Málfríður Anna Eiríksdóttir hefur fengið félagaskipti aftur til Vals frá Danmörku.
Málfríður fékk félagaskipti í lok janúar til B93 í Danmörku og sagði við mbl.is að það væri mjög sennilegt að hún yrði eitthvað með Val í sumar.
Málfríður fékk félagaskipti í lok janúar til B93 í Danmörku og sagði við mbl.is að það væri mjög sennilegt að hún yrði eitthvað með Val í sumar.
Málfríður bar fyrirliðabandið hjá Val í lok síðasta tímabils þar sem Elísa Viðarsdóttir var með barni. B93 er í Kaupmannahöfn og er sem stendur í 2. sæti neðra umspilsins í deildinni.
Málfíður kom samkvæmt Flashscore við sögu í þremur leikjum með B93, lék síðast með liðinu 13. apríl í sigri gegn Naestved.
Hún er 26 ára fjölhæfur leikmaður sem hafði þar til í vetur leikið allan sinn feril með Val.
Athugasemdir