Augnablik tilkynnti í dag að Rúnar Ingi Eysteinsson væri búinn að kveðja félagið og væri genginn í raðir Keflavíkur.
„Það er komið að tímamótum hjá einum okkar helsta markaskorara, Rúnari Inga, en hann hefur skrifað undir samning við Suðurnesjarisann Keflavík," segir í byrjun tilkynningarinnar sem má lesa í heild sinni hér neðst.

Keflavík er að undirbúa sig fyrir komandi átök í Lengjudeildinni en fyrst á liðið leik gegn Breiðabliki í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í næstu viku.
Rúnar er tvítugur framherji sem var markahæsti leikmaður Augnabliks síðasta sumar þegar hann skoraði níu mörk í fjórtán leikjum í 3. deild. Rúnar er uppalinn Bliki og skipti yfir í Augnablik fyrir tímabilið 2021.
Alls á hann að baki 28 keppnisleiki fyrir Augnablik og í þeim hefur hann skorað fjórtán mörk.
Næsti leikmaður til að fljúga úr hreiðrinu - RÚNAR INGI ????
— Augnablik (@Augnablikid) April 19, 2024
Takk fyrir okkur Rúnar og þinn tíma hjá félaginu, gangi þér sem allra best í sumar ???? pic.twitter.com/c7PIF9k88u
Athugasemdir