„Hugmyndin kemur frá honum, hann langaði að fá að mæta og byrja aftur í fótbolta," sagði Arnar Grétarsson, þjálfari Vals, þegar hann var spurður út í Ólaf Karl Finsen í viðtali í gær.
Óli Kalli fékk félagaskipti í Val á lokadegi félagaskiptagluggans en hann hafði lagt skóna á hilluna í vetur.
Óli Kalli fékk félagaskipti í Val á lokadegi félagaskiptagluggans en hann hafði lagt skóna á hilluna í vetur.
„Það vita allir hvað Óli getur í fótbolta, hann var mjög öflugur með Fylki í fyrra. Hann er toppdrengur og er með rosalega gott orðspor í Val. Þegar beiðnin kom frá honum var auðvelt að verða við henni."
„Það er engin pressa á honum, engin pressa heldur frá honum um eitthvað ákveðið. Hann vill fá að æfa og hafa gaman af því að spila fótbolta. Svo má vel vera að eftir einhvern X tíma þá verði hann klár og þá kannski fær hann einhverjar mínútur. Það eru engar frekari pælingar með það," sagði Arnar.
Óli Kalli er 32 ára miðju/sóknarmaður sem varð Íslandsmeistari með Val árið 2018.
Athugasemdir