„Hún var svona lala, við vorum fínir fyrsta háftíman fannst mér og svona tök á þessu komumst í 1-0 og misnotuðum góð tækifæri til að komast í 2-0 og þægilegri stöðu en svo gáfum við eftir síðasta korterið og hleyptum Árbæ inn í leikinn og þeir eru bara vel spilandi og ógnuðu okkur mikið þó þeir höfðu kannski ekki fengið dauðafæri en þá svona voru möguleikar hjá þeim til að skapa einhvað" Sagði Rúnar Kristinsson þjálfari Fram eftir 3-0 sigur á FC Árbæ í Mjólkurbikarnum.
Lestu um leikinn: Árbær 0 - 3 Fram
„fúll með fyrri háfleikinn og seinni hálfleikurinn örlítið betri og meðan staðan er bara 1-0 og þá er þetta alltaf erfitt á móti 3.deildar liði skiptir engu máli þó við séum í efstu deild og þeir í þriðju þá leggja þeir á sig mikla vinnu og veittu okkur mjög erfiðan leik".
Kom fyrir stór árekstur í lok fyrri hálfleikar þar sem Kennie og Orri Sigurjóns skölluðu hvorn annan er í lagi með þá?
„Nei, Orri hann vissi hvorki upp né niður hvar hann var til að byrja með hann er ný kominn til baka eftir að vera frá 3-4 mánuði eftir höfuðmeiðsli síðan lendir hann aftur í þessu núna í samstuði við Kennie, Kennie slapp vel út úr þessu en Orri er bara þjáður og bara mjög erfitt fyrir hann og fjölskylduna og okkur frammara því hann er búinn að vera lengi frá og blasir við að hann verði aftur lengi frá í mjög lanagan tíma því hann er pottþétt með heilahristing".
Þið sóttuð Harald Einar í glugganum í gær, hvað færir hann ykkur og hvernig verður þetta með hann og Már Ægis?
„Ég ætla ekki segja þér hvernig ég stilli upp liðinu en jújú þetta er bara samkeppni, Már fer í nám til Bandaríkjana einhvern tíman í ágúst og við þurfum að hafa samkeppni um þessar stöður Már getur spilað vinstra megin og hægra megin, Alex er hægra megin eins og staðan er núna og Már vinstra meginn Halli kemur og gefur þeim stuðning og Halli getur líka spilað hafsent í þriggja manna þannig við sjáum mikla möguleika í honum, hann er Frammari þannig hann þekkur okkur nokkuð vel og alla leikmenn og er fljótur að aðlagast og hentum honum bara beint í liðið í dag til þess að gefa honum leik".
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.