Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
   fös 26. apríl 2024 15:07
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Klopp hrifinn af Slot - „Ef hann er lausnin þá er ég meira en ánægður"
Mynd: Getty Images
„Ég veit ekkert hvernig ferlið er statt, en ég er hrifinn af því" sagði Jurgen Klopp, fráfarandi stjóri Liverpool, á fréttamannafundi í dag. Hann var spurður út í Arne Slot sem er mjög líklega að taka við af honum í sumar.

Liverpool er að ganga frá kaupum á stjóranum frá Feyenoord. Slot hefur gert góða hluti þar og varð meistari með liðið í fyrra. Fabrizio Romano greinir frá því í dag að samkomulag milli félaganna sé að nálgast.

„Ég hrifinn af því hvernig liðið hans spilar fótbotla. Allt sem ég heyri um hann er gott - góður gæi. Ég þekki nokkra sem þekkja hann. Ég þekki hann ekki sjálfur, en ég heyri vel talað um hann og það er gott. Góður þjálfari, góður gæi. Ef hann er lausnin þá er ég meira en ánægður."

Klopp segir að ef Slot tekur við þá sé hann að taka við besta félagi í heimi og það gæti hjálpað honum að félagið sé ekki á hápunkti akkúrat þegar hann tekur við. Þá hafi Slot tækifæri til að gera betur.

„Þetta er besta starf í heim. Besta félag í heimi, frábært lið, frábært fólk. Sá sem tekur við er að taka við mjög áhugaverðu starfi."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner