Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 26. mars 2024 20:21
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu markið: Ísland komið yfir eftir stórbrotið skot Alberts
Icelandair
Albert var að koma Íslandi yfir með glæsilegu skoti fyrir utan teig
Albert var að koma Íslandi yfir með glæsilegu skoti fyrir utan teig
Mynd: Mummi Lú
Albert Guðmundsson var rétt í þessu að koma Íslandi í forystu gegn Úkraínu í hreinum úrslitaleik um sæti á Evrópumótið í Þýskalandi og gerði hann með með stórkostlegu marki.

Lestu um leikinn: Úkraína 2 -  1 Ísland

Úkraínumenn byrjuðu leikinn betur og sköpuðu sér nokkur hálffæri en Ísland vann sig betur inn í leikinn, hefur spilað agaðan varnarleik og er nú komið yfir.

Albert fékk boltann rétt fyrir utan teiginn, tók góða gabbhreyfingu áður en hann þrumaði boltanum neðst í hægra hornið. Sá er að stimpla sig aftur inn í landsliðið.

Risastórt mark fyrir Ísland og útlitið afar gott fyrir restina af leiknum en markið má sjá hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner