„Ég er náttúrulega voðalega súr með að tapa eins og menn eiga að vera í þessu,'' sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þór/KA, eftir 3-1 tap gegn Val í 1. umferð Bestu deild kvenna.
Lestu um leikinn: Valur 3 - 1 Þór/KA
„Ég er svekktastue með að mér fannst við ekki komast yfir spennuna. Ég held samt að Valur hafi aldrei liðið almennilega vel, nema kannski í kringum þessi tvö mörk hjá Amöndu í fyrri hálfleik,'' sagði Jóhann.
„Þessi leikur er búinn, ég ætla taka það út úr honum að við höfum stigið fyrsta skrefið. Ef að þetta var útkoman af því þegar við spilum mjög ílla, þá er gott að við förum að spila vel.''
Þrátt fyrir að Jóhann var fúll með frammistöðu, sá hann þó jákvæða punkta í þessum leik.
„Ég held að við höfum fengið talsvert af tækifærum til þess að skora fleiri mörk í þessum leik. Það að skapa hér á Hlíðarenda er ekki mjög sjálfsagt,''
Bríet Fjóla er fædd 2010 og fékk að koma við sögu í leiknum.
„Við vorum á bekknum að fara í rólegheitum yfir sálminn sem hún valdi fyrir ferminguna, en annars var hún spennt,'' sagði Jóhann.
Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni fyrir ofan.