Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 19. október 2018 09:06
Elvar Geir Magnússon
Van Dijk og Salah æfðu með Liverpool
Mynd: Getty Images
Lykilmennirnir Virgil van Dijk og Mo Salah æfði báðir með Liverpool og ættu að vera klárir í slaginn þegar liðið mætir Huddersfield á laugardaginn.

Báðir voru að glíma við minniháttar meiðsli í landsleikjahlénu.

Enskir fjölmiðlamenn sem fylgdust með æfingunni sögðu að Salah hafi verið í sérstaklega góðu skapi en hann hefur verið mikið í umræðunni enda ekki náð sömu hæðum og á síðasta tímabili.

Einnig var létt yfir Van Dijk sem spjallaði brosandi við varnarfélaga sinn Joe Gomez meðan þeir skokkuðu í upphitun.

Talið er að Naby Keita verði frá í tvær vikur og þá er Sadio Mane að glíma við meiðsli á hendi.

Liverpool er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar ásamt Chelsea og Manchester City en öll liðin eru með 20 stig.

Dagskráin framundan hjá Liverpool ætti að vera nokkuð þægileg. Eftir leikinn gegn Huddersfield verður spilað gegn Rauðu stjörnunni í Meistaradeildinni á heimavelli og svo gegn Cardiff í deildinni. Þetta ættu að vera níu stig fyrir Liverpool.

Sjá einnig:
Lallana klár í slaginn

Embed from Getty Images
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner