Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 28. mars 2024 12:36
Brynjar Ingi Erluson
Segja Liverpool hafa lagt fram annað tilboð í Rodrygo
Rodrygo
Rodrygo
Mynd: EPA
Spænski miðillinn Nacional fullyrðir að enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool hafi lagt fram annað tilboð í brasilíska leikmanninn Rodrygo, sem er á mála hjá Real Madrid.

Liverpool ætlar að styrkja hópinn í sumar og ef marka má þessar fréttir er líklegt að Mohamed Salah sé á leið til Sádi-Arabíu eftir allt saman.

Samkvæmt Nacional þá lagði Liverpool fram 60 milljóna evra tilboð í Rodrygo sem Madrídingar höfnuðu en enska félagið hefur nú hækkað boð sitt upp í 80 milljónir evra.

Florentino Perez, forseti Real Madrid, ætlar ekki að hleypa Rodrygo frá félaginu nema það fái að minnsta kosti 100 milljónir evra fyrir leikmanninn.

Rodrygo hefur verið í lykilhlutverki hjá Real Madrid síðustu ár en á þessu tímabili hefur hann komið að 21 marki í 41 leik.

Brasilíumaðurinn er 23 ára gamall en hann kom til Real Madrid frá Santos fyrir fimm árum.
Athugasemdir
banner
banner
banner