Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
banner
   fös 26. apríl 2024 21:33
Ívan Guðjón Baldursson
Championship: Leeds steinlá gegn QPR - Leicester beint upp
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
QPR 4 - 0 Leeds
1-0 Ilias Chair ('8 )
2-0 Lucas Andersen ('22 )
3-0 Lyndon Dykes ('73 )
4-0 Sam Field ('86)

Queens Park Rangers tóku á móti Leeds United í eina leik kvöldsins í ensku Championship deildinni og úr varð hin mesta skemmtun.

QPR er í fallbaráttu deildarinnar á meðan Leeds er í harðri toppbaráttu og gat bætt stöðu sína þar til muna með sigri hér í kvöld.

Svo varð þó ekki, þar sem nokkuð jafnræði ríkti innan vallar en færanýtingin gerði gæfumuninn. Heimamenn nýttu færin sín mun betur heldur en gestirnir og leiddu þeir 2-0 í leikhlé, eftir mörk frá Ilias Chair og Lucas Andersen.

Lyndon Dykes og Sam Field bættu við mörkum eftir leikhlé, er leikurinn hélt áfram í sama fari og áður og gestirnir frá Leeds klúðruðu sínum tækifærum á meðan QPR nýtti allt sitt.

Lokatölur urðu 4-0 fyrir QPR, sem er sjö stigum frá fallsvæðinu eftir annan sigurleikinn í röð.

Leeds er í öðru sæti þegar liðið á aðeins eftir að spila einn leik á deildartímabilinu - gegn sterku liði Southampton.

Leeds getur þó misst annað sætið frá sér, þar sem Ipswich Town situr í þriðja sæti með tvo leiki til góða og aðeins einu stigi minna.

Úrslit kvöldsins þýða að Leicester City er búið að tryggja sér sæti í ensku úrvalsdeildinni í fyrstu tilraun eftir að hafa fallið óvænt í fyrra.
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leicester 46 31 4 11 89 41 +48 97
2 Ipswich Town 46 28 12 6 92 57 +35 96
3 Leeds 46 27 9 10 81 43 +38 90
4 Southampton 46 26 9 11 87 63 +24 87
5 West Brom 46 21 12 13 70 47 +23 75
6 Norwich 46 21 10 15 79 64 +15 73
7 Hull City 46 19 13 14 68 60 +8 70
8 Middlesbrough 46 20 9 17 71 62 +9 69
9 Coventry 46 17 13 16 70 59 +11 64
10 Preston NE 46 18 9 19 56 67 -11 63
11 Bristol City 46 17 11 18 53 51 +2 62
12 Cardiff City 46 19 5 22 53 70 -17 62
13 Millwall 46 16 11 19 45 55 -10 59
14 Swansea 46 15 12 19 59 65 -6 57
15 Watford 46 13 17 16 61 61 0 56
16 Sunderland 46 16 8 22 52 54 -2 56
17 Stoke City 46 15 11 20 49 60 -11 56
18 QPR 46 15 11 20 47 58 -11 56
19 Blackburn 46 14 11 21 60 74 -14 53
20 Sheff Wed 46 15 8 23 44 68 -24 53
21 Plymouth 46 13 12 21 59 70 -11 51
22 Birmingham 46 13 11 22 50 65 -15 50
23 Huddersfield 46 9 18 19 48 77 -29 45
24 Rotherham 46 5 12 29 37 89 -52 27
Athugasemdir
banner
banner
banner