Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 21. október 2018 10:49
Arnar Helgi Magnússon
Neville segir að United verði að gera meira eins og Liverpool
Mynd: Getty Images
Gary Neville sérfræðingur á SkySports og fyrrum leikmaður Manchester United segir að Mourinho þurfi að fá miklu meira út úr sóknarlínu sinni.

Þetta sagði Neville eftir stórleik Chelsea og Manchester United í gær.

Leikurinn endaði með 2-2 jafntefli en Ross Barkley skoraði jöfnunarmark Chelsea á 96. mínútu leiksins. Anthony Martial skoraði bæði mörk United í leiknum.

„United þarf að fá meira út úr sínum fremstu mönnum. Þeir hafa hæfileikana, það er engin spurning. Ég er þá aðallega að tala um Lukaku, Sanchez, Rashford og Martial."

„Ég vil að United spili með kantmenn sína miklu utar eins og Mané og Salah gera og taka síðan hlaupin inná völlinn og innfyrir varnarlínur andstæðingana."

„Mér finnst sóknarmenn United ekki ná nægilega oft að koma sér í stöður þar sem þeir eru í marktækifæri . Ef við horfum á leikinn gegn Chelsea þá voru þessi hlaup fyrir aftan varnirnar ekki að koma frá sóknarmönnum United eins og við sjáum svo oft hjá Liverpool."

Martial kom reyndar sterkur inn í síðari hálfleikinn og gerði þessa hluti en þó of lítið af þeim. Mönnum skorti gæði með boltann."

Manchester United mætir Juventus í Meistaradeildinni á þriðjudag.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner
banner