Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   þri 26. mars 2024 12:49
Elvar Geir Magnússon
Wroclaw
Myndir: Íslensku stuðningsmennirnir lentir í Wroclaw
Icelandair
Íslensku stuðningsmennirnir við komuna til Póllands.
Íslensku stuðningsmennirnir við komuna til Póllands.
Mynd: Mummi Lú
Flugvél Icelandair lenti í hádeginu í Wroclaw og nú er verið að ferja stuðningsmennina í miðbæinn þar sem þau munu njóta lífsins fram að leik og æfa söngvana. Mummi Lú smellti af nokkrum myndum.

Hægt er að fylgjast með allri stemningunni fyrir landsleik Úkraínu og Íslands í beinni textalýsingu á sérstakri fréttavakt okkar.

Hvað úr hverju ætlum við að taka upp leikdagshlaðvarp og fara yfir málin með góðum gestum frá Stöð 2 Sport en þar verður leikurinn sýndur í opinni dagskrá í kvöld.

Eins og alþjóð veit þá er leikurinn í kvöld hreinn úrslitaleikur þar sem leikið verður til þrautar um sæti á EM í Þýskalandi.
Athugasemdir
banner
banner