PSG hefur ekki áhuga á Bruno Guimaraes - Slot flytur inn þar sem Klopp býr - Bayern í viðræðum við Flick - Reus eftirsóttur utan Evrópu
   sun 28. apríl 2024 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Barcelona-bolti hjá Inter Miami - Messi kom að öllum fjórum og Busquets með geggjaða stoðsendingu
Lionel Messi og Luis Suarez eru að pakka þessari MLS-deild saman
Lionel Messi og Luis Suarez eru að pakka þessari MLS-deild saman
Mynd: Getty Images
Argentínumaðurinn Lionel Messi skoraði tvö mörk og lagði upp önnur tvö í 4-1 sigri Inter Miami á New England Revolution í MLS-deildinni í nótt.

Messi hefur verið sjóðandi heitur á tímabilinu og virðist hann ekkert á því að fara kólna.

Miami lenti marki undir í leiknum en Messi jafnaði eftir laglega stungusendingu Robert Taylor.

Sergio Busquets átti þá konfektsendingu inn á Messi í öðru markinu og auðvitað skoraði Argentínumaðurinn.

Messi kom að síðustu tveimur mörkunum. Hann átti skot sem markvörður New England varði út á Benjamin Cremaschi sem skoraði og þá lagði Messi upp fjórða markið fyrir besta vin sinn, Luis Suarez, sem skoraði með frábæru skoti.

Á þessu tímabili hefur Messi skoraði níu mörk í MLS-deildinni og lagt upp fimm en Inter Miami er á toppnum í Austur-deildinni með 21 stig.

Dagur Dan Þórhallsson lék þá allan leikinn í 2-1 tapi Orlando City gegn Toronto. Orlando er í 13. sæti Austur-deildarinnar með 9 stig.










Athugasemdir
banner
banner