Besta karla - Efri hluti
Lambhagavöllurinn
19.10.2026 - 19:15
Dómari: Arnar Þór Stefánsson
Fram
2
4
ÍA
Kristófer Konráðsson '4 1-0
Freyr Sigurðsson '13
1-1 Baldvin Þór Berndsen '33
1-2 Baldvin Þór Berndsen '59
Kristófer Konráðsson '66 2-2
2-3 Rafael Máni Þrastarson '93
2-4 Viktor Jónsson '94
Liðsuppstilling Liðsuppstilling
Maður leiksins: Kristófer Konráðsson (Fram)
Byrjunarlið:
22. Viktor Freyr Sigurðsson (m) 26
3. Þorri Stefán Þorbjörnsson 20
5. Kyle McLagan 31
7. Kristófer Konráðsson 28
9. Róbert Hauksson 25 ('74)
10. Fred Saraiva 30 ('80)
18. Ægir Jarl Jónasson 28
19. Kennie Chopart (f) 36
21. Óliver Elís Hlynsson 22 ('74)
23. Már Ægisson 26 ('87)
25. Freyr Sigurðsson 20
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
1. Sigurjón Daði Harðarson (m) 25
34. Birnir Leó Arinbjarnarson (m) 16
8. Haraldur Einar Ásgrímsson 26 ('74)
12. Simon Tibbling 32 ('80)
14. Bjarni Páll Linnet Runólfsson 30
15. Jakob Byström 21 ('74)
24. Nói Birgisson 17
26. Sigurjón Rúnarsson 26
29. Vuk Oskar Dimitrijevic 25 ('87)
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Rúnar Kristinsson (Þ) aldur 57
Sævar Halldórsson (Leikgr.) aldur 23
Friðgeir Bergsteinsson (Liðsstj.) aldur 41
Guðmundur Gígjar Sigurbjörnsson (Styrktarþj.) aldur 23
Kristján Finnbogi Finnbogason (MÞ) aldur 55
Magnús Þorsteinsson (Liðsstj.) aldur 65
Einar Haraldsson (Sjúkraþj.) aldur 41
Helgi Sigurðsson (AÞ) aldur 52

Gul spjöld:
Kyle McLagan ('14)
Kennie Chopart ('52)
Róbert Hauksson ('55)

Rauð spjöld:
Freyr Sigurðsson ('13)
Byrjunarlið:
1. Árni Marinó Einarsson (m) 24
5. Baldvin Þór Berndsen 22
8. Guðmundur Þórarinsson 34 ('74)
10. Steinar Þorsteinsson 28 ('89)
11. Gísli Eyjólfsson 32
13. Erik Tobias Sandberg 26
17. Gísli Laxdal Unnarsson 25 ('45)
21. Böðvar Böðvarsson 31 ('45)
25. Markús Páll Ellertsson 20 ('82)
27. Brynjar Óðinn Atlason 17
87. Styrmir Jóhann Ellertsson 18
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
3. Johannes Vall 34 ('45)
9. Viktor Jónsson 32 ('45)
16. Rúnar Már S Sigurjónsson 36
18. Rafael Máni Þrastarson 19 ('89)
20. Ísak Máni Guðjónsson 21
22. Ómar Björn Stefánsson 22 ('82)
26. Matthías Daði Gunnarsson 20
44. Guðmar Gauti Sævarsson 18
66. Jón Gísli Eyland Gíslason 24 ('74)
- Meðalaldur 25 ár

Liðsstjórn:
Lárus Orri Sigurðsson (Þ) aldur 53
Aron Ýmir Pétursson (AÞ) aldur 36
Salvar Georgsson (Forráðam.) aldur 39
Mario Majic (Sjúkraþj.)
Emil Ásmundsson (Styrktarþj.) aldur 31
Teitur Pétursson (Liðsstj.) aldur 33
Dino Hodzic (MÞ) aldur 30

Gul spjöld:
Baldvin Þór Berndsen ('14)
Erik Tobias Sandberg ('37)
Gísli Laxdal Unnarsson ('40)
Gísli Eyjólfsson ('74)

Rauð spjöld:

Leik lokið!
+4
Arnar flautar af, frábær leikur að baki.

Ég þakka fyrir mig, viðtöl og skýrsla væntanleg.
94. mín MARK!
Viktor Jónsson (ÍA)
Stoðsending: Ómar Björn Stefánsson
MAAARKKKK
Ómar fær boltann úti vinstra megin. Hann keyrir upp kantinn og setur hann í svæðið fyrir Viktor.

Viktor fer framhjá nafna sínum og setur boltann í netið.

Alvöru endir á þessum leik!
93. mín MARK!
Rafael Máni Þrastarson (ÍA)
Stoðsending: Johannes Vall
SKAGAMENN KOMAST YFIR!
Johannes Vall kemur með fyrirgjöf frá hægri á Rafael.

Hann tekur eina snertingu og leggur hann síðan í fjær.
90. mín
Að minnsta kosti þrjár mínútur í uppbót.
89. mín
Inn:Rafael Máni Þrastarson (ÍA) Út:Steinar Þorsteinsson (ÍA)
89. mín
Gísli Eyjólfs sker inn á hægri fótinn og tekur skotið en það fer í varnarmann.
87. mín
Inn:Vuk Oskar Dimitrijevic (Fram) Út:Már Ægisson (Fram)
Már virkilega flottur í kvöld.
87. mín
525 áhorfendur á Lambhagavellinum í kvöld.
84. mín
Kristófer fær boltann inn á teig Skagamenn, snýr og lætur vaða en skotið fer framhjá fjærstönginni.
82. mín
Inn:Ómar Björn Stefánsson (ÍA) Út:Markús Páll Ellertsson (ÍA)
80. mín
Inn:Simon Tibbling (Fram) Út:Fred Saraiva (Fram)
79. mín
Jakob Byström nær að pota boltanum á markið en Árni Marinó ver í horn.

Boltinn kemur inn á teiginn og Árni Marinó kýlir boltann afturfyrir.

Seinni hornspyrnan kemur inn á teiginn en Skagamenn skalla frá.
78. mín
Framarar fá horn.

Fred kemur með boltann inn á teiginn en Skagamenn skalla frá.
74. mín
Inn:Haraldur Einar Ásgrímsson (Fram) Út:Óliver Elís Hlynsson (Fram)
74. mín
Inn:Jón Gísli Eyland Gíslason (ÍA) Út:Guðmundur Þórarinsson (ÍA)
74. mín
Inn:Jakob Byström (Fram) Út:Róbert Hauksson (Fram)
74. mín Gult spjald: Gísli Eyjólfsson (ÍA)
Sparkar Kristófer niður.
73. mín
Skalli í stöng!
Johannes Vall kemst upp að endamörkum, hann lyftir boltanum á fjær. Þar er Markús Páll einn og óvaldaður en hann skallar boltann í stöngina og út.
73. mín
Skagamenn fá horn.

Gummi Tóta kemur með boltann inn á teiginn en Viktor Freyr kýlir frá.
71. mín
Baldvin reynir sendingu í gegn en sendingin ratar ekki á samherja og Viktor handsamar knöttinn.
66. mín MARK!
Kristófer Konráðsson (Fram)
Stoðsending: Þorri Stefán Þorbjörnsson
FRAMARAR EKKI LENGI AÐ SVARA!
Þorri fær boltann úti vinstra megin. Hann fær í rauninni bara að labba upp að endamörkum og kemur síðan með fyrirgjöf inn á teiginn.

Boltinn ratar beint á pönnuna á Kristófer sem er einn á auðum sjó og stangar boltann í fjærhornið. Árni Marinó var í boltanum en það dugði ekki til.

Allt orðið jafnt og spennandi mínútur framundan.
65. mín
Ægir Jarl tekur skot fyrir utan teig gestanna sem fer í varnarmann og afturfyrir.

Boltinn kemur inn á teiginn og eftir mikið klafs hrekkur boltinn til Kennie en hans skot fer rétt framhjá nærstönginni.
59. mín MARK!
Baldvin Þór Berndsen (ÍA)
Stoðsending: Guðmundur Þórarinsson
HAFSENTINN KOMINN MEÐ TVENNU!
Gummi Tóta kemur með hornspyrnuna inn á teiginn.

Viktor Freyr reynir að fara út í boltann en grípur í tómt og Baldvin skallar boltann í autt markið.

Hafsentinn er kominn með tvennu, það er ekki oft sem maður sér það gerast.
59. mín
Johannes Vall kemur með fyrirgjöf frá vinstri og Skagamenn fá horn.
55. mín Gult spjald: Róbert Hauksson (Fram)
54. mín
Steinar gerir vel, fer á milli tveggja manna og hleypir af en skotið beint á Viktor Frey sem ver örugglega.
53. mín
Már kemst upp að endamörkum og fellur við eftir að Baldvin stakaði aðeins við honum. Framarar vilja víti en afar lítið í þessu.
52. mín Gult spjald: Kennie Chopart (Fram)
Kennie vildi aukaspyrnu en ekkert og hann lét Arnar Þór heyra það.
50. mín
Fred fær boltann rétt fyrir utan vítateig gestanna og lætur vaða en skotið fer yfir markið.
48. mín
Skagamenn fá fyrstu hornspyrnu seinni hálfleiksins.

Það kemur hár bolti inn á fjær og Erik Tobias nær skalla en engin hætta í skallanum.
46. mín
Við erum farin af stað á ný!
Gestirnir hefja seinni hálfleik.
45. mín
Inn:Johannes Vall (ÍA) Út:Gísli Laxdal Unnarsson (ÍA)
45. mín
Inn:Viktor Jónsson (ÍA) Út:Böðvar Böðvarsson (ÍA)
45. mín
Hálfleikur
+3
Virkilega skemmtilegur fyrri hálfleikur að baki!

Bæði lið hafa spilað vel en Framarar hafa skapað betri færi.

Tökum okkur korter.
45. mín
+2
Skagamenn fá horn.

Boltinn kemur inn á teiginn og Markús nær skoti og ÍA fær annað horn.
45. mín
Dauðafæri!
Fred lyftir boltanum á Má sem keyrir af stað. Már sér hlaup Kennie sem kemur á ferðinni.

Már laumar boltanum á Kennie á gullfallegan hátt en Kennie skýtur framhjá úr úrvals færi.

Spurning hvort Kennie hefði getað tekið eina snertingu þarna, það var enginn nálægt honum.
43. mín
Fred gerir vel og vinnur hornspyrnu fyrir Fram.

Fred kemur með boltann inn á teiginn en Baldvin skallar frá. Í kjölfarið tekur Kyle skot rétt fyrir utan teig sem Árni Marinó ver auðveldlega.
40. mín Gult spjald: Gísli Laxdal Unnarsson (ÍA)
Már kemst framhjá Gísla og Gísli togar hann niður.
37. mín Gult spjald: Erik Tobias Sandberg (ÍA)
Rífur Róbert niður.
33. mín MARK!
Baldvin Þór Berndsen (ÍA)
ALVÖRU ÞRUMUFLEYGUR!
Böðvar kemur með fyrirgjöf inn á teiginn frá vinstri en Már skallar frá og boltinn ratar á Baldvin.

Baldvin þrumar boltanum í fyrstu snertingu í slána og inn! Viktor Freyr var í boltanum en lítið sem hann gat gert í þessu.

Allt jafnt á nýjan leik!
31. mín
Már vinnur hornspyrnu fyrir Framara.

Fred kemur með boltann inn á teiginn en Skagamenn skalla frá.
30. mín
Gummi Tóta kominn í ágætis stöðu inni á teig heimamanna en í stað þess að láta vaða sendir hann boltann til hliðar á Markús Pál og sóknin rennur út í sandinn.
27. mín
Erik Tobias sendir boltann til hliðar á Gísla Laxdal en hann missir boltann í markspyrnu.
23. mín
Sókn Framara endar með því að Ægir Jarl tekur skot úr þröngri stöðu en það fer framhjá.
22. mín
Frekar rólegt yfir þessu eftir rauða spjaldið.
14. mín Gult spjald: Baldvin Þór Berndsen (ÍA)
Fær einnig gult þegar allt sauð upp úr.
14. mín Gult spjald: Kyle McLagan (Fram)
Fær gult þegar allt sauð upp úr.
13. mín Rautt spjald: Freyr Sigurðsson (Fram)
BEINT RAUTT!
Freyr missir boltann aðeins of langt frá sér og tekur Gumma Tóta niður á gríðarlega groddaralegan hátt. Gummi liggur eftir sárþjáður og það sýður allt upp úr.

Mér sýnist þetta vera hárréttur dómur hjá Arnari og Freyr kvartar lítið.
11. mín
Gísli Laxdal keyrir upp hægri kantinn og vinnur hornspyrnu fyrir Skagamenn.

Gummi Tóta kemur með boltann inn á teiginn en Framarar skalla í innkast.
4. mín MARK!
Kristófer Konráðsson (Fram)
Stoðsending: Róbert Hauksson
FRAMARAR TAKA FORYSTUNA!
Róbert Hauks setur boltann í svæðið fyrir Kristófer sem stingur Baldvin Þór af en Baldvin nær að komast til baka og Kristófer er einn gegn honum.

Kristófer fer á vinstri fótinn og laumar boltanum á milli fóta Baldvins og í nærhornið, snyrtilega gert.

Fram leiðir og það tók ekki langan tíma!
1. mín
Leikur hafinn
Við erum farin af stað!
Heimamenn hefja leik!
Fyrir leik


Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn!
Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, gerir aðeins eina breytingu á liði sínu eftir svekkjandi 2-1 tap gegn KR.

Óliver Elís Hlynsson kemur inn í lið Framara. Hann er að byrja sinn fyrsta leik í kvöld.

Haraldur Einar Ásgrímsson fær sér sæti á bekknum.

Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, gerir sömuleiðis eina breytingu á líði sínu eftir 2-2 jafntefli gegn Íslandsmeisturunum.

Hinn 17 ára gamli Brynjar Óðinn Atlason kemur inn í lið Skagamanna. Hann er einnig að byrja sinn fyrsta leik í kvöld.

Viktor Jónsson fer á bekkinn.
Fyrir leik
Innkastið kemur inn í kvöld - Uppgjörsþáttur
Mynd: Fótbolti.net

Hlaðvarpsþátturinn Innkastið dettur inn seint í kvöld, þar verður sérstakur uppgjörsþáttur tímabilsins. Opinberað verður val á liði ársins, efnilegasta leikmanninum, besta leikmanninum, dómaranum og þjálfaranum.

Í Coke hljóðstofunni verða: Elvar Geir, Valur Gunnars og sérstakur gestur er Haukur Páll Sigurðsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Fyrri viðureignir liðanna
Liðin hafa mæst tvisvar á tímabilinu. Í fyrri leiknum skildu þau jöfn, 3-3, í miklum markaleik á Lambhagavellinum.

Fram hafði síðan betur, 2-0, á Akranesi í lok júní þar sem Atli Þór Jónasson skoraði bæði mörk Framara.
Fyrir leik
Rúnar í viðtali eftir leikinn gegn KR
„Það er huggur í því að vera betri aðilinn gegn KR og vera meira með boltann og töluverða yfirburði í skotum á markið og allri tölfræði en KR er með hörku gott lið, þeir hittu tvisvar sinnum á markið og í bæði skiptin fór boltinn inn'', sagði Rúnar eftir leikinn gegn KR.

Fyrir leik
Frábærar fréttir fyrir Framara
Fyrir fjórum dögum kom fram að Kennie Chopart hefði framlengt samning sinn við Fram um tvö ár.

Kennie hefur verið besti maður Fram á tímabilinu og eru þetta því frábærar fréttir fyrir félagið.

Fyrir leik
Böddi ræddi breytinguna á leikdeginum og annað
„Nei, það hefur engin áhrif myndi ég halda. Maður er búinn að spila á þeim æðislega tíma, mánudegi klukkan 19:15 í allt sumar, þannig ekkert til að kvarta yfir þar. Ég er bara þakklátur að vera ekki í 20 metrunum á sunnudaginn,"segir Böddi um breytinguna.

Fyrir leik
Arnar Þór dæmir leikinn
Arnar Þór Stefánsson er aðaldómari í kvöld. Honum til aðstoðar eru Eysteinn Hrafnkelsson og Eðvarð Þór Eðvarðsson.

Gunnar Oddur Hafliðason er fjórði dómari og Ólafur Ingi Guðmundsson er eftirlitsmaður.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Salatið heilsar!
Heilir og sælir, lesendur góðir, og verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu frá Lambhagavellinum.

Klukkan 19:15 hefst leikur Fram og ÍA í Bestu deild karla.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð