Miðjumaðurinn Theódór Elmar Bjarnason yfirgaf í gær herbúðir tyrkneska B-deildarfélagsins Elazigspor.
Þetta staðfestir hann á Twitter í gærkvöldi.
Þetta staðfestir hann á Twitter í gærkvöldi.
Ástæðan fyrir því að Elmar yfirgaf liðið er að félagið gat ekki borgað leikmönnum en klúbburinn hefur verið í miklum fjárhagserfiðleikum. Þetta kemur fram á mbl.is í morgun. Þar segist hann einnig hafa leitað hjálpar til FIFA við að fá sig lausan.
„Það hafa engir leikmenn fengið laun á þessari leiktíð svo ég leitaði til FIFA. Þá hafði félagið 15 daga til að borga, gerði það ekki og því er ég laus allra mála og er bara að skoða ný tilboð,“ sagði Elmar við mbl.is.
Talið er að Theódór eigi inni rúmlega sextán milljónir króna hjá félaginu.
„Við misstum þrettán leikmenn fyrir tímabilið og það kom enginn í staðinn, því félagið var í leikmannaskiptabanni út af vanskilum frá því í fyrra. Á æfingum hafa því verið margir áhugamenn sem kæmust ekki í 2. deildina á Íslandi. Aðstæður voru því orðnar óásættanlegar."
Elmar útilokar ekki að koma til Íslands en er þó með tilboð í höndunum frá liðum í Tyrklandi.
„Ég loka engum dyrum. Ég er kominn með 5-6 tilboð frá Tyrklandi núna og er að ræða við félögin um hversu mikið þau séu tilbúin að borga fyrir fram, því ég vil ekki lenda í svona löguðu aftur."
„Það eru líka einhverjar þreifingar í gangi við félög í Evrópu. Það eru þó allt aðrar fjárhæðir í boði í Tyrklandi en maður gæti fengið annars staðar í Evrópu, og það er eitthvað sem ég þarf að vega og meta."
Theódór myndi helst kjósa það að fara í KR kæmi hann heim. Hann spilaði með liðinu áður en að hann fór út í atvinnumennsku.
„Ég þekki fullt af fólki í KR og það væri sá kostur sem ég myndi velja ef ég kæmi heim."
Athugasemdir