Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
   lau 27. apríl 2024 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland í dag - Stórleikir í München, Leipzig og Leverkusen
Mynd: Getty Images
Mynd: EPA
Það er nóg um að vera í þýska boltanum í dag þar sem Bayer Leverkusen er þegar búið að tryggja sér titilinn þegar fjórar umferðir eru eftir. Liðið er taplaust eftir 30 leiki á deildartímabilinu, auk þess að vera enn taplaust í öllum öðrum keppnum.

Leverkusen tekur á móti Stuttgart í áhugaverðum toppslag, en þar á undan eigast RB Leipzig og Borussia Dortmund við í gríðarlega spennandi meistaradeildarslag.

Liðin eru í harðri baráttu um fjórða sæti deildarinnar, þó að það bendi flest til þess að efstu fimm sætin fái þátttökurétt í riðlakeppni Meistaradeildarinnar á næsta ári.

Edin Terzic þjálfari Dortmund gæti hvílt einhverja lykilmenn gegn Leipzig í ljósi þess að Dortmund spilar undanúrslitaleik við Paris Saint-Germain í Meistaradeild Evrópu á miðvikudagskvöldið.

FC Bayern á þá heimaleik gegn evrópubaráttuliði Eintracht Frankfurt á meðan evrópubaráttuliðin Augsburg og Freiburg eiga erfiða heimaleiki gegn Werder Bremen og Wolfsburg.

Leikir dagsins:
13:30 FC Bayern - Eintracht Frankfurt
13:30 RB Leipzig - Dortmund
13:30 Freiburg - Wolfsburg
13:30 Augsburg - Werder Bremen
16:30 Leverkusen - Stuttgart
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leverkusen 32 26 6 0 82 23 +59 84
2 Bayern 32 22 3 7 90 41 +49 69
3 Stuttgart 32 21 4 7 73 39 +34 67
4 RB Leipzig 32 19 6 7 74 36 +38 63
5 Dortmund 32 17 9 6 64 40 +24 60
6 Eintracht Frankfurt 32 11 12 9 48 47 +1 45
7 Freiburg 32 11 8 13 43 55 -12 41
8 Hoffenheim 32 11 7 14 56 64 -8 40
9 Augsburg 32 10 9 13 49 57 -8 39
10 Heidenheim 32 9 11 12 45 53 -8 38
11 Werder 32 10 8 14 43 52 -9 38
12 Wolfsburg 32 10 7 15 40 51 -11 37
13 Gladbach 32 7 12 13 55 62 -7 33
14 Bochum 32 7 12 13 41 65 -24 33
15 Union Berlin 32 8 6 18 29 54 -25 30
16 Mainz 32 5 14 13 33 50 -17 29
17 Köln 32 4 12 16 24 54 -30 24
18 Darmstadt 32 3 8 21 30 76 -46 17
Athugasemdir
banner
banner
banner