Man Utd líklegast að fá Olise - Man Utd til í að hlusta á tilboð í Rashford - Juve leiðir kapphlaupið um Greenwood
banner
   þri 23. apríl 2024 14:58
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Arne Slot nú talinn líklegastur til að taka við Liverpool
Mynd: EPA
Sky Sports greinir frá því að Arne Slot sé orðinn líklegastur til þess að taka við Liverpool af Jurgen Klopp í sumar.

Slot er þjálfari Feyernoord sem er næstbesta lið Hollands í dag. Sagt er að Slot tikki í öll lykilboxin hjá ráðamönnum Liverpool.

Sky Sports segir að ferlið sé ekki klárað þar sem hollenska félagið sé staðráðið í að halda honum en þessi 45 ára gamli er sterkur kandídat hjá Liverpool. Feyenoord varð hollenskur meistari undir stjórn Slot í fyrra.

Fleiri stór félög hafa áhuga á Slot. Sagt er að Liverpool sé enn í samræðum við nokkra kosti.

Slot er nú efstur hjá veðbönkum yfir þá sem koma til greina sem næsti stjóri Liverpool. Næstir á eftir eru þeir Ruben Amorim, Roberto De Zerbi, Gary O'Neil, Thiago Motta og Thomas Frank. Næstur þar á eftir er svo Jose Mourinho.
Athugasemdir
banner
banner