Íslenska landsliðskonan Natasha Anasi-Erlingsson og stöllur hennar í norska liðinu Brann heimsækja Evrópumeistara Barcelona í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld.
Brann tapaði heimaleiknum naumlega, 2-1, en í kvöld mætast liðin í Barcelona.
Leikurinn hefst klukkan 17:45.
Klukkan 20:00 mætast þá Paris Saint-Germain og Häcken. Berglind Björg Þorvaldsdóttir er á mála hjá PSG, en hefur ekkert spilað síðustu mánuði vegna barneigna.
Leikir dagsins:
17:45 Barcelona - SK Brann
20:00 PSG - Hacken
Athugasemdir