík í dag og tryggja sér 2. sæti deildarinnar.
91. mín
Tvær mínútur í uppbót
Fólk í stúkunni furðar sig á litlum uppbótartíma.
89. mín MARK!
Gabríel Hrannar Eyjólfsson (KR)
Stoðsending: Arnór Ingvi Traustason
KR KEMST YFIR!
KR sækja og Arnór Ingvi sker boltann út í teig frá hægri í teignum og Gabríel Hrannar mætir á ferðinni og klárar þetta líklega fyrir KR!
88. mín
Inn:Egill Valur Karlsson (Keflavík) Út:Ásgeir Páll Magnússon (Keflavík)
87. mín Gult spjald: Sindri Snær Magnússon (Keflavík)
87. mín
Færi!
Eiður Orri keyrir upp vinstri og lætur svo bara vaða sjálfur inni á teig en Halldór Snær ver þetta virkilega vel.
86. mín
Inn:Orri Hrafn Kjartansson (KR) Út:Aron Þórður Albertsson (KR)
84. mín
Keflavík eru að hóta marki þessa stundina en vantar örlítið uppá.
82. mín
Inn:Hjalti Sigurðsson (KR) Út: Luke Rae (KR)
82. mín
Inn:Sigurður Breki Kárason (KR) Út:Galdur Guðmundsson (KR)
81. mín
Eiður Orri að komast í hörku stöðu og reynir sendingu fyrir markið á fjærstöngina en aðeins of fastur bolti.
80. mín
Inn:Baldur Logi Brynjarsson (Keflavík) Út:Viktor Árni Traustason (Keflavík)
78. mín
Arnór Ingvi með flotta tilraun en vel varið hjá Keflavík.
74. mín
Keflvíkingar að hóta marki en vörn KR stendur þetta enn sem komið er af sér.
71. mín
Galdur með tilraun framhjá markinu.
69. mín
FÆRI!
Luke Rae með frábæran bolta fyrir markið og Eiður Gauti nær góðum skalla en Ásgeir Orri ver þetta frábærlega!
68. mín
Inn:Arnór Atli Aðalbjörnsson (Keflavík) Út:Dagur Ingi Valsson (Keflavík)
65. mín
Stefan Ljubicic með skot sem Halldór Snær ver.

Það er allt annað að sjá til Keflvíkinga í þessum seinni hálfleik.
63. mín
Dagur Ingi!
Axel Ingi með frábæran sprett upp völlinn og kemur með bolta fyrir markið sem Dagur Ingi stýrir á markið en vantaði smá kraft í þetta!
61. mín
Aron Sig með skalla framhjá markinu! Flott fyrirgjöf og Aron Sig gerði vel að losa sig og ráðast á boltann en framhjá markinu fór það.
59. mín
KR aðeins að ná tökum á leiknum aftur þessa stundina.
56. mín
Aron Þórður með tilraun framhjá markinu.
54. mín
Eiður Orri komið inn með kraft í Keflavíkurliðið sem var ekki til staðar í fyrri hálfleiknum.
51. mín MARK!
Dagur Ingi Valsson (Keflavík)
Stoðsending: Eiður Orri Ragnarsson
KEFLAVÍK JAFNAR!!
Eiður Orri með boltann úti vinstra megin og kemur boltanum fyrir markið þar sem Dagur Ingi Valsson stingur sér fram fyrir og potar boltanum í netið og Keflavík jafna!!
47. mín MARK!
Stefan Ljubicic (Keflavík)
Stoðsending: Eiður Orri Ragnarsson
Keflavík minnkar muninn!
Eiður Orri finnur Stefan Ljubicic inn á teignum og hann lyftir boltanum yfir Halldór Snær og minnkar muninn fyrir Keflavík!

Eiður Orri ekki lengi að láta fyrir sér finna á vellinum fyrir Keflavík.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Keflavík gera tvöfalda breytingu og Aron Sig sparkar seinni af stað fyrir KR.
46. mín
Inn:Frans Elvarsson (Keflavík) Út:Elvis Bwomono (Keflavík)
46. mín
Inn:Eiður Orri Ragnarsson (Keflavík) Út:Alpha Conteh (Keflavík)
45. mín
Hálfleikur
KR leiða nokkuð sannfærandi og sanngjarnt inn í hálfleikinn.
45. mín
Ein mínúta í uppbót
45. mín
Luke Rae með tilraun yfir markið.
44. mín
Stefan Ljubicic með tilraun sem fer af varnarmanni og aftur fyrir.

Smá líf frá Keflavík.
43. mín
KR að komast í frábæra stöðu og Aron Sig að sleppa í gegn en hann reynir að koma með sendingu í hlaup fyrir samherja á teignum en sparkar boltanum útaf.
40. mín
Leikurinn stöðvaður
Eiður Gauti liggur eftir og heldur um höfuðið. Klafs í teignum eftir horn og hann liggur eftir.
34. mín
Mátti ekki miklu muna!
Galdur með frábæran sprett og fer auðveldlega framhjá mönnum í vörn Keflavíkur en nær ekki að lauma boltanum framhjá Ásgeiri Orra í marki Keflavíkur.
29. mín MARK!
Ástbjörn Þórðarson (KR)
Stoðsending: Galdur Guðmundsson
KR TVÖFALDA!
Galdur lyftir boltanum fyrir markið og þar mætir Ástbjörn og nær góðu skoti í fjærhornið sem sigrar Ásgeir Orra í marki Keflavíkur.

Flott mark og KR eru búnir að tvöfalda!
28. mín
Aron Sig!
Boltinn fellur fyrir hann í teignum og hann á fast skot á markið en Ásgeir Orri ver þetta virkilega vel!
26. mín
Eiður Gauti!
Eiður Gauti sterkur í teignum og nær að búa sér til skot en fer af varnarmanni og aftur fyrir.
21. mín
KR með öll völd á vellinum hérna og fá hverja hornspyrnuna á fætur annari.

15. mín
Aron Sig vill hendi
Flott spilamennska hjá KR endar með skoti frá Aroni Sig sem vill fá hendi en fær bara hornspyrnu.
13. mín
Vindurinn er að leika liðin grátt bæði sóknar og varnarlega.
11. mín
Sindri Snær!
Sindri Snær fær boltann fyrir utan teig og nær að stilla sér upp í skot og lætur vaða en Halldór Snær ver þetta frábærlega.
9. mín
KR ekki langt frá því að tvöfalda
Komast strax í góða stöðu aftur og eru hársbreidd frá því að tvöfalda! Ásgeir Orri nær að handsama boltann eftir klafs í teignum.
8. mín MARK!
Galdur Guðmundsson (KR)
Stoðsending: Eiður Gauti Sæbjörnsson
KR taka forystu!
Aron Sig finnur Arnór Ingva á bakvið vörn Keflavíkur og hann sendir boltann fyrir markið á Eið Gauta sem er óeigingjarn og framlengir á Galdur sem skorar fyrsta mark leiksins!

KR LEIÐA!
7. mín
KR fær fyrsta horn leiksins
Boltinn dettur niður í teignum og KR hársbreidd frá því að ná að koma skoti að marki en varnarmenn Keflavíkur verjast vel.
6. mín
Aron Sig með tilraun beint á Ásgeir Orra sem á ekki í vandræðum með þetta.
4. mín
Keflavík reyna að finna Alpha Conteh á bakvið vörn KR en flaggið á loft.
1. mín
Leikur hafinn
Stefan Ljubicic sparkar þessum leik af stað fyrir Keflavík.
Fyrir leik
Liðin ganga út á völl
,,Það þarf fólk eins og þig" ómar í græjum HS Orku vallarins meðan liðin gang til leiks.

Það er hvasst og ég er ekki að gera ráð fyrir neinum samba bolta hérna í Keflavík í dag í þessum veðurskilyrðum.
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi
Keflavík gera tvær breytingar á sínu byrjunarliði frá leiknum gegn Breiðablik en inn koma Elvis Bwomono og Ásgeir Páll Magnússon fyrir þá Eið Orra Ragnarsson og Egil Val Karlsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


KR gera fjórfalda breytingu á sínu liði frá leiknum gegn Fram í síðustu umferð. Inn koma Halldór Snær Georgsson, Ástbjörn Þórðarson, Hrafn Tómasson og Aron Þórður Albertsson fyrir þá Arnar Freyr Ólafsson, Michael Akoto, Sigurð Breka Kárason og Orra Hrafn Kjartansson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Spámaður umferðarinnar
Íþróttafréttamaðurinn Stefán Árni Pálsson tók að sér að spá í leikina sem framundan eru í 26. umferð Bestu deildarinnar.

Mynd: Dagrún Ása


Keflavík 1 - 4 KR
Þetta er vissulega á grasi. En Keflavík er bara fast í sjötta sætinu og KR ætlar að tryggja sér annað sætið. Þetta verður easy fyrir KR. Aron Sig skorar þrennu.

Fyrir leik
Keflavík
Keflavík sitja í 6. sætinu með 29 stig, fimm stigum frá ÍA sem sitja í 5. sætinu með 34 stig.
Keflvíkingar hafa að litlu að keppa en vilja þó eflaust enda mótið á jákvæðum nótum.
Þetta er síðasti heimaleikur liðsins í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
KR
KR getur tryggt sér annað sæti deildarinnar með sigri hér í dag. Þeir eru í 2. sæti fyrir þessa umferð með 50 stig, fjórum stigum á undan Fram sem sitja í 3. sæti með 46 stig.

Aron Sigurðarson getur þá einnig bætt markametið ef hann skorar hér í dag en hann jafnaði markametið í síðustu umferð gegn Fram þegar hann skoraði sitt 21. mark í deildinni.
Hann hefur 2 leiki til þess að bæta metið og spurning hvort hann geri það ekki bara strax í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Þriðja liðið
Helgi Mikael Jónasson verður á flautunni í dag og honum til aðstoðar verða Antoníus Bjarki Halldórsson og Guðni Freyr Ingvason.
Twana Khalid er fjórði dómari og eftirlitsmaður KSÍ er Egill Már Markússon.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Velkomin á HS Orku völlinn!
Verið hjartanlega velkomin í þess þráðbeinu textalýsingu frá leik Keflavíkur og KR í Bestu deild karla sem fram fer á HS Orku vellinum í Keflavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð