Sárt er það! Hákon Arnar Haraldsson frábær í kvöld, frammistaða í heimsklassa. Albert geggjaður og Jón Dagur frábær.
— Hörður S Jónsson (@hoddi23) March 26, 2024
Verðum með geggjað lið innan skamms tíma. Hetjuleg frammistaða
Frábær fyrri en ömurlegur seinni. Úrræðin engin á bekknum þegar Úkraína skrúfaði upp hitann. 37 mínútur höfðum við til að gera eitthvað en gerðum enga alvöru tilraun.
— Magnús Þór Jónsson (@maggimark) March 26, 2024
Gullkynslóðin þurfti að tapa fyrir Króatíu og missa af HM í Brasilíu. Þetta lið lærir vonandi jafn mikið af þessu tapi og gullkynslóðin af sínu. Þetta nýja lið er troðfullt af hæfileikum.
— Daníel Rúnarsson (@danielrunars) March 26, 2024
Aldrei aftur umspil, þetta er ógeðslegt ????
— Guðmundur Ásgeirsson (@gummi_aa) March 26, 2024
Gríðarleg sárt að þetta endi svona. Mikið hrós hins vegar á liðið, allt annað að sjá til þess heldur en í síðustu verkefnum. Tek undir með Gumma, nú er það bara næsta stórmót.
— saevar petursson (@saevarp) March 26, 2024
Frábær frammistaða hjá liðinu í þessum 2 leikjum.
— Orri Rafn Sigurdarson (@OrriRafn) March 26, 2024
Féllum of langt niður og fyrra markið ódýrt.
Åge of seinn að bregðast við hinsvegar í seinni hálfleik í kvöld. Menn orðnir vel þreyttir í kringum 70.mín leiksins. Hefðum þurft ferska fætur á miðsvæðið-smá power.
Áfram ????????
Ég fann það. Tweetið sem jinxaði þetta https://t.co/YYRs4DZJIm
— Hilmar Jökull (@HilmarJokull) March 26, 2024
Á innan við ári hverju hefur Age Hareide tekist að endurheimta íslenska hugarfarið í íslenska landsliðið. Þvílík vinnusemi og gæði komin í liðið. Takk Vanda. https://t.co/y1B8Z6b4Av
— Hafliði Breiðfjörð (@haflidib) March 26, 2024
Hákon Arnar er alvöru góður leikmaður og ennþá svakalegt efni.
— Einar Matthías (@einarmatt) March 26, 2024
Albert Guðmunds sömuleiðis frábær og klár í stærra svið en Genoa
Frábært líka að landsliðið er komið með afar sannfærandi markmann.
Jákvæðir punktar við þetta lið þrátt fyrir mikið svekkelsi auðvitað núna.
Mér finnst alltaf eins og Ísland eigi séns þegar Gummi Ben er að lýsa!
— Auðunn Blöndal (@Auddib) March 26, 2024
Strákarnir geta verið stoltir af þessari frammistöðu og inní þessum leik í 90 mín gegn sterku liði.
— Óskar G Óskarsson (@Oggi_22) March 26, 2024
Það er verið að búa eitthvað til þarna og við förum 100% á HM!#fotboltinet
Þetta lið mun spjara sig, margir af þeim fara á hærra level á næstu árum, hef 0 áhyggjur af þessu. Hareide er að búa til samheldni og liðsanda.
— Hrafnkell Freyr Àgústsson (@hrafnkellfreyr) March 26, 2024
Hins vegar var þetta alltaf mikil brekka gegn sterku Úkraínuliði...það var bara þessi fyrri hálfleikur sem gaf manni svo mikla von. Spennandi framtíð sóknarlega en þurfum að fara að búa til varnarmenn í meiri gæðum til að taka við..
— Magnús Þór Jónsson (@maggimark) March 26, 2024