Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   fös 29. mars 2024 10:15
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Stuðningsmenn Roma við Acerbi: Þú verður að deyja
Mynd: Getty Images

Francesco Acerbi varnarmaður Inter hefur ekki átt sjö dagana sæla undanfarið en hann fékk sekt í febrúar fyrir að sýna stuðningsmönnum Roma miðfingurinn.

Hann var síðan sendur heim úr landsliðsverkefni Ítala á dögunum vegna ásakana um rasisma.


Acerbi hefur sigrast tvisvar á krabbameini en leikmaðurinn greindi frá því í viðtali við Il Corriere della Sera að stuðningsmenn Roma hafi óskað þess að hann myndi deyja.

„Ég trúi því að þeir sem gera mistök eigi að borga fyrir það. Ég gerði það þegar ég fékk sekt fyrir að sýna stuðningsmönnum Roma miðfingurinn þegar þeir öskruðu 'Þú verður að deyja". Það voru þúsundir manna að öskra," sagði Acerbi.

Hann slapp við bann en var gert að greiða fimm þúsund evrur í sekt.


Athugasemdir
banner