Jurgen Klop, stjóri Liverpool sat í dag fyrir svörum á fréttamannafundi fyrir leik liðsins gegn West Ham. Leikurinn fer fram í hádeginu á morgun.
Liverpool missteig sig gegn Everton í vikunni og eru vonirnar um enska meistaratitilinn að deyja. Fjórir leikir eru eftir af deildinni. Liðið er þremur stigum á eftir Arsenal og tveimur á eftir Manchester City sem á leik til góða.
Liverpool missteig sig gegn Everton í vikunni og eru vonirnar um enska meistaratitilinn að deyja. Fjórir leikir eru eftir af deildinni. Liðið er þremur stigum á eftir Arsenal og tveimur á eftir Manchester City sem á leik til góða.
„Bjóst einhver við því að við yrðum meistarar í byrjun tímabils? Nei, en þetta þróaðist í þessa átt," sagði Klopp.
„Við förum núna til Aston Villa, þeir eru enn með nokkrum stigum minna en við, við þurfum stig til að klára Meistaradeildarsætið, Tottenham er þarna líka. Það er enginn ánægður hér."
„Bara til að útskýra hvernig þetta er. Við getum ekki farið til baka og sagt 'já, að ná Meistaradeildarsæti er nóg'. Það er mjög gott að ná því, en af því við vorum svo nálægt þessu þá erum við mjög, mjög vonsviknir á þessum tímapunkti. Við getum ekki breytt hvernig okkur líður," sagði sá þýski.
Í síðustu sex leikjum í öllum keppnum hefur Liverpool tapað fjórum leikjum (einum framlengdum leik) og unnið tvo. Á þessum kafla féll út úr Evrópudeildinni eftir einvígi gegn Atalanta.
Stöðutaflan
England
Premier league - karlar
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Arsenal | 36 | 26 | 5 | 5 | 88 | 28 | +60 | 83 |
2 | Man City | 35 | 25 | 7 | 3 | 87 | 33 | +54 | 82 |
3 | Liverpool | 36 | 23 | 9 | 4 | 81 | 38 | +43 | 78 |
4 | Aston Villa | 36 | 20 | 7 | 9 | 73 | 53 | +20 | 67 |
5 | Tottenham | 35 | 18 | 6 | 11 | 69 | 58 | +11 | 60 |
6 | Newcastle | 35 | 17 | 5 | 13 | 78 | 56 | +22 | 56 |
7 | Chelsea | 35 | 15 | 9 | 11 | 70 | 59 | +11 | 54 |
8 | Man Utd | 35 | 16 | 6 | 13 | 52 | 55 | -3 | 54 |
9 | West Ham | 36 | 13 | 10 | 13 | 56 | 70 | -14 | 49 |
10 | Bournemouth | 36 | 13 | 9 | 14 | 52 | 63 | -11 | 48 |
11 | Brighton | 35 | 12 | 11 | 12 | 53 | 57 | -4 | 47 |
12 | Wolves | 36 | 13 | 7 | 16 | 49 | 60 | -11 | 46 |
13 | Fulham | 36 | 12 | 8 | 16 | 51 | 55 | -4 | 44 |
14 | Crystal Palace | 36 | 11 | 10 | 15 | 49 | 57 | -8 | 43 |
15 | Everton | 36 | 12 | 9 | 15 | 38 | 49 | -11 | 37 |
16 | Brentford | 36 | 9 | 9 | 18 | 52 | 60 | -8 | 36 |
17 | Nott. Forest | 36 | 8 | 9 | 19 | 45 | 63 | -18 | 29 |
18 | Luton | 36 | 6 | 8 | 22 | 49 | 78 | -29 | 26 |
19 | Burnley | 36 | 5 | 9 | 22 | 39 | 74 | -35 | 24 |
20 | Sheffield Utd | 36 | 3 | 7 | 26 | 35 | 100 | -65 | 16 |
Athugasemdir